Brynhildur Sigurðardóttir
Í þessari grein fjalla ég um listina að rækta spurningar nemenda. Ég vil halda því fram að forsenda fyrir því að nemendur taki þátt í og læri af samtölum um fræðileg efni sé að samræðan hefjist á þeirra eigin spurningum.
Ég vona að allir kennarar hafi lesið, eða séu að lesa bókina Gæði kennslu. Námstækifæri fyrir alla nemendur sem höfundar drógu saman í nýlegum greinum á Vísi og hér í Skólaþráðum (Anna Kristín Sigurðardóttir o.fl., 2026). Bókin segir frá niðurstöðum QUINT-rannsóknarinnar þar sem kennsluhættir í skólastofum á Norðurlöndunum voru skoðaðir. QUINT stendur fyrir Quality in Nordic Teaching og rannsóknin gefur okkur dýrmætt tækifæri til að skoða hvað einkennir kennsluhætti í íslenskum grunnskólum og ígrunda hvernig við getum bætt þá til að auka gæði náms hjá nemendum okkar.
Samkvæmt niðurstöðum QUINT-rannsóknarinnar er ljóst að við þurfum að auka og efla samræðu nemenda í íslenskum skólum. Í samræðu birtist hugsun nemenda og þátttakendur fá vettvang til að æfa sig að nota orðaforðann sinn, draga ályktanir, bera saman hugmyndir og byggja upp dýpri skilning á því viðfangsefni sem rætt er hverju sinni. Þátttaka í samræðu hefur jákvæð áhrif á nám en líka á sjálfsmynd og félagslega þætti (Berglind Gísladóttir o.fl., 2025).
Kennarar vita að samræða er mikilvæg í námi nemenda en ég heyri þá mjög oft spyrja hvernig hægt er að koma henni fyrir í skólastofunni og stundaskránni. Hvað getur kennari gert svo að nemendur þori að segja hugsanir sínar upphátt? Hvernig fáum við nemendur til að hlusta vel á hin sem eru að tala? Hvernig getur kennari hjálpað nemendum að halda sig við efnið, ígrunda og fara á dýptina í samtali við aðra um viðfangsefni námsins?
Allir kennarar vita að spurningar skipta máli. Spurningar eru drifkraftur þekkingarleitar og með því að spyrja réttu spurninganna má kalla fram góð svör og ýta undir umræður nemenda eins og vel er fjallað um í handbók Ingvars Sigurgeirssonar Listin að spyrja (2016). En umræða kennara um spurningar fjallar oftar en ekki um kennarann sjálfan og hvernig spurninga hann spyr. Fyrir nokkuð mörgum árum skrifaði Hafþór Guðjónsson (2018) pistil þar sem hann benti á að við þurfum að snúa þessu við: við þurfum að ræða hvernig við fáum nemendur til að spyrja spurninganna sem drífa síðan þekkingarleit þeirra áfram.
Ég tek upp þráðinn þar sem grein Hafþórs lýkur en hann lýsti því vel hvað breytist í virkni barna og unglinga þegar þau fá það hlutverk að spyrja hvert annað í stað þess að svara spurningum kennara eða skólabóka. Við umsnúninginn lærir nemandi ekki bara að spyrja betri spurninga heldur „tekur hann um leið að sér að hlusta, meta, svara. Tekur ábyrgð, tekur frumkvæði, tekur ákvarðanir, bregst við öðrum.“ Spurningar barna og unglinga ýta undir að þau taki ábyrgð á samtalinu sem fylgir í kjölfarið og beri ábyrgð á eigin námi.
Þetta kann að virðast skrítið verkefni fyrir kennara: Að rækta spurningar nemenda. Eru börn ekki forvitin að eðlisfari? Eru þau ekki síspyrjandi? Jú, það sjáum við hjá leikskólabörnum og þannig koma þau inn í grunnskólana. En börn eru skynsöm og fljót að læra rétt viðbrögð ef skólinn ætlast ekki til að þau spyrji heldur að þau svari bara spurningum kennara og námsbóka. Ef spurningar eru ekki verkefni í skólanum þá hætta nemendur að spyrja á þeim vettvangi. Þannig að kennarar þurfa að viðhalda forvitni nemenda og rækta spurningar þeirra með því að gefa þeim hlutverk í skólanum. Í hæfniviðmiðum nokkurra greinasviða í aðalnámskrá grunnskóla (2024) má lesa tilmæli um að skipuleggja eigi kennslu þar sem nemendur fá tækifæri til að spyrja fjölbreyttra spurninga í ólíku samhengi. Þetta eru hæfniviðmið á borð við spyrjandi hugarfar í lykilhæfnikaflanum, vísindaleg vinnubrögð í náttúrugreinum, gagnrýnar umræður í samfélagsgreinum og samræður og tjáning í stærðfræðikaflanum.
