Anna Kristín Sigurðardóttir, Berglind Gísladóttir, Birna María B. Svanbjörnsdóttir, Guðmundur Engilbertsson, Hermína Gunnþórsdóttir, Jóhann Örn Sigurjónsson, Rannveig Oddsdóttir, Rúnar Sigþórsson og Sólveig Zophoníasdóttir
Í maí 2026 birtu höfundar greinaflokk á visir.is sem fjallaði um gæði kennslu frá ýmsum sjónarhornum. Greinarnar voru eftirfarandi:
- Grein 1: Gæði kennslu: Vandaðir kennsluhættir lykillinn að gæðum menntunar
- Grein 2: Gæði kennslu: Farsæld sem markmið menntunar
- Grein 3: Gæði kennslu: Endurgjöf, vitsmunaleg áskorun og samræður í skólastofunni
- Grein 4: Gæði kennslu: Læsiskennsla á unglingastigi
Vorið hafði einkennst af frekar neikvæðri umfjöllun um nám og kennslu og meint árangursleysi nemenda, sérstaklega í lestri, og háværar raddir voru um ýmsar skyndilausnir sem höfðu ekki endilega sterkt samhengi við kennslufræði. Markmið höfunda með greinaflokknum var að draga athyglina að því sem okkur sýnist brýnast að leggja áherslu á í umræðunni um menntamál og er vænlegt til að skila árangri út frá niðurstöðum rannsókna. Greinarnar byggjum við m.a. á niðurstöðum QUINT (e. Quality in Nordic Teaching) rannsóknarinnar sem veita mikilvægar og áreiðanlegar upplýsingar um hvar skórinn kreppir í kennslunni og hvernig við getum brugðist við. Umræðan um menntamál síðustu daga í kjölfar niðurstaðna PISA-könnunarinnar (e. Programme for International Student Assessment) varð síðan aftur kveikjan að því að endurbirta þennan greinaflokk í einu lagi í Skólaþráðum – á vettvangi skólafólks – með góðfúslegu leyfi frá visir.is. Með því viljum við árétta enn og aftur að skyndilausnir eru ekki í boði frekar en fyrri daginn.
Vandaðir kennsluhættir lykillinn að gæðum menntunar
Það er stöðugt viðfangsefni allra sem vinna í menntakerfinu og stjórnvalda á hverjum tíma að auka gæði menntunar. Í þessum upphafskafla greinarinnar beinum við sjónum að kennsluháttum en þeir eru sá þáttur í starfi skóla sem hefur mest áhrif á gæði og árangur menntunar. Því ættu stjórnvöld að beina athygli og orku að öllu því sem styrkir daglegt starf í skólastofum landsins.
Á undanförnum árum hefur stór hópur rannsakenda í átta háskólum á Norðurlöndum einbeitt sér að því að greina og þróa gæði kennslu í norrænum skólastofum í rannsóknarverkefninu QUINT, þar á meðal voru Háskóli Íslands og Háskólinn á Akureyri. Tilgangur rannsóknarinnar var að veita innsýn í gæði kennslu á unglingastigi grunnskóla í þremur námsgreinum: íslensku, stærðfræði og samfélagsfræði. Byggt var á myndupptökum í kennslustundum í 8. bekk og þær greindar kerfisbundið með sérstökum matsramma. Sjónarhornið beindist einkum að því að greina tengsl kennslu og árangurs nemenda og að rannsaka hvernig myndupptökur af kennslu nýtast í starfsþróun kennara og í kennaramenntun. Rannsóknarverkefnið QUINT var styrkt af NordForsk og stýrt frá Háskólanum í Osló.
Stuðst var við matsramma, PLATO (e. Protocol for Language Arts Teaching Observation), sem byggir á vel ígrunduðum rannsóknarniðurstöðum um gæði kennslu. Samkvæmt honum eru viðmið um gæði kennslu flokkuð á fjögur meginsvið. Í fyrsta lagi að hvaða marki eru gerðar viðeigandi faglegar kröfur til nemenda, m.a. um þjálfun í að rökstyðja skoðanir sínar. Í öðru lagi hvort nemendur fái nægan stuðning við námið. Þriðji þátturinn varðar framsetningu kennarans á námsefni og lykilhugtökum og í fjórða lagi er athygli beint að bekkjar- og tímastjórnun kennarans.
