Valdeflandi forysta með markvissri endurgjöf sem styrkir vellíðan og vinnustaðamenningu
Hafdís Ólafsdóttir og Áslaug Magnúsdóttir
Í þessari grein lýsa höfundar þátttöku leikskólans Klappa í Reykjavík í samstarfsverkefni Vinnueftirlitsins, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands um vinnustaðamenningu í skólum. Tveir grunnskólar og þrír leikskólar tóku þátt í verkefninu sem beindist að því að efla heilbrigða vinnustaðamenningu, öryggi og vellíðan starfsfólks. Verkefnið þótti skila góðum árangri. Sjá um verkefnið hér.
Leikskólinn Klappir er sjö deilda leikskóli á Akureyri sem var opnaður árið 2021. Í skólanum dvelja um 145 börn og þar starfa um 48 starfsmenn. Skólinn er einn af þátttökuskólum samstarfsverkefnisins. Kannanir á líðan starfsfólks leikskólans vorið 2024 bentu til þess að traust, faglegt frelsi og frumkvæði mætti efla. Breytingar í stjórnendateymi Klappa sumarið 2024 sköpuðu tækifæri til að rýna í samskipti og stjórnun, móta sameiginlega sýn og efla þá verkferla sem styðja við lærdómssamfélag skólans. Niðurstöðurnar urðu kveikjan að umbótum sem beindust að því að auka sálrænt öryggi, efla teymisvinnu og faglega leiðsögn, skýra sameiginlega ábyrgð og þróa lærdómssamfélag byggt á gleði, trausti og virðingu. (meira…)
Anna Valgerður Sigurðardóttir, Hermann Örn Kristjánsson og Ragnheiður Guðný Magnúsdóttir