QUINT rannsóknin

Að rækta spurningar nemenda

6. október, 2026

Brynhildur Sigurðardóttir

Í þessari grein fjalla ég um listina að rækta spurningar nemenda. Ég vil halda því fram að forsenda fyrir því að nemendur taki þátt í og læri af samtölum um fræðileg efni sé að samræðan hefjist á þeirra eigin spurningum.

Ég vona að allir kennarar hafi lesið, eða séu að lesa bókina Gæði kennslu. Námstækifæri fyrir alla nemendur sem höfundar drógu saman í nýlegum greinum á Vísi og hér í Skólaþráðum (Anna Kristín Sigurðardóttir o.fl., 2026). Bókin segir frá niðurstöðum QUINT-rannsóknarinnar þar sem kennsluhættir í skólastofum á Norðurlöndunum voru skoðaðir. QUINT stendur fyrir Quality in Nordic Teaching og rannsóknin gefur okkur dýrmætt tækifæri til að skoða hvað einkennir kennsluhætti í íslenskum grunnskólum og ígrunda hvernig við getum bætt þá til að auka gæði náms hjá nemendum okkar. (meira…)

Færslusafn

Fara íTopp