Niðurstöður rannsóknarinnar hafa birst í fjölmörgum greinum og bókum, bæði innlendum og erlendum (sjá t.d. heimildaskrá). Þær benda til að í íslenskum skólum sé ýmislegt vel gert þótt gera megi betur í flestum þeim þáttum sem mældir voru. Til dæmis reyndust íslenskir kennarar vera góðir í að skapa jákvætt og vingjarnlegt andrúmsloft í skólastofunni en mættu gera meiri faglegar kröfur til nemenda. Myndupptökur af kennslustundum reyndist vera árangursrík leið í starfsþróun kennara. Ein dýrmætasta afurð verkefnisins er aukinn skilningur og þekking á því hvernig kennarar geta bætt gæði eigin kennslu, ásamt gagnlegum verkfærum þeim til stuðnings.
Hagnýting niðurstaðna og tillögur
Á grundvelli niðurstaðna settu rannsakendur fram tillögur í fimm liðum um leiðir til að styrkja kennsluhætti. Þeim er beint til skóla og yfirvalda menntamála hjá ríki og sveitarfélögum og eru settar fram:
- Efla vandaða starfsþróun fyrir kennara sem byggir á bestu fyrirliggjandi þekkingu um fyrirkomulag farsællar starfsþróunar. Styðja við verkefni sem fela í sér samstarf rannsakenda og kennara, til dæmis með sameiginlegum námskeiðum eða vinnustofum.
- Nýta myndupptökur í starfsþróun kennara og í kennaramenntun til að brúa bilið milli fræða og starfs, meðal annars með uppbyggingu á gagnasafni (myndupptökum) og með notkun greiningarramma til að rýna kennslu.
- Leggja áherslu á notkun vel ígrundaðra matsramma um gæði kennslu til að stuðla að vönduðum kennsluháttum í öllum skólastofum.
- Efla kennsluhætti í fjölmenningarlegum skólastofum til samræmis við stefnu um skóla margbreytileikans.
Í kjölfar QUINT-rannsóknarinnar voru tvö umfangsmikil og hagnýt rannsóknarverkefni sem byggja á niðurstöðum QUINT styrkt af íslenskum samkeppnissjóðum. Menntarannsóknasjóður styrkti rannsóknar- og þróunarverkefni þar sem 16 grunnskólakennarar í Múlaþingi og Reykjavík leituðust við að þróa kennslu sína með hliðsjón af myndupptökum og PLATO. Auk þess stendur yfir umfangsmikil rannsókn, styrkt af RANNÍS, sem miðar að því að bæta gæði kennaramenntunar í samstarfi Háskóla Íslands og Háskólans á Akureyri. Þar er meðal annars lögð áhersla á að kennaranemar geri myndupptökur í eigin kennslu í vettvangsnámi, og greini þær og rýni út frá greiningarramma og ígrundi með leiðsagnarkennara sínum í skólanum. Bæði þessi verkefni byggja á virku samstarfi kennaramenntastofnana og kennara á vettvangi og munu skila mikilvægum upplýsingum fyrir íslenskt menntakerfi.
Farsæld sem markmið menntunar
Í breyttri heimsmynd nútímans er menntun sem býr einstaklinga undir að lifa og starfa í ófyrirséðum heimi framtíðar öflugasta leið samfélaga til framfara og farsældar. Í samræmi við þetta má um þessar mundir sjá vaxandi áherslu alþjóðastofnana á borð við OECD og UNESCO á að færa markmið menntunar í átt að farsæld einstaklinga og samfélaga (e. flourishing as the aim of education). Farsæld felur í sér heildstæðan þroska einstaklinga og hæfni þeirra til að taka virkan og ábyrgan þátt í samfélaginu og þróun þess, vega og meta aðstæður, takast á við ófyrirsjáanlegar áskoranir, leysa ágreining og taka ígrundaða siðferðislega afstöðu til mannlegra athafna. Menntun sem miðar að þessu marki felst m.a. í því að nemendur fái tækifæri til að þróa með sér forvitni og hugmyndaflug; seiglu og sjálfstjórn til að takast á við mistök og höfnun og halda áfram í mótlæti og að þeir læri að virða og meta hugmyndir, sjónarmið og gildi annarra. Áhugahvöt þeirra þarf að beinast að fleiru en voninni um að fá gott starf og háar tekjur; þeir munu líka þurfa að hugsa um velferð annarra, fjölskyldu og vina, og ekki síst velferð samfélagsins og plánetunnar.