Hér á eftir bendi ég á nokkrar leiðir sem hægt er að fara til að skipuleggja kennslu á grunni þessara hæfniviðmiða í aðalnámskránni með það að markmiði að rækta spurningar nemenda.
Spurningakveikjur
James Nottingham (2017) hefur leiðbeint fjölda skóla um kennsluhætti sem ýta undir virkni nemenda, ígrundun og ábyrgð á eigin námi. Hann setti fram leiðbeiningar um notkun á spurningakveikjum sem hjálpa nemendum að setja fram rannsakandi, krefjandi spurningar sem hægt er að nota til að rýna í viðfangsefni á fjölbreyttan og gagnrýninn hátt.
Spurningakveikjur eru stuttar byrjanir á spurningum sem nemendur fylla út í með efni að eigin val. Dæmi um spurningakveikjur sem henta vel til að byrja spurnarþjálfun með nemendum eru:
- Hvað er…?
- Hver er munurinn á … og …?
- Hvernig vitum við að …?
- Hvað ef …?
Til að þjálfa nemendur í notkun spurningakveikja er gagnlegt að byrja á innlögn þar sem talað er um mikilvægi spurninga í námi. Slík innlögn þarf ekki að vera löng eða flókin eins og sjá má í þessu dæmi um glærur með skýringum og æfingadæmum (Brynhildur Sigurðardóttir, 2026).
Í kjölfar innlagnar og nokkurra æfinga með nemendahópnum er síðan hægt að fela nemendum fjölbreytt verkefni þar sem nemendurnir nota spurningakveikjur. Seinna í þessari grein tek ég dæmi um hvernig hægt er að þjálfa notkun þeirra í vettvangsferðum og við lestur.
Ég mæli ekki með því að margar spurningakveikjur séu kynntar á sama tíma. Það er betra að byrja á 3–4 kveikjum og láta nemendur nota þær í verkefnavinnu. Þegar nemendur eru farnir að venjast því að það sé verkefni að búa til spurningar þá er hægt að bæta fleiri spurningakveikjum inn í verkefnalýsingar og leiðbeiningar.
Spurningar nemenda þurfa að sjást og skipta máli
Oft fara nemendur hægt af stað í að semja spurningar með kveikjunum. En um leið og þau sjá hvaða spurningar berast frá öðrum nemendum og að spurningarnar þeirra þjóna tilgangi í skólastofunni þá getur spurningaflóðið orðið heilmikið og spenna skapast um að fá að ræða spurningarnar. Sú spenna getur breytt öllum varðandi það hvort kennara tekst að virkja nemendur í samræðum í tengslum við námið og skapa góða samræðumenningu í skólastofunni.
Það er tvennt sem kennari getur gert til að nemendur verði spenntir að ræða eigin spurningar. Í fyrsta lagi er mikilvægt að gera spurningar þeirra sýnilegar til dæmis með því að skrifa þær á töflu eða hengja þær á veggi í námsrýminu. Í öðru lagi, og kannski mikilvægast af öllu, er að gefa nemendum tíma til að velja spurningar og ræða þær í hópnum.
Ég mæli alltaf með að halda ritskoðun á spurningum nemenda í lágmarki. Ef nemendur upplifa að spurningar þeirra komast ekki óbreyttar í gegnum nálarauga kennarans getur það drepið áhuga þeirra á að fást við þær og þau sjá ekki tilganginn með því að setja fram fleiri spurningar. Nemendunum finnst þeir missa eignarhaldið á spurningunum sínum. Ég hef þó oft tekið fram við nemendahópa að ég hleypi ekki að spurningum ef þær nafngreina fólk í skólanum eða eru særandi fyrir einstaklinga í hópnum. Ég ræði líka við nemendur um hvernig þeir geti notað spurningarnar til að læra um það sem þau hafa mestan áhuga á. Í skólanum þurfum við að tala við nemendur um hvernig þeir læra, efla námsvitund þeirra, og það skiptir máli að tala um hlutverk spurninganna í því samhengi.
