september 2026

Opni skólinn í Grundaskóla – Áfall varð að tækifæri

24. september, 2026

Sigurður Arnar Sigurðsson

Í þessari grein er fjallað um uppbyggingar- og umbótastarf  í Grundaskóla síðastliðin fimm ár. Hér er um að ræða umfangsmikla vegferð sem hefur gengið undir vinnuheitinu Opni skólinn.

Grundaskóli á Akranesi tók til starfa árið 1981 og var í upphafi einn af þeim skólum sem kenndir hafa verið við opið skólastarf. Í upphafi var strax lögð áhersla á teymisvinnu starfsfólks, vinnu á opnum svæðum og að nemendur væru virkir þátttakendur í eigin námi. Fyrirkomulagið birtist m.a. í fjölbreyttum valgreinum, áherslu á þemabundna námsaðlögun og aldursblöndun. Mikið vatn hefur runnið til sjávar frá stofnun skólans en í dag er hann einn fjölmennasti grunnskóli landsins með yfir 700 nemendur í fyrsta til tíunda bekk og um 130 starfsmenn. (meira…)

image_pdfSmelltu hér fyrir PDF skjal

Gæði kennslu. Námstækifæri fyrir alla nemendur

16. september, 2026

Anna Kristín Sigurðardóttir, Berglind Gísladóttir, Birna María B. Svanbjörnsdóttir, Guðmundur Engilbertsson, Hermína Gunnþórsdóttir, Jóhann Örn Sigurjónsson, Rannveig Oddsdóttir, Rúnar Sigþórsson og Sólveig Zophoníasdóttir

Í maí 2026 birtu höfundar greinaflokk á visir.is sem fjallaði um gæði kennslu frá ýmsum sjónarhornum. Greinarnar voru eftirfarandi:

Vorið hafði einkennst af frekar neikvæðri umfjöllun um nám og kennslu og meint árangursleysi nemenda, sérstaklega í lestri, og háværar raddir voru um ýmsar skyndilausnir sem höfðu ekki endilega sterkt samhengi við kennslufræði. Markmið höfunda með greinaflokknum var að draga athyglina að því sem okkur sýnist brýnast að leggja áherslu á í umræðunni um menntamál og er vænlegt til að skila árangri út frá niðurstöðum rannsókna. Greinarnar byggjum við m.a. á niðurstöðum QUINT (e. Quality in Nordic Teaching) rannsóknarinnar sem veita mikilvægar og áreiðanlegar upplýsingar um hvar skórinn kreppir í kennslunni og hvernig við getum brugðist við. Umræðan um menntamál síðustu daga í kjölfar niðurstaðna PISA-könnunarinnar (e. Programme for International Student Assessment) varð síðan aftur kveikjan að því að endurbirta þennan greinaflokk í einu lagi í Skólaþráðum – á vettvangi skólafólks – með góðfúslegu leyfi frá visir.is. Með því viljum við árétta enn og aftur að skyndilausnir eru ekki í boði frekar en fyrri daginn. (meira…)

image_pdfSmelltu hér fyrir PDF skjal

Hættan gerir ekki boð á undan sér – Um öryggi og viðbúnað í íslenskum grunnskólum

10. september, 2026

Svava Magdalena Hönnudóttir

Slys á Íslandi þar sem grunnskólabörn voru á leið með rútu í skólasund vakti mig til umhugsunar um viðbúnað skóla og annarra aðila þegar slys verða á skólatíma. Eftir áreksturinn voru börn send fótgangandi 300 metra leið í sund áður en verkferlar voru virkjaðir (Garðabær, 2026). Foreldrar gagnrýndu viðbrögð og upplýsingagjöfina og kölluðu eftir skýrari ábyrgð og verkferlum þegar slys eða áföll verða (Silja Rún Sigurðardóttir, 2026). Vart þarf að nefna hversu miklu máli skiptir að verkferlar séu skýrir og samræmdir þegar á reynir.

Öryggi nemenda í íslenskum grunnskólum var viðfangsefni í lokaverkefni mínu til BA-prófs í uppeldis- og menntunarfræði við Háskóla Íslands. Í rannsókninni voru greind opinber skjöl sem móta starf grunnskóla, það er að segja lög, reglugerðir og leiðbeinandi gögn um öryggi og viðbúnað. Leitast var við að svara því hvernig öryggi og viðbúnaður birtast í þessum skjölum og hvort sú mynd sem þar er dregin upp bendi til þess að nemendur njóti sambærilegs öryggis óháð skóla.

(meira…)

image_pdfSmelltu hér fyrir PDF skjal

Færslusafn

Fara íTopp