Farsæld sem markmið menntunar og hlutverk kennara
Það er auðvelt að færa rök fyrir mikilvægi þess að beina sjónum að hlutverki kennara við að ná framangreindum markmiðum menntunar og hafa þau áhrif á nemendur að þeir skilji sjálfa sig sem hluta af stærri heild sem hafi hlutverk og sjálfsvald (e. agency) til að hafa áhrif á eigin líf og annarra. Til þess þarf meðal annars að viðurkenna og vinna með styrkleika og sérkenni einstaklinga og leitast við að skilja tengsl nemenda við kennara sína, félaga, fjölskyldur og samfélagið, því allt hefur þetta áhrif á nám nemenda og hvatann til náms.
Menntakerfið þarf einnig að breytast til að þjóna samfélagslegu hlutverki sínu og styðja við breytt hlutverk kennara. Það þarf að verða hluti af samfélagslegu vistkerfi þar sem hagsmunaaðilar axla sameiginlega ábyrgð á farsæld og þroska nemenda og bera faglega ábyrgð á endurgjöf og umbótum. Viðurkenna þarf í verki að nemendur séu ólíkir og fari ólíkar leiðir í námi og að námsferli og námsreynsla þeirra sé ekki síður mikilvæg en mælanlegur lokaárangur. Til þess þarf fjölbreytt námsmat þar sem nemendur eiga virka aðild að ákvörðunum um eigið nám.
Gæði kennslu – gæði náms
Kennsla á framangreindum forsendum felur óhjákvæmilega í sér samskipti kennara og nemenda og ekki er unnt að tala um hana án þess að hafa slík tvíhliða samskipti í huga. Í öðru lagi felur kennsla í sér þann ásetning kennara að virkja nemendur og beina athygli þeirra að tilteknum þáttum og í þriðja lagi þarf kennslan að hafa tilgang sem skólakerfið – og raunar samfélagið allt – hefur komið sér saman um. Síðast taldi þátturinn felur í sér:
- hæfni sem samanstendur af þekkingu, leikni og siðferðilegum gildum og býr nemendur undir framtíðina,
- félagsmótun sem býr ungt fólk undir að skapa sér stöðu í samfélagi framtíðarinnar og eiga uppbyggileg félagsleg samskipti við aðra,
- sjálfstæði og ábyrgð við að móta eigin líf og hafa áhrif á samfélagið.
Það blasir við að opinber námskrá sem er trú framangreindri sýn á menntun getur ekki byggst á forskriftum fyrir kennara, heldur verða þeir að hafa traust samfélagsins, frelsi og sjálfræði til þess að móta sína eigin námskrá á grunni hennar. Með öðrum orðum þurfa kennarar að skapa nemendum námstækifæri, á grunni námskrárinnar, til þess að ná þeim árangri sem hér hefur verið lýst. Námstækifærin skapast af öllu því sem kennarinn gerir til þess að nemendur læri og nái árangri. Þau eru þó ekki yfirráðasvæði kennarans eins heldur vettvangur þar sem ofinn er sá flókni vefur samskipta kennara og nemenda, og á milli nemenda, sem liggur öllu námi til grundvallar.
Starfsþróun kennara
Eðli málsins samkvæmt byggist sú kennsla sem skapar nemendum varanleg námstækifæri á hæfni kennara og því að þeir þrói hana til samræmis við markmið menntunar og hlutverk skólans á hverjum tíma. Þess vegna þarf undirbúningur fyrir slíka kennslu að vera snar þáttur í grunnmenntun kennara og í starfsþróun sem starfandi kennarar fá tækifæri og stuðning til að efla hæfni sína til að skapa nemendum varanleg námstækifæri. Öflugasta leiðin til þess er að byggja skóla upp sem fagleg lærdómssamfélög þar sem stjórnendur og kennarar vinna í teymum, læra hver af öðrum og hver með öðrum, taka sameiginlega ábyrgð á námi og farsæld nemenda og gera ráð fyrir þátttöku þeirra í ákvörðunum. Til þess þurfa skólar öflugan stuðning sem er á ábyrgð ríkis og sveitarfélaga.
