Magnea Arnardóttir
Í þessari grein segir Magnea Arnardóttir leikskólakennari og þroskaþjálfi við leikskólann Rauðhól í Reykjavík frá þátttöku skólans í þróunarverkefninu Stillu – hæglátt leikskólastarf, sem unnið var í samstarfi fræðimanna við Háskóla Íslands, Háskólann á Akureyri og Háskólann í Suðaustur-Noregi (Universitetet i Sørøst-Norge) við fjóra leikskóla á Íslandi, leikskólann Aðalþing í Kópavogi, Iðavöll á Akureyri, Rauðhól í Reykjavík og Ugluklett í Borgarnesi. Verkefnið beindist að því að þróa hæglátt leikskólastarf og auka skilning starfsfólks á þeim tíma og skilyrðum sem börn þurfa til að kanna heiminn, prófa hugmyndir, endurtaka og skapa þekkingu.
Í fyrstu greininni, sjá hér, segja Anna Magnea Hreinsdóttir og Kristín Dýrfjörð frá verkefninu, þróun þess og áhrifum, en þær voru verkefnastjórar verkefnisins. Hér má nálgast greinarnar um starfið í hinum leikskólunun þremur:
- Leikskólinn Aðalþing: Að kafa djúpt
- Iðavöllur: Að þora að fara út af sporinu
- Ugluklettur: Að dvelja með
Leikskólinn Rauðhóll
Leikskólinn Rauðhóll er tíu deilda leikskóli í Norðlingaholti, umkringdur náttúruperlum eins og Rauðavatni, Rauðhólum og Heiðmörk. Leikskólinn verður tuttugu ára í vetur og starfar í þremur húsum sem heita Litir, Ævintýri og Björnslundur. Á Litum eru yngri börnin og á Ævintýrunum þau eldri. Við erum mikill útileikskóli og eigum líka Björnslund, deildina okkar í skóginum. Í Björnslundi skiptast deildirnar á að vera í vikutíma og upplifa náttúruna og leikskólalífið á annan hátt. Hugmyndafræðin sem Rauðhóll byggist á er kennd við flæði og gengur út á að börnin fái tíma og rými til þess að blómstra í sínu áhugasviði á eigin forsendum. Börnin hafa óhindraðan aðgang að efnivið og leikefni og þannig eflast þau í sjálfstæði og skapandi hugsun. Við vildum nýta hæglætið til þess að minnka streitu hjá börnum og kennurum og efla enn frekar lærdómssamfélagið sem við höfum skapað í Rauðhól.
Hvað er það versta sem gæti gerst?
Í Rauðhól vorum við fyrst svolítið týnd í því hvernig þróunarverkefnið Stilla myndi þróast hjá okkur. Þetta var óvissuferð sem við lögðum í en í þessari frábæru samvinnu skólanna og fræðafólks urðu fljótt til töfrar. Við vorum strax spennt fyrir verkefninu en í raun höfðum við ekki hugmynd um hvaða áhrif verkefnið myndi hafa á skólann okkar.
Við byrjuðum á að skoða hvaða svæði eða tímar í leikskólanum væru krefjandi og ekki eins og við vildum hafa þá og urðum strax meðvituð um að við vildum gera breytingar. Stundum geta breytingar verið yfirþyrmandi og fyrir suma kvíðvænlegar en hvað er það versta sem gæti gerst? varð frasinn sem við notuðum og við sögðum „þá breytum við bara aftur til baka“.

Fataherbergið – staður til að byrja á
Fataherbergið okkar er staður þar sem oft er mikill hávaði, áreiti og satt að segja stundum óreiða. Við fundum að bæði börn og kennarar voru orðin neikvæð gagnvart rýminu. Börn sem vildu fara út vildu bara ekki vera í fataherberginu. Okkur þótti fataherbergið vera góður staður til að byrja að innleiða hæglæti. Breytingarnar sem við gerðum strax fólust í að hafa færri börn og kennara saman í rýminu eða einn kennara og þrjú börn til að byrja með. Við gættum þess að kennari væri tilbúinn að fara út þegar börnin voru klædd og til að tryggja það skipti samvinna á milli deilda miklu máli. Börnin fengu með þessum breytingum meiri tíma og rými til þess að læra og þróa nýja færni og við sáum að þau voru fljótari að tileinka sér sjálfshjálp. Með því að hver kennari sinni færri börnum ná þeir betur að mæta hverju og einu barni.
