Stilla – hæglátt leikskólastarf: Að finna taktinn í daglegu lífi leikskólans

4. október, 2026

Anna Magnea Hreinsdóttir og Kristín Dýrfjörð

Skólaþræðir birta nú fimm greinar um þróunarverkefnið Stillu – hæglátt leikskólastarf sem unnið var í samstarfi fræðimanna við Háskóla Íslands, Háskólann á Akureyri og Háskólann í Suðaustur-Noregi (Universitetet i Sørøst-Norge) við fjóra leikskóla á Íslandi. Verkefnið beindist að því að þróa hæglátt leikskólastarf og auka skilning starfsfólks á þeim tíma og skilyrðum sem börn þurfa til að kanna heiminn, prófa hugmyndir, endurtaka og skapa þekkingu.

Hér segja þær Anna Magnea Hreinsdóttir og Kristín Dýrfjörð frá verkefninu, þróun þess og áhrifum, en þær voru verkefnastjórar verkefnisins. Síðan birtist hver greinin á fætur annarri frá leikskólunum sem fjalla um birtingamyndir hæglætis í hverjum leikskóla fyrir sig.

Hæglátt leikskólastarf

Tími er einn áhrifamesti en jafnframt ósýnilegasti þátturinn í leikskólastarfi. Dagskipulagið, klukkan, mannafli, rými og væntingar um að koma mörgu í verk móta það hvernig börn og fullorðnir upplifa daginn. Vel skipulagt starf getur skapað öryggi, fyrirsjáanleika og sameiginlegan takt en þegar skipulagið verður of stíft getur það einnig rofið leik, þrengt að frumkvæði barna og aukið hraða, bið og álag. Tími er því ekki aðeins hlutlaus umgjörð utan um leikskólastarfið heldur uppeldisfræðilegt og siðferðilegt viðfangsefni sem hefur áhrif á þátttöku, tengsl, nám og vellíðan barna.

Rannsóknir á sjónarmiðum ungra barna gefa til kynna að þau upplifa tímann ekki fyrst og fremst samkvæmt klukkunni heldur í gegnum atburði dagsins, viðfangsefni sín og samskipti við aðra. Tímaskyn þeirra er huglægt, tengslabundið, líkamlegt og háð aðstæðum hverju sinni (Kristín Dýrfjörð o.fl., 2023). Börn tengja gjarnan skilning sinn á tíma við reglubundna þætti dagsins, svo sem máltíðir, útiveru, samverustundir og leik, en upplifun þeirra af lengd tímans ræðst jafnframt af því hvort þau eru niðursokkin í merkingarbært viðfangsefni eða bíða, þeim leiðist eða þau njóta samvista við vini sína. Í rannsókn Önnu Magneu Hreinsdóttur og Kristínar Dýrfjörð (2021) kom fram að sumum börnum fannst þau dvelja lengi í leikskólanum en öðrum að tíminn væri mislangur eftir dögum og því sem þau fengust við. Þegar þau léku sér, nutu samskipta við vini eða fengu að ráða viðfangsefnum sínum sjálf gat tíminn liðið hratt en bið, kyrrseta og viðfangsefni sem þau höfðu lítinn áhuga á gátu orðið löng.

Þessar niðurstöður minna á að sama tímalengd samkvæmt klukkunni getur haft mjög ólíka merkingu fyrir börn. Dagskipulag sem tryggir fyrst og fremst að allir geri það sama á sama tíma getur skapað fyrirsjáanleika, en jafnframt takmarkað tækifæri til samfellds leiks, flæðis og þátttöku. Rannsókn Kristínar Dýrfjörð o.fl. (2023) gaf til dæmis til kynna að nákvæm og sýnileg dagskrá gat stuðlað að sundurslitnum degi með færri tækifærum til órofins leiks, en sveigjanlegri tímastjórnun gat skapað skilyrði fyrir meiri samfellu. Því þarf skipulag leikskólastarfs að taka mið af ólíkum tímatakti barna og fullorðinna og skapa svigrúm fyrir börn til að sökkva sér í leik, þróa hugmyndir og ljúka viðfangsefnum á merkingarbæran hátt. Þessar vangaveltur voru ein af kveikjunum að þróunar- og rannsóknarverkefninu Stillu – hæglátt leikskólastarf.