Endurgjöf, vitsmunaleg áskorun og samræður í skólastofunni
Niðurstöður síðustu PISA-könnunar hafa vakið áhyggjur og umræður á Íslandi. PISA mælir skilning, rökhugsun og getu nemenda til að beita þekkingu, til dæmis í nýjum aðstæðum. Verkefnin gera miklar kröfur til lesskilnings, að nemendur skilji hvað er verið að spyrja um, geti valið viðeigandi aðferðir til að leysa viðfangsefni og rökstutt lausnir sínar.
Margir velta fyrir sér hvers vegna árangurinn í PISA er ekki betri en raun ber vitni og hvað megi gera til að bæta stöðuna. Í þeirri umræðu er mikilvægt að forðast einfaldar skýringar en byggja frekar á því sem rannsóknir segja okkur um nám og kennslu. Því er eðlilegt að leita skýringa í því hvernig kennsla styður, eða styður ekki nægilega, slíka hugsun og hæfni.
Rannsókn á kennslu
QUINT-rannsóknin er dæmi um rannsókn á gæðum kennslu sem getur veitt mikilvæga innsýn í kennsluhætti ekki síst vegna þess að í rannsókninni er sjónum beint að kennslunni sjálfri og því hvernig kennsla fer fram í daglegu skólastarfi. Með rannsókninni gefst einnig möguleiki á samanburði á kennsluháttum á Norðurlöndum.
Niðurstöður rannsóknarinnar sýna meðal annars að á Íslandi líður nemendum almennt vel í skólanum og kennarar leggja sig fram við að styðja þá. Þetta eru mikilvæg gæði sem ekki má vanmeta. Svör nemenda við spurningum um kennsluhætti og námsumhverfi í tengslum við rannsóknina styðja þetta enn frekar og benda til þess að þeir séu almennt ánægðir með kennarana sína. Samhliða þessu benda niðurstöður til þess að nemendum sé ekki alltaf nægilega ljóst hvað þeir eiga að læra og hvers vegna það skiptir máli. Þannig vinna nemendur oft verkefni án þess að námsmarkmið séu skýr og sýnileg, sem gerir þeim erfiðara fyrir að tengja verkefnin við fyrra nám og viðmið um þá hæfni sem stefnt er að.
Gæði kennslu
Skýr námsmarkmið hjálpa nemendum að beina athyglinni að því sem skiptir máli í námi, skipuleggja hugsun sína og meta eigið nám. Þegar markmiðin eru óljós getur námið orðið yfirborðskennt og vitsmunaleg áskorun (röksemdafærsla, ályktunarhæfni og greinandi hugsun nemenda) veik. Rannsóknir benda til að endurgjöf kennara sem tengd er við námsmarkmið nemenda er lykilatriði í að upplýsa þá um námsframvindu, leiðbeina þeim um hvernig þeir geti bætt sig og stuðlar að því að þeir nái settum markmiðum. Aftur á móti veitir almenn og óljós endurgjöf, til dæmis í formi hróss, ófullnægjandi upplýsingar og beinist síður að því að efla hugsun og nám nemenda.
Kennsla þar sem nemendur eru hvattir til að taka virkan þátt í eigin námi styður við hæfni þeirra til að beita þekkingu, rökstyðja lausnir og yfirfæra skilning á nýjar aðstæður. Niðurstöður QUINT rannsóknarinnar sýna glöggt að nauðsynlegt er að fjölga tækifærum nemenda til að útskýra hugmyndir sínar, bera saman lausnir og ræða þær. Þær sýna einnig mikilvægi þess að staldra við í kennslunni og gefa nemendum svigrúm til að byggja upp skilning, í stað þess að fara hratt yfir verkefni eða námsefni og halda áfram án nægilegs skilnings. Niðurstöðurnar sýna enn fremur fram á nauðsyn þess að auka vitsmunalega áskorun í kennslu og námi með því að leggja meiri áherslu á að nemendur beiti greinandi hugsun og dýpki skilning sinn með merkingarbærum viðfangsefnum. Til dæmis þarf að gæta þess, þegar kennari aðstoðar nemendur við verkefni , að hugsunarvinnan sé áfram þeirra en ekki kennarans eða þess sem aðstoðar.
