apríl 2026

Menntun, skóli, starfsþróun – þankar um framhaldsskóla

22. apríl, 2026

Jón Torfi Jónasson

Það er sjaldan ágreiningur um mikilvægi menntunar – öll samfélög setja skólastarf ofarlega á forgangslista sinn. En öll menntakerfi glíma við ýmsar áskoranir. Í nýlegu erindi lét Andreas Schleicher, stjórnandi PISA, í ljósi áhyggjur af því að skólar víða um heim væru sennilega oft úr takti við margvíslega þróun utan veggja skólans (2024, júni). Það er ekki einfalt að halda í við umheiminn. Það er mikilvægt að umræða um framhaldsskóla taki mið af því að við nálgumst miðja tuttugustu og fyrstu öld og sé ekki föst í hefðum þeirrar tuttugustu eins og enn brennur við.[i]

Framhaldsskólastigið er spennandi skólastig því það er fjölbreytt og gegnir mörgum mikilvægum hlutverkum. Á táningsaldri taka nemendur út mikinn þroska og eiga möguleika á að blómstra persónulega og félagslega. Þeir eru að setjast við stjórnvölinn í sínu eigin lífi með öllum þeim möguleikum og áskorunum sem því fylgja.

Það er því engin spurning að skólastiginu sjálfu fylgja líka miklar áskoranir sem gagnlegt er að skoða og takast á við. Ég vík hér að nokkrum þeirra og þótt ég hafi allt skólastarf í huga beini ég sjónum hér einkum að framhaldsskólunum. (meira…)

image_pdfSmelltu hér fyrir PDF skjal

Er forysta um nám og kennslu föst í sömu hjólförunum?

14. apríl, 2026

Helgi Þorbjörn Svavarsson, Guðrún Ragnarsdóttir, Svava Björg Mörk, Sverrir Óskarsson, Eva Harðardóttir og Berglind Rós Magnúsdóttir

Innan vébanda Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) er talsverð áhersla lögð á að gera alþjóðlegar úttektir á menntakerfum aðildarlandanna. Mest umtalaða verkefnið á því sviði er án efa Programme for International Student Assessment-rannsóknin (PISA) sem reglulega er til umræðu hér á landi. Önnur áhugaverð könnun, sem almennt fær minni athygli, nefnist Teaching and Learning International Survey (TALIS). Þar er sjónum sérstaklega beint að starfsskilyrðum, starfsumhverfi og viðhorfum kennara og skólastjórnenda sem starfa á unglingastigi grunnskóla. (meira…)

image_pdfSmelltu hér fyrir PDF skjal

Færslusafn

Fara íTopp