Stilla

Heitið Stilla vísar bæði til kyrrðar og þess að stilla eitthvað saman, líkt og hljóðfæri. Í því felst ekki krafa um að allt eigi alltaf að gerast hægt. Fremur er átt við virkt og faglegt ferli þar sem starfsfólk stillir sig inn á börnin, samstarfsfólkið, rýmið og aðstæður hverju sinni. Hæglátt leikskólastarf snýst þannig um að finna réttan takt, eða tempo giusto, eins og það er kallað á ítölsku, sem getur verið hægur á einu augnabliki en hraðari á öðru. Kjarni þess er nærvera, hlustun, samfella og næmni fyrir ólíkum þörfum og takti barna. Hugmyndafræðin beinir sjónum að því sem fær tíma og athygli í leikskólanum, hvað er varið fyrir truflunum og hvaða starfshættir styðja við leik, tengsl, vellíðan og þátttöku barna (Clark, 2023).

Stilla var þriggja ára samstarfsverkefni sem unnið var á árunum 2022–2025 með fjórum íslenskum leikskólum: Aðalþingi í Kópavogi, Iðavelli á Akureyri, Rauðhóli í Reykjavík og Uglukletti í Borgarnesi. Að verkefninu komu jafnframt Anna Magnea Hreinsdóttir frá Háskóla Íslands, Kristín Dýrfjörð frá Háskólanum á Akureyri og Alison Clark, höfundur bókar um hæglátt leikskólasetarf og Kari Carlsson frá Suðaustur-háskólanum í Noregi. Leikskólarnir voru ólíkir að stærð, staðsetningu og sögu en áttu sameiginlega sterka áherslu á leik, lýðræði, þátttöku barna og rannsóknarmiðað starf. Tveir þeirra sóttu meðal annars innblástur til Reggio Emilia, þar sem uppeldisfræðilegar skráningar, fjölbreytt tjáning barna og sameiginleg ígrundun skipta miklu máli. Hinir tveir tengdu verkefnið meðal annars við hugmyndir um flæði, samfellu og möguleika barna til að sökkva sér í leik og viðfangsefni án óþarfa truflana. Um 30 leikskólastjórar og deildarstjórar tóku beinan þátt í rannsóknarhluta verkefnisins, en annað starfsfólk og börn leikskólanna tóku jafnframt þátt í þróunarstarfinu.

Markmið verkefnisins

Meginmarkmið verkefnisins var að þróa hæglátt leikskólastarf og dýpka þekkingu á því hvernig börn upplifa tíma í leikskólanum. Jafnframt var ætlunin að auka skilning starfsfólks og fjölskyldna á þeim tíma og skilyrðum sem börn þurfa til að kanna heiminn, prófa hugmyndir, endurtaka og skapa þekkingu. Verkefnið var ekki byggt upp sem fyrir fram mótuð aðferð sem ætti að innleiða með sama hætti í öllum leikskólunum. Hver leikskóli valdi þess í stað ákveðin áherslusvið út frá eigin aðstæðum, menningu og spurningum. Sú leið reyndist mikilvæg, því hæglæti öðlast ekki merkingu sem almenn uppskrift heldur í tengslum við raunverulegt daglegt líf innan hvers leikskóla. Samstarfið byggði á lestri, samtali, vinnustofum, heimsóknum, staðbundinni þróun starfshátta og sameiginlegri ígrundun. Leikskólastjórar, deildarstjórar og annað starfsfólk skoðuðu eigin starfshætti, skráðu það sem gerðist og ræddu hvaða aðstæður ýttu undir nærveru og dýpt og hvaða aðstæður sköpuðu hraða, bið, hávaða eða truflanir. Uppeldisfræðilegar skráningar gegndu lykilhlutverki. Með þeim var ekki aðeins safnað myndum eða lýsingum á starfinu, heldur voru þær notaðar sem tæki til að staldra við, túlka reynslu barna og ræða faglegar ákvarðanir. Á sameiginlegum vinnustofum deildu leikskólarnir dæmum, spurðu gagnrýninna spurninga og lærðu hver af öðrum. Þannig varð rannsóknarferlið jafnframt hluti af þróunarstarfinu sjálfu.