Niðurstöðurnar sýna ýmis dæmi um gæði kennslu þar sem samvinna nemenda er í fyrirrúmi, þeir ræða saman um námið, útskýra og færa rök fyrir máli sínu. Þá eykst vitsmunaleg áskorun með markvissum hætti og námið verður ekki aðeins æfing í aðferðum heldur þjálfun í hugsun. Skilningur dýpkar þegar nemendur fá tækifæri til að orða eigin hugmyndir og setja þær í stærra samhengi. Þannig þróast skilningur og hæfni í gegnum vitsmunalega áskorun, skýr markmið, endurgjöf og samræður.
Læsiskennsla á unglingastigi
Hjá flestum þjóðum er læsi talið einn af hornsteinum farsællar menntunar og grundvallarforsenda þess að ná árangri í hvaða námsgrein sem er. Ísland er þar engin undantekning. Læsi er einn af grunnþáttum menntunar í íslenskri menntastefnu og kennsla í læsi á að fléttast inn í allar námsgreinar. Læsi gegnir einnig mikilvægu hlutverki til að ná viðmiðum um lykilhæfni nemenda sem sett eru í Aðalnámskrá grunnskóla. Lykilhæfnin miðar að því að þroska sjálfsvitund og samskiptahæfni nemenda og búa þá undir þátttöku í lýðræðissamfélagi og frekara nám. Læsi í þessum skilningi gengur mun lengra en sú tæknilega færni sem nemendur þurfa til að geta umskráð texta. Samkvæmt skilgreiningum OECD og UNESCO felur það í sér hæfni til að greina, skilja, túlka og nota ritað mál í mismunandi samhengi. Læsi er auk þess ein af meginundirstöðum menntunar og forsenda þess að geta metið og nýtt sér fjölbreyttar upplýsingar, til dæmis úr rituðum texta, og miðlað upplýsingum til annarra. Læsi er því langt frá því að vera fullmótað þegar einstaklingur hefur náð þeim áfanga að geta lesið lipurt því hann þarf einnig að þróa lesskilning sinn, og færni í ritun og miðlun. Þess vegna er nauðsynlegt að kennarar láti ekki staðar numið í læsiskennslu þegar nemendur hafa náð tæknilegri færni heldur sé markviss læsiskennsla óaðskiljanlegur hluti af kennsluskipulagi kennara í öllum námsgreinum og á öllum skólastigum. Þetta er meðal annars undirstrikað í nýrri skýrslu um árangursríka starfshætti í læsiskennslu sem unnin var af alþjóðlegu teymi læsisfræðinga.
Árangursrík læsiskennsla
Kennslufræðingar á sviði læsis leggja áherslu á að kennarar skipuleggi fjölbreyttar lestrarathafnir sem mæta misjöfnum þörfum nemenda; vinni markvisst með sköpun merkingar, ritun og munnlega tjáningu og séu fundvísir á áhugaverða texta til að leggja til grundvallar kennslunni. Rannsóknir gefa einnig til kynna að kennsluaðferðir sem byggjast á samræðum, ásamt markvissum aðferðum við að byggja upp lesskilning nemenda og kenna þeim að sækja upplýsingar í texta skila bestum árangri. Ritun nemenda er einnig góð leið til að efla lesskilning. Hún gagnast nemendum ekki einungis í þeirra eigin textagerð heldur hjálpar hún þeim líka að skilja texta sem aðrir hafa skrifað.