Þegar börnin koma inn úr útiveru reynum við að halda sama hæglæti. Þau koma inn í rólegheitum og fara síðan í bleiuskipti eða á salerni. Þar uppgötvuðum við annað rými og annan tíma sem við höfðum ekki endilega gert okkur grein fyrir að breytingarnar myndu hafa áhrif á. Við vorum kannski vön því að skipta á átján bleium á tuttugu mínútum en eftir á að hyggja er auðséð að það skapaði lítið svigrúm fyrir ró og samveru. Þegar börnin fóru að koma inn í rólegheitum varð meiri tími með hverju barni á baðherberginu og þessi hversdagslega stund fékk allt annan blæ.
Í kjölfarið gerðum við fleiri skipulagsbreytingar í Litum, yngri barna húsinu okkar. Við breyttum meðal annars matartímunum þannig að börnin færu ekki öll samtímis að borða og þaðan beint í hvíld. Við vorum satt að segja viss um að hvíldin yrði erfiðari þegar börnin kæmu ekki öll inn á sama tíma en annað kom á daginn. Hvíldin hefur í raun aldrei gengið betur. Það hefur mjög róandi áhrif, bæði á börn og kennara, að koma inn í rýmið eitt af öðru, finna hvíldardótið sitt og leggjast niður í rólegheitum.
Flæði og hæglæti
Okkur finnst mikilvægt að tala um flæði, því sú hugmyndafræði hefur lengi verið mikilvægur grunnur í starfi okkar og tengist jákvæðri sálfræði. Við leggjum áherslu á að mæta hverju barni á sínum forsendum og skapa aðstæður þar sem það getur komist í flæði, hugarástand þar sem viðfangsefnið er hæfilega krefjandi, athyglin verður djúp og barnið getur gleymt stund og stað. Í gegnum slíkan leik fær barnið tækifæri til að þróa færni sína, getu og áhuga. Í okkar huga eiga hæglæti og flæði mjög vel saman. Hæglætið skapar rýmið og tímann sem flæðið þarf til að geta orðið til. Í dag sjáum við því ekki fyrir okkur að aðskilja þessar tvær áherslur í starfi okkar í Rauðhól, þær hafa smám saman fléttast saman og orðið hluti af því hvernig við hugsum um leik, nám og daglegt líf barnanna.
Eitt það mikilvægasta sem við höfum lært er að fyrsta skrefið í hæglátu leikskólastarfi er að kennarinn horfi inn á við. Hæglætið kemur að innan. Við þurfum að vera meðvituð um okkur sjálf, hvernig við erum til staðar í rýminu og hvaða áhrif nærvera okkar hefur á börnin og umhverfið. Reynslan hefur nefnilega sýnt okkur að oft erum það við kennararnir sem þurfum fyrst að breyta einhverju. Við getum verið hávær, hröð og upptekin af því að stýra án þess endilega að gera aðstæðurnar betri fyrir börnin. Við þurfum því stöðugt að lesa í aðstæður og velta fyrir okkur hvernig við getum best stutt við börnin og hópinn hverju sinni.
Hæglætið hefur smám saman smitast inn í allt starfið okkar í Rauðhól. Gróðurhúsið er gott dæmi um það og hefur orðið að eins konar hæglætisstað þar sem bæði börn og kennarar, stundum þau sem maður hefði síst búist við, hafa fundið sinn stað og sitt hlutverk í ræktuninni.
Að horfa til lengri tíma
Það koma alltaf dagar þar sem okkur finnst við ekki gera annað en að hlaupa hratt og gera allt í flýti. En þegar við horfum til lengri tíma er hæglætið það sem við viljum hafa efst í huga – bæði fyrir börn sem alast upp í hröðum heimi og fyrir kennara sem starfa í umhverfi þar sem álagið getur auðveldlega orðið of mikið.
„Það er ekkert hæglæti hér“ er orðinn frasi sem við notum gjarnan okkar á milli. Hann er ekki endilega gagnrýni heldur áminning um að hæglætið gerist ekki af sjálfu sér. Við getum alltaf staldrað við, endurskoðað það sem við erum að gera og breytt einhverju. Þannig hjálpar frasinn okkur að halda hæglætinu lifandi og vera stöðugt meðvituð um hvernig við viljum hafa leikskólann okkar.
Um höfund
Magnea Arnardóttir er leikskólakennari og þroskaþjálfi. Hún er deildarstjóri í leikskólanum Rauðhól. Áhugasvið hennar er í starfi útivera, útikennsla og starf yngstu barnanna í leikskólanum. Magnea hefur leitt hæglætisteymi Rauðhóls í þróunarverkefninu og verið með kynningar og fræðslu um hæglátt leikskólastarf víða.


Anna Magnea Hreinsdóttir og Kristín Dýrfjörð
Kristín Gísladóttir og Elín Friðriksdóttir
Anna Lilja Sævarsdóttir, Ragnheiður I. Ragnarsdóttir og Lísbet Reykjalín Elvarsdóttir