Samstarfsverkefni sem hafði góð áhrif á vinnustaðamenningu í skólum og vellíðan starfsfólks
Sigrún Gunnarsdóttir
Skólaþræðir birta nú sex greinar um samstarfsverkefni Vinnueftirlitsins, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands um vinnustaðamenningu í skólum. Tveir grunnskólar og þrír leikskólar tóku þátt í verkefninu sem beindist að því að efla heilbrigða vinnustaðamenningu, öryggi og vellíðan starfsfólks. Verkefnið þótti skila góðum árangri.
Í fyrstu greininni gerir Sigrún Gunnarsdóttir prófessor grein fyrir verkefninu í heild sinni, framkvæmd þess, viðfangsefnum og mati á árangri en hún stýrði verkefninu. Í hinum greinunum fimm er gerð grein fyrir því hvernig tekist var á við verkefnið í hverjum skóla:
- Brekkuskóli: Samvera og óformleg samskipti efla samstarfsvilja, vellíðan og vinnustaðamenningu
- Leikskólinn Heiðarborg: Hnitmiðuð vinna með samskipti styrkir heilbrigða vinnustaðamenningu
- Leikskólinn Klappir: Valdeflandi forysta með markvissri endurgjöf sem styrkir vellíðan og vinnustaðamenningu
- Leikskólinn Rofaborg: Skýr hlutverk og skýrt verklag bæta samskipti, vellíðan og vinnustaðamenningu
- Sunnulækjarskóli: Markvisst samtal um teymisvinnu og sálrænt öryggi styrkir vellíðan og vinnustaðamenningu
Jóhanna María Agnarsdóttir, Aðalheiður Bragadóttir og Sara Mist Jóhannsdóttir
Anna Valgerður Sigurðardóttir, Hermann Örn Kristjánsson og Ragnheiður Guðný Magnúsdóttir
Hafdís Ólafsdóttir og Áslaug Magnúsdóttir
Jóhanna Benný Hannesdóttir og Helena Sigurdórsdóttir