Markvisst samtal um teymisvinnu og sálrænt öryggi styrkir vellíðan og vinnustaðamenningu
Anna Valgerður Sigurðardóttir, Hermann Örn Kristjánsson og Ragnheiður Guðný Magnúsdóttir
Í þessari grein lýsa höfundar þátttöku Sunnulækjarskóla á Selfossi í samstarfsverkefni Vinnueftirlitsins, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands um vinnustaðamenningu í skólum. Tveir grunnskólar og þrír leikskólar tóku þátt í verkefninu sem beindist að því að efla heilbrigða vinnustaðamenningu, öryggi og vellíðan starfsfólks. Verkefnið þótti skila góðum árangri. Sjá um verkefnið hér.
Sunnulækjarskóli er við Norðurhóla 1 á Selfossi. Hann tók til starfa í ágúst 2004 með 1.–4. bekk en er nú heildstæður skóli með bekkjardeildir frá 1.–10. bekk. Sérdeild Sunnulækjarskóla er deild innan Sunnulækjarskóla og er í daglegu tali nefnd Setrið. Við skólann eru um 620 nemendur og 130 starfsmenn. Sunnulækjarskóli er samfélag þar sem allir vinna saman að því að læra, þroskast og taka framförum; skóli sem lærir. Við viljum byggja upp sterkt lærdómssamfélag nemenda og starfsmanna og leggjum áherslu á metnaðarfullt skólastarf þar sem virðing og traust ríkir. Góð samvinna starfsfólks, nemenda, foreldra og annarra samstarfsaðila skólans er mjög mikilvæg. (meira…)