Þróun innan leikskólanna

Eftir því sem verkefninu vatt fram tóku að birtast fjögur stef sem þátttakendur notuðu til að setja orð á ólíkar hliðar hæglætis: að dvelja með, að fara út af sporinu, að kafa djúpt og að horfa til lengri tíma. Þessi stef eiga jafnframt rætur í fræðilegu samtali um verkefnið og samstarfinu við Alison Clark, en tóku smám saman á sig skýrari mynd í samtali hennar, rannsakendanna og leikskólanna um reynsluna sem varð til í Stillu. Breytingarnar hófust oft í aðstæðum sem virtust hversdagslegar; í fataherbergjum, matmálstímum, hvíld, gönguferðum, skiptingu barna í hópa og hljóðumhverfi. Þegar færri börn fóru samtímis í fataherbergi minnkaði bið og hávaði og börnin fengu meira svigrúm til að klæða sig sjálf. Athyglisvert var að ferlið tók ekki endilega lengri tíma samkvæmt klukkunni; tíminn var einfaldlega skipulagður á annan hátt. Í matsal var börnum fækkað og andrúmsloftið varð rólegra án þess að máltíðin lengdist. Í einum leikskóla þróaðist rannsókn á tónlist yfir í athygli á öllu hljóðumhverfinu. Börnin fóru sjálf að benda fullorðnum á að lækka röddina svo þau gætu hlustað. Í útiveru þurfti gönguferð ekki alltaf að enda á fyrir fram ákveðnum stað; fuglasöngur, pollur, veður eða spurning barns gat orðið að meginviðfangsefni ferðarinnar. Önnur verkefni fengu að vaxa yfir langan tíma. Rannsókn barna á fiski, mat, bragði, lykt, ræktun og matargerð þróaðist til dæmis yfir tveggja ára tímabil og fléttaði saman vísindi, sköpun, tungumál, húmor og samfélag. Slíkt ferli hefði tæplega orðið til ef könnun barnanna hefði lokið um leið og fyrir fram áætluðum tíma lauk. Hæglætið fólst því í breyttri sýn á tímann.

Myndin er út Björnslundi sem er útinámssvæði í leikskólanum Rauðhóli í Reykjavík. Myndina tók Magnea Arnardóttir.

 

Áhrif verkefnisins

Niðurstöður verkefnisins benda til þess að hæglæti hafi haft áhrif á bæði börn, starfsfólk og starfsmenningu leikskólanna. Starfsfólk lýsti meiri ró, dýpri tengslum og aukinni athygli á frumkvæði og getu barna. Börn virtust fá betri skilyrði til sjálfstjórnar, samvinnu, sköpunar og flæðis þegar þeim gafst tími til að prófa sig áfram og þegar fullorðnir gripu ekki of fljótt inn í. Kennarar lýstu jafnframt breyttri fagvitund. Fagmennska birtist síður sem hraði, stjórnun og afköst en frekar sem hæfni til að lesa í aðstæður, bíða, hlusta og taka ígrundaðar ákvarðanir. Sumir töluðu einnig um minni andlega þreytu og meira jafnvægi í starfi. Verkefnið benti þó jafnframt til þess að hæglæti yrði ekki sjálfbært fyrir tilstilli einstakra kennara. Forysta og skipulag skipta sköpum. Stjórnendur þurfa að halda utan um sameiginlega sýn, verja tíma til samtals og ígrundunar og gefa starfsfólki leyfi til að endurhugsa venjur sem byggjast á hraða og sýnilegum afköstum. Á sama tíma þarf starfsfólkið að hafa svigrúm til að rannsaka eigin starfshætti og finna staðbundnar lausnir.