Til að hefja samræðu út frá spurningum nemenda er hægt að fara ýmsar leiðir og ég nefni hér tvær. Fyrri aðferðin er mjög fljótleg og felst í því að kennari setur allar spurningarnar í poka og dregur eina til umræðu. Þessi aðferð ýtir samtölum hratt af stað og sýnir nemendum að spurningarnar þeirra skipta máli í skólastofunni. Ef spurningum er fljót svarað eða umræða deyr út af öðrum ástæðum er svo bara hægt er að draga næstu spurningu úr pokanum og sjá hvað gerist. Spurningapokann má líka nota eftir að nemendum er skipt í 2–4 manna hópa þar sem hver hópur fær tækifæri til að draga sér spurningu úr pokanum og ræða í 2–5 mínútur. Að lokum getur spurningapokinn nýst vel ef að fylla þarf upp í nokkrar mínútur með bekknum í lok kennslustunda.
Hin aðferðin til að hefja samræðu út frá spurningum sem kennarinn hefur safnað frá nemendum er að gera þær sýnilegar öllum, lesa þær vandlega og láta nemendur velja fyrstu spurningu til samræðu í hópnum. Nemendur geta til dæmis greitt spurningunum atkvæði eða leyft völdum nemanda að velja fyrstu spurningu fyrir hópinn. Ef samræðan nær ekki flugi eða deyr hratt út má svo fara í þá spurningu sem fékk næstflest atkvæði eða biðja nemendur velja á annan hátt milli þeirra spurninga sem eftir standa. Svo tekur þekkingarleit og samræðuþjálfun við.
Spurningaleit
Þegar spurningakveikjur hafa verið kynntar fyrir nemendum getur skemmtileg fyrsta æfing falist í að senda nemendur af stað í spurningaleit. Spurningaleit er stutt vettvangsferð um skólann eða skólalóðina þar sem nemendur hafa spurningakveikjur með í för. Hér er dæmi um eyðublað með spurningarstofnun sem ég setti upp fyrir spurningaleit nemenda í Stapaskóla fyrir nokkrum árum. Nemendur sem voru orðin vön því að nota spurningastofna spiluðu síðan spurningabingo þar sem þau söfnuðu spurningum á bingóspjaldið sitt samhliða samræðu sem fram fór í hópnum.
Þegar kennari gefur nemendum leiðbeiningar um verkefnið er mikilvægt að tilgreina tímalengd, til dæmis 15–20 mínútur, svo allir skili sér aftur til að vinna sameiginlega úr þeim spurningum sem safnast. Kennarinn lætur nemendur hafa vinnublað með spurningastofnunum og biður þá að ganga um kunnuglegt umhverfi skólans, leita að einhverju sem vekur hjá þeim spurningar og nota spurningakveikjurnar til að skrifa þær spurningar niður. Spurningakveikjur sem geta hentað mjög vel í spurningaleit af þessu tagi eru t.d.
- Hvar …?
- Hvernig …?
- Hver er munurinn á … og …?
- Hvenær …?
- Hvað ef …?
Þegar nemendur koma til baka úr spurningaleitinni geta þau unnið á fjölbreyttan hátt úr spurningasöfnunum sínum. Nemendur í 4–5 manna hópum geta til dæmis borið spurningarnar sínar saman og flokkað þær:
- Hvaða spurningar eru skemmtilegastar og mætti ræða í bekknum?
- Hvaða spurningum gæti arkítekt skólans svarað?
- Hvaða spurningar þyrfti umsjónarkennari að taka til athugunar?
- Hvaða spurningar kalla á aðgerðir og þyrfti að senda til skólastjórans?
Kennari getur síðan skoðað hvaða tækifæri sjást í úrvinnslu og niðurstöðum hópanna. Spurningar nemenda úr spurningaleit í nærumhverfinu geta reynst dýrmætar kveikjur að verkefnum í tengslum við umhverfismennt eða umferðarfræðslu, þjálfun í lýðræðislegum vinnubrögðum eða umfjöllun um samfélagsleg málefni eins og til dæmis eru tekin til umfjöllunar í námsefninu Ég og samfélagið sem ætlað er nemendum á miðstigi (Garðar Gíslason og Blær Guðmundsdóttir, 2024). Kennari getur virkjað nemendur til að velja skemmtileg umræðuefni úr spurningasafni nemenda og skipulagt tíma til dýpri samræðu í hópnum. Einnig geta spurningar nemenda orðið hvati að umbótaverkefnum og lykill að því að virkja getu nemenda til aðgerða. Geta nemendur beitt sér fyrir umbótum innan skólans? Nýtast spurningar þeirra til að rannsaka ákveðin mál í nærsamfélaginu og kalla eftir aðgerðum sem þörf er á?
Hvort viltu frekar…?