Textavinna á unglingastigi grunnskóla
Samræður í skólastofunni og kennsla með textum þar sem nemendur þurfa að beita greinandi rökhugsun er meðal þess sem talið er einkenna góða kennslu. Í íslenskum hluta QUINT-rannsóknarinnar var kannað hvernig unnið var með texta í 76 kennslustundum íslensku og samfélagsfræði í 8. bekk. Við þá athugun fundust samtals 24 verkefni þar sem textar voru notaðir á heildstæðan hátt þannig að viðfangsefni nemenda mátti tengja við framangreindar skilgreiningar á læsi og læsisnámi. Vinnan við hvert verkefni stóð í mislangan tíma, frá einni kennslustund, eða stærstum hluta hennar, upp í fjórar kennslustundir. Textarnir í þessum viðfangsefnum voru flokkaðir í fjóra flokka: bókmenntatexta, fræðilega texta í námsbókum, upplýsingatexta sem skrifaðir eru fyrir almenning og annan texta, þar sem einkum var um að ræða ritun nemenda.
Greining á vinnulagi nemenda leiddi í ljós að í helmingi þessara heildstæðu verkefna voru viðfangsefni nemenda yfirborðsleg; texti var lesinn en lítið unnið með hann eða texti var lesinn heima og nemendur svöruðu spurningum um þekkingaratriði, munnlega eða skriflega. Í hinum helmingi verkefnanna unnu nemendur hins vegar með textann á fjölbreyttan og skapandi hátt í því augnamiði að skilja textann betur og ná færni í að beita hugtökunum sem fjallað var um í stærra samhengi þannig að úrvinnslan reyndi á sjálfstæði, sköpun og ályktunarhæfni nemenda.
Í þessum verkefnum mátti sjá dæmi sem hægt er að læra af til að styrkja skapandi vinnu sem byggð er á textalæsi. Til dæmis vel útfært viðfangsefni sem samþætti samfélagsfræði og íslensku og sýnir vel að textavinna þarf ekki – og á ekki – að vera bundin við íslensku. Einnig sáust dæmi um hvernig hægt er að vinna á skapandi hátt bæði með bókmenntatexta, fræðilega texta og upplýsingatexta með því að kafa í þá, ræða um þá undir handleiðslu kennara og tjá, munnlega og skriflega, skilning sinn og viðbrögð við því sem í textunum stendur. Dæmin sýna einnig hvernig hægt er að kenna nemendum aðferðir við að lesa og leita upplýsinga í textum sem fjalla um flókin málefni og kynna þær fyrir öðrum og hvernig hægt er að leiðbeina þeim við að leita upplýsinga á markvissan hátt á vef og setja þær fram í rituðu máli með tiltekinn lesendahóp í huga. Loks er ástæða til að vekja athygli á því að mörg verkefnanna fólu í sér mikla vitsmunalega áskorun fyrir nemendur. Þau reyndu á túlkun og ályktanir og greinandi hugsun þar sem nemendur þurftu að taka saman upplýsingar, leggja mat á þær og rökstyðja niðurstöður og afstöðu.
Lokaorð
Það er stöðugt viðfangsefni allra sem vinna í menntakerfinu og stjórnvalda á hverjum tíma að auka gæði menntunar. Í þessari grein höfum við beint sjónum að kennsluháttum en þeir eru sá þáttur í starfi skóla sem hefur mest áhrif á gæði og árangur menntunar. Því ættu stjórnvöld að beina athygli og orku að öllu því sem styrkir daglegt starf í skólastofum landsins. Flókin úrlausnarefni og þróun menntamála verða ekki leyst með einföldum skyndilausnum og átökum, en mun frekar með aðkomu kennara í samstarfi við rannsakendur, yfirvöld menntamála og aðra í lærdómssamfélagi skólakerfisins. Á þeim grunni má byggja faglega forystu í menntamálum til framtíðar.
Þegar niðurstöður PISA eru skoðaðar í ljósi rannsókna á gæðum kennslu, eins og QUINT, verður ljóst að betri árangur næst ekki með því að leggja áherslu á umfang eða yfirferð, heldur þarf að beina sjónum að kennsluháttum sem byggja undir skilning, rökhugsun og dýpra nám nemenda.
