Skýr hlutverk og skýrt verklag bæta samskipti, vellíðan og vinnustaðamenningu
Guðlaug Kristinsdóttir, Margrét Sæmundsdóttir og Sigríður María Sigurðardóttir
Í þessari grein lýsa höfundar þátttöku leikskólans Rofaborgar í Reykjavík í samstarfsverkefni Vinnueftirlitsins, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands um vinnustaðamenningu í skólum. Tveir grunnskólar og þrír leikskólar tóku þátt í verkefninu sem beindist að því að efla heilbrigða vinnustaðamenningu, öryggi og vellíðan starfsfólks. Verkefnið þótti skila góðum árangri. Sjá um verkefnið hér.
Rofaborg er fimm deilda leikskóli í Árbæjarhverfi, rétt við Elliðaárnar. Starfsfólk er um 35 talsins og þar dvelja um 100 börn. Leikskólinn starfar eftir hugmyndafræði Reggio Emilia þar sem áhersla er lögð á að börn séu hæfir, getumiklir og sterkir einstaklingar sem hafa rétt á að taka þátt í samfélagi þar sem lýðræðisleg vinnubrögð eru höfð að leiðarljósi. (meira…)