„Hvort viltu frekar …“ spurningakveikjur geta verið mjög skemmtilegar og ýta á mjög fljótlegan hátt undir skoðanaskipti nemenda. Dæmi um slíkar spurningar eru:
- Hvort viltu frekar geta flogið eða vera ósýnilegur?
- Hvort viltu frekar bara geta sent textaskilaboð eða bara geta hringt símtöl?
- Hvort viltu frekar hafa heimavinnu alla daga eða taka próf alla föstudaga?
Þótt hægt sé að finna mikið úrval af þessum spurningum á netinu getur verið ennþá skemmtilegra að fá þessar valkostaspurningar frá nemendum. Hægt er að láta nemendur hafa skapalón að glærum þar sem þeir eiga að stilla upp tveimur valkostum annað hvort í myndum eða texta. Síðan getur hópurinn skoðað og rætt spurningar allra í hópnum bæði til gagns og gamans.
Að nota spurningar og samræður við lestur
Gagnvirkur lestur er mikið rannsökuð og áhrifarík kennsluaðferð til að efla lesskilning nemenda (Anna Guðmundsdóttir, 2007; Hafþór Guðjónsson, 2018). Eitt af skrefunum sem lesendum eru kennd í aðferðinni er að setja fram spurningar um textann sem lesinn er og það er tilvalið að nýta spurningakveikjur til að hjálpa nemendum af stað með þetta verkefni. Það er líka gagnlegt að kenna nemendum að þekkja ólíkar gerðir spurninga eins og til dæmis er fjallað um í kennsluseðlinum Fjórar gerðir spurninga á Læsisvefnum (Menntamálastofnun, 2020). Þar er fjallað um muninn á staðreyndaspurningum, ályktunarspurningum og spurningum um skoðanir fólks en þessir ólíku flokkar spurninga gegna allir mikilvægum hlutverkum í eflingu lesskilnings.
Til að þjálfa nemendur við að spyrja um inntak og merkingu texta er til dæmis hægt að raða nemendum í pör sem lesa saman ákveðinn texta. Í kjölfarið nota þau síðan safn af spurningakveikjum til að semja spurningar um efni textans (sjá t.d. þessa verkefnalýsingu). Kennarinn getur sett spurningakveikjurnar á vinnublað sem nemendur fylla út. Ég hef líka haft spurningakveikjur á litlum miðum sem nemendur sóttu á borð í miðri stofunni og í því tilviki fór af stað mikil keppni um hvaða par gæti skrifað flestar og fjölbreyttastar spurningar. Í lok kennslustundar voru um 50 spurningamiðar komnir upp á vegg og allar spurningarnar tengdust efni örsögu sem vara bara um 250 orð að lengd.
Hægt er að vinna á fjölbreyttan hátt með þau spurningasöfn sem verða til í lestrarpörum. Nemendur geta skipst á spurningum og svarað spurningum sem aðrir nemendur hafa sett fram. Hægt er að lesa spurningarnar sjálfar og sjá hvað þær eiga sameiginlegt, flokka þær í lesskilningsflokkana, eftir inntaki eða mögulegri úrvinnslu eins og dæmi var tekið um fyrr í þessari grein. Að lokum er hægt að skilgreina hvaða spurningar úr safninu geti skapað spennandi samræðu í bekknum og vinna með þær þegar tími er til dýpri ígrundunar.
Lokaorð
Í þessari grein hef ég fjallað um mikilvægi þess að leggja rækt við spurningar nemenda í skólastofunni og bent á nokkrar leiðir sem kennarar geta farið í þessu samhengi. Spurningar nemenda eru forsenda fyrir því að kennara takist að skapa merkingarbæra og spennandi samræðu sem dýpkar og eflir nám nemenda. Kennarar sem vilja halda áfram og kynna sér betur hvernig þeir geta eflt samræðu í nemendahópunum sínum geta nýtt sér námsefni sem til er á íslensku.
Á vef Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu má nálgast bókina 68 æfingar í heimspeki eftir Jóhann Björnsson (2014) þar sem settar eru fram fjölmargar hugmyndir að samræðuverkefnum og kennsluleiðbeiningar til kennara. Námsefnið Hvað heldur þú? eftir Brynhildi Sigurðardóttur og Ingimar Waage (2015) felst í nemendabók og kennsluleiðbeiningum sem hægt er að nota til að efla samræðu og kenna gagnrýna hugsun á markvissan hátt. Að lokum vil ég líka benda á vefinn Verkefnabanki heimspekitorgsins þar sem birt eru yfir 70 verkefni og kennsluleiðbeiningar sem nýtast í samræðuþjálfun á öllum skólastigum. Ég hvet alla kennara til að prófa að minnsta kosti eitt spurninga- og/eða samræðuverkefni í hverri viku og gera það að skýru markmiði að byggja upp samræðumenningu með nemendum. Það er mikilvægt skref til að auka gæði náms.