Af QUINT niðurstöðunum má draga þá ályktun að þörf sé á að fjölga viðfangsefnum, í íslensku, samfélagsfræði og stærðfræði, sem fela í sér vitsmunalega áskorun, reyna á skilning, túlkun, ályktanir og greinandi hugsun nemenda; og kenna þeim að leita upplýsinga og miðla þeim til annarra. Til þess þarf læsismenntun að vera snar þáttur í grunnmenntun kennara og veigamikil í starfsþróun þeirra enda bendir fjöldi rannsóknarniðurstaðna til þess að hæfni kennara hafi úrslitaáhrif á námstækifæri nemenda. Í starfsþróun þarf að sameina það sem best er vitað um árangursríka læsiskennslu og það sem best er vitað um árangursríkt skipulag starfsþróunar þar sem kennarar fá tækifæri og stuðning til að endurskoða og þróa kennsluhætti sína.
Í greininni höfum við lýst framtíðarsýn um það hvernig menntun getur orðið afl til framfara og farsældar einstaklinga jafnt sem samfélaga. Slíkt menntakerfi er hluti af samfélagslegu vistkerfi, sem axlar sameiginlega ábyrgð á námi nemenda og umbótum á öllum stigum skólakerfisins. Síðast en ekki síst höfum við fært rök fyrir því að skólar og kennarar séu sá grunnur sem menntakerfi af þessu tagi byggist á og þess vegna sé brýnt að í grunnmenntun og starfsþróun kennara sé fjallað um það á markvissan hátt hvernig sá flókni vefur sem ofinn er í samskiptum nemenda og kennara getur leitt til farsællar og árangursríkrar menntunar sem býr nemendur undir framtíð þar sem margt er á huldu og fátt í hendi annað en breytingarnar.
Ef við viljum bæta hæfni nemenda til að skilja viðfangsefni náms og leysa þau, þarf að ræða gæði kennslu af yfirvegun, byggja á gögnum og tryggja kennurum aðgang að faglegum stuðningi og markvissri starfsþróun. Leggja þarf áherslu á að þróa sameiginlegan fagorðaforða um kennslu og kennsluhætti, sem gerir kennurum kleift að ræða kennslu á skipulegan og markvissan hátt, rýna í eigin starfshætti og læra hver af öðrum. Slíkur sameiginlegur skilningur styrkir faglega samræðu og kennslu sem byggir markvisst undir skilning og hæfni nemenda. Þannig er áherslan ekki á róttækar breytingar heldur vel skipulagða og markvissa starfsþróun sem stuðlar að samstarfsmenningu og rýni í eigið starf.

Heimildir
Anna Kristín Sigurðardóttir, Hermína Gunnþórsdóttir og Rúnar Sigþórsson (ritstj.). (2025). Gæði kennslu. Námstækifæri fyrir alla nemendur. Háskólaútgáfan. https://haskolautgafan.is/products/gaedi-kennslu-namstaekifaeri-fyrir-alla-nemendur?taxon_id=4
Klette, K., Magnusson, C.G. og Sigurjónsson, J.Ö. (ritstj.). (2026). Investigating teaching quality through video capture: Equity and quality in Nordic classrooms. Springer. https://link.springer.com/book/10.1007/978-3-032-06893-4
Klette, K., Luoto, J.M., Magnusson, C.G. & White, M.C. (2025) Protocol for Language Arts Teaching Observation (PLATO) as a lens for assessing teaching quality. School Effectiveness and School Improvement, 36(3), 414-432. https://doi.org/10.1080/09243453.2025.2527728
Um höfunda
Anna Kristín Sigurðardóttir er prófessor á sviði menntaforystu og skólaþróunar við Menntavísindasvið HÍ. Hún er sérkennari að mennt og lauk PhD gráðu frá Háskólanum í Exeter. Rannsóknir hennar beinast að kennslu og forystu í skólakerfinu.
