júní 2026

Hugmynd um verkefni í samfélagsgreinum fyrir unglingastig

2. júní, 2026

Helgi Skúli Kjartansson

Verkefnið, sem hér fylgir á eftir, er lagt fram til kynningar og umræðu, í þeirri von að einhverjir lesendur a.m.k. hugleiði það. Og jafnframt í þeirri veiku von að einhverjum nýtist það í raunverulegri kennslu, en þá að sjálfsögðu með þeim breyt­ingum sem hver kennari kýs að gera á því.

Verkefnið snýst um Jesú og guðspjöllin og er gengið út frá því að hinn jarðneski Jesús hafi verið til. En nemendur eiga að geta unnið verkefnið saman án þess að vera sammála um hvort guð sé til og hvort hann hafi þá opinberast í Jesú og guð­spjöllunum eða ekki.

Verkefnið felst í að kynnast Biblíunni, einkum guðspjöllunum, með því að rýna í frásagnir þeirra af tveimur veislum sem Jesús tók þátt í. Um leið fæst nokkur æfing í að nota frásagnirnar sem heimildir um lífið á dögum Jesú og bera þær saman við aðrar heimildir, þ.e. myndlist síðari tíma. Einnig sjá nemendur dæmi um að þýðing jafngildir ekki alltaf frumtexta.

Mælt er með að nemendur fái verkefnið bútað niður í vefskjöl, geti skoðað þau í spjaldtölvu eða fartölvu og opnað krækjur. Má kennari þá vera við því búinn að einhverjar krækjurnar séu ekki lengur virkar og þurfi að finna aðrar leiðir.

Verkefnið er nokkuð stórt. Það skiptist í sjö tölusetta kafla og eiga þeir fyrri að vera einfaldari. Kennari, sem vill prófa að nota verkefnið, ætti að leggja fyrir þrjá eða fjóra fyrstu kaflana og halda ekki áfram nema þeir veki áhuga. Ef vel gengur má halda áfram með síðari kaflana, kannski þannig að við þá glími aðeins þeir nemendur sem sýnt hafa sérstakan áhuga á þeim fyrri. Þeir geta síðan gefið bekkn­um skýrslu um vinnu sína.

Verkefnið hentar að vinna að verulegu leyti í hópvinnu. Kennari ákveður þá hvenær allir hópar gera það sama og hvenær hentar að skipta með þeim verkum: t.d. þannig að fjórir hópar vinni hver með sitt guðspjall; að sérstakur hópur leiti að myndum á netinu og sýni svo bekknum; eða að nemendur með erlent móður­mál noti guðspjöllin á þeim málum (sem einstaklingar eða sérstakur hópur ef þeir eru nokkrir í bekknum) meðan aðrir hópar nota þau á ís­lensku.

Aftanmálsgreinar eru ætlaðar kennaranum og má fjarlægja þær úr vefskjölum sem nemendur fá aðgang að. (meira…)

image_pdfSmelltu hér fyrir PDF skjal

Færslusafn

Fara íTopp