Heimildir
Aðalnámskrá grunnskóla: Greinasvið 2024.
Anna Guðmundsdóttir. (2007). Lesið til skilnings. Kennarahandbók í gagnvirkum lestri. Námsgagnastofnun. https://vefir.mms.is/lesid_til_skilnings/lesidtilskilnings_klb.pdf
Anna Kristín Sigurðardóttir, Berglind Gísladóttir, Birna María B. Svanbjörnsdóttir, Guðmundur Engilbertsson, Hermína Gunnþórsdóttir, Jóhann Örn Sigurjónsson, Rannveig Oddsdóttir, Rúnar Sigþórsson og Sólveig Zophoníasdóttir. (2026). Gæði kennslu. Námstækifæri fyrir alla nemendur. Skólaþræðir. Tímarit samtaka áhugafólks um skólaþróun. https://skolathraedir.is/2026/09/16/gaedi-kennslu-namstaekifaeri-fyrir-alla-nemendur/
Berglind Gísladóttir, Sólveig Zophoníasdóttir og Jóhann Örn Sigurjónsson. (2025). Samræðumiðuð kennsla. Í Anna Kristín Sigurðardóttir, Hermína Gunnþórsdóttir og Rúnar Sigþórsson (ritstjórar), Gæði kennslu. Námstækifæri fyrir alla nemendur (bls. 76-94). Háskólaútgáfan.
Brynhildur Sigurðardóttir. (2026). Lærum í samræðu [glærukynning á canva.com]. https://canva.link/elkfc48gsctpb32
Brynhildur Sigurðardóttir og Ingimar Waage. (2015). Hvað heldur þú? Um gagnrýna hugsun. Námsgagnastofnun. https://vefir.mms.is/flettibaekur/namsefni/hvadheldurthunem/
Hafþór Guðjónsson. (2018). Hvers vegna skilar gagnvirkur lestur árangri? Skólaþræðir. Tímarit samtaka áhugafólks um skólaþróun. https://skolathraedir.is/2018/05/04/hvers-vegna-skilar-gagnvirkur-lestur-arangri/
Garðar Gíslason og Blær Guðmundsdóttir. (2024). Ég og samfélagið. Miðstöð menntunar og skólaþjónustu. https://vefir.mms.is/flettibaekur/namsefni/eg_og_samfelagid/
Ingvar Sigurgeirsson. (2016). Listin að spyrja: handbók fyrir kennara (endurskoðuð útgáfa). Sögur.
Jóhann Björnsson. (2014). 68 æfingar í heimspeki. Menntamálastofnun. https://vefir.mms.is/flettibaekur/namsefni/sextiuogatta_aefingar/
Menntamálastofnun. (2020). Fjórar gerðir spurninga. Question-answer relationship (QAR). Læsisvefurinn. https://laesisvefurinn.is/wp-content/uploads/2020/01/fjorar_gerdir_spurn_2020.pdf
Nottingham, J. (2017). The learning challenge. How to guide your students through the learning pit to achieve deeper understanding. Sage.
Um höfund
Brynhildur Sigurðardóttir (brynhildur(hjá)midstodmenntunar.is) útskrifaðist með B.Ed. frá Kennaraháskóla Íslands 1994 og lauk M.Ed. með áherslu á barnaheimspeki frá Montclair State University, NJ, 1999. Árin 1999-2002 stundaði hún doktorsnám í menntunarfræðum við sama háskóla en lauk ekki þeirri gráðu. Hún hóf kennslu í Síðuskóla á Akureyri, starfaði í tæp 20 ár sem kennari og skólastjórnandi við Garðaskóla í Garðabæ og kenndi í þrjú ár við Stapaskóla í Innri-Njarðvík. Hún hefur aðallega kennt á unglingastigi en hefur einnig kennt og haft umsjón með námskeiðum um samræðumiðaða kennslu og gagnrýna hugsun við kennaradeildir á Íslandi og við Montclair State, samhliða náminu þar. Nú gegnir hún starfi sérfræðings í málefnum aðalnámskrár grunnskóla hjá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.


Fríða Gylfadóttir og Tinna Ösp Arnardóttir
Ása Helga Proppé Ragnarsdóttir og Hákon Sæberg Björnsson