Berglind Gísladóttir (berglindg(hjá)hi.is) er dósent við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Hún lauk B.Ed.-gráðu frá Kennaraháskóla Íslands árið 2002, M.Ed.-gráðu í stærðfræðimenntun frá Háskólanum í Reykjavík árið 2007 og doktorsprófi í stærðfræðimenntun frá Columbia-háskóla í New York árið 2013. Rannsóknaráhugi Berglindar beinist að kennaramenntun, fagþekkingu kennara, gæðum kennslu og þróun skólastarfs. Jafnframt rannsakar hún námslega og félagslega þætti sem hafa áhrif á nám og námsárangur nemenda. https://orcid.org/0000-0002-1787-3006
Birna María Svanbjörndóttir (birnas(hjá)unak.is) er dósent við Kennaradeild Háskólans á Akureyri. Hún starfaði sem grunnskólakennari um árabil, var forstöðumaður Miðstöðvar skólaþróunar við Háskólann á Akureyri 2010-2016 og lauk doktorsprófi í menntunarfræðum frá Háskóla Íslands 2015. Helstu viðfangsefni hennar í kennslu og rannsóknum lúta að gæðum kennslu, starfsþróun kennara, starfstengdri leiðsögn og kennaramenntun.
Guðmundur Engilbertsson (ge(hjá)unak.is) er læsisfræðingur og lektor við kennaradeild Hug- og félagsvísindasviðs Háskólans á Akureyri. Hann hefur lokið B.Ed.-prófi í kennarafræði og M.Ed.-prófi í menntunarfræði við Háskólann á Akureyri og hefur stundað doktorsnám við HÍ. Helstu viðfangsefni hans í kennslu og rannsóknum lúta að gæðum kennslu, kennslufræði, orðakennslu, lestrarmenningu barna og læsi til náms.
Hermína Gunnþórsdóttir (hermina(hjá)unak.is) er prófessor við Kennaradeild Háskólans á Akureyri. Hún hefur starfað við leik-, grunn- og framhaldsskóla og lauk doktorsprófi frá Háskóla Íslands 2014. Helstu viðfangsefni hennar í kennslu og rannsóknum tengjast félagslegu réttlæti í menntun, skóla og námi án aðgreiningar, fjölmenningu og fjöltyngi, fötlunarfræði, menntastefnu og framkvæmd.
Jóhann Örn Sigurjónsson (johannorn(hjá)midstodmenntunar.is) er sérfræðingur í stærðfræðimenntun hjá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu. Hann hefur starfað sem kennari á grunnskóla- og háskólastigi, er með menntun á sviði faggreinakennslu og tölvunarfræði, auk doktorsprófs í menntavísindum. Rannsóknarsvið hans beinist að þróun stærðfræðikennslu, notkun námsefnis, námsmati í stærðfræði og gæðaþáttum í kennslu á borð við hugræna virkjun og stuðning við nám.
Rannveig Oddsdóttir (rannveigo(hjá)unak.is) er dósent við Kennaradeild Háskólans á Akureyri. Hún starfaði um árabil við kennslu í leik- og grunnskólum og lauk PhD gráðu frá Háskóla Íslands með áherslu á læsi og ritun. Í rannsóknum sínum hefur hún aðallega beint sjónum að þróun máls, læsis og ritunar hjá börnum á leikskólaaldri og fyrstu árum grunnskólagöngu.
Rúnar Sigþórsson (runar(hjá)unak.is) er prófessor emeritus við kennaradeild Háskólans á Akureyri. Hann lauk meistaraprófi í skólaþróun frá Háskólanum í Cambridge, Englandi 1996 og doktorsprófi í menntunarfræði frá Kennaraháskóla Íslands 2008. Rannsóknir hans hafa einkum beinst að námskrá, kennslutilhögun, námi og námsmati, ásamt stefnumótun og þróun skólastarfs á þessum sviðum.
Sólveig Zophoníasdóttir (sz(hjá)unak.is) er aðjúnkt við Háskólann á Akureyri. Hún lauk B.Ed.-gráðu frá sama skóla (1999), diplómu í tölvu- og upplýsingatækni frá Kennaraháskóla Íslands (2000), meistaragráðu frá Háskóla Íslands (2011) og er í doktorsnámi við sama skóla. Rannsóknir Sólveigar hafa einkum beinst að gæðum kennslu, upplýsingatækni, samræðum, leiðsagnarmati, starfsþróun, námskrá og nemendaþátttöku.



Sigurður Arnar Sigurðsson
Helgi Skúli Kjartansson
Jón Torfi Jónasson