námspil

Að kafa á dýptina með kennaranemum: Um borðspil, sköpun og sjálfbærni í kennaranámi

22. október, 2026

Kristín Dýrfjörð

Í morgun mættu í Háskólann á Akureyri 40 kennaranemar með stýrur í augunum til að prófa frumgerðir af spilum sem þau hafa verið að hanna síðustu vikurnar. Í þremur kennslustofum, við tíu borð, sátu þau og deildu vinnu sinni hvert með öðru. Þarna var teningum kastað, spjöld lesin, lausnir ræddar og mikið hlegið. Sum spilin kröfðust hreyfingar, eins og að læðast eða hoppa, önnur þess að fólk legði höfuðið í bleyti. Í stofunum var þessi sérstaka stemning sem við kennarar á öllum skólastigum sækjumst eftir, lágvær kliður, fólk niðursokkið í sameiginleg verkefni. Það eru einmitt svona stundir sem gera starfið svo skemmtilegt. (meira…)

Færslusafn

Fara íTopp