Ein mikilvægasta afurð verkefnisins var sameiginlegt faglegt tungumál sem gerði þátttakendum kleift að ræða um hraða, bið, truflanir, nærveru og dýpt. Orðið stilla varð þannig að sameiginlegri áminningu um að endurmeta taktinn. Verkefnið hefur þegar skilað fræðilegum greinum um reynslu leikskólanna, birtingarmyndir hæglætis og hlutverk stjórnenda í breytingaferlinu. Þar hefur meðal annars verið rökstutt að hæglæti er ekki stöðluð aðferð heldur sameiginleg fagleg og siðferðileg afstaða, og að breytingin sjálf þarf tíma til að festa rætur (Anna Magnea Hreinsdóttir og Kristín Dýrfjörð, 2026; Kristín Dýrfjörð og Anna Magnea Hreinsdóttir, 2026). Verkefnið hefur einnig skapað sögur, skráningar, samtöl og þekkingu sem nýtist áfram innan leikskólanna og getur orðið öðrum hvatning til að skoða eigin starfshætti. Verkefnið var styrkt af Rannsóknasjóði Háskóla Íslands og Mennta- og barnamálaráðuneytinu.

Í þeim greinum sem hér birtast í Skólaþráðum er sjónum beint að verkefninu frá sjónarhóli leikskólanna sjálfra. Þar má sjá hvernig hugmyndin um hæglæti tók á sig ólíkar myndir eftir samhengi, áherslum og menningu hvers leikskóla. Markmiðið er ekki að setja fram eina fyrirmynd sem aðrir eigi að afrita, heldur að opna faglegt samtal um tíma, gæði og bernsku. Spurningin er ekki aðeins hvernig hægt sé að hægja á, heldur hvað við viljum gefa tíma í leikskólastarfi og hvers vegna. Hæglátt leikskólastarf kallar þannig á að við skoðum hvort skipulag dagsins þjóni þeim gildum sem við segjum að séu mikilvæg: leik, tengslum, lýðræði, þátttöku, sköpun og vellíðan. Að finna réttan takt er síendurtekið ferli þar sem leikskólasamfélagið hlustar, ígrundar og stillir sig saman á ný.

Heimildir

Anna Magnea Hreinsdóttir  og Kristín Dýrfjörð. (2021). Upplifun barna af leikskóladvöl: „Stundum er maður lengi í leikskólanum, en ekki alltaf“. Netla – Veftímarit um uppeldi og menntun. https://doi.org/10.24270/netla.2021.12

Anna Magnea Hreinsdóttir  og Kristín Dýrfjörð. (2026). Að finna taktinn: Um hæglátt leikskólastarf. Netla – Veftímarit um uppeldi og menntun. https://doi.org/10.24270/netla.2026/9

Clark, A. (2023). Slow knowledge and the unhurried child: Time for slow pedagogies in early childhood education. Routledge.

Kristín Dýrfjörð og Anna Magnea Hreinsdóttir. (2026). Paving the way for slow pedagogy: Leadership lessons from Icelandic preschools. European Early Childhood Education Research Journal, 34(4), 584–599. https://doi.org/10.1080/1350293X.2025.2523040

Kristín Dýrfjörð, Anna Magnea Hreinsdóttir, A. M., Visnjic-Jevtic, A. og Clark, A. (2023). Young children’s perspectives of time: New directions for co-constructing understandings of quality in ECEC. British Educational Research Journal. Advance online publication. https://doi.org/10.1002/berj.3935

Um höfunda

Anna Magnea Hreinsdóttir (amh(hja)hi.is) er lektor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Hún var leikskólastjóri í mörg ár, leikskólafulltrúi og fræðslustjóri. Hún hefur tekið þátt í fjölmörgum innlendum og alþjóðlegum rannsóknarverkefnum og veitt skólum ráðgjöf. Rannsóknir hennar tengjast forystu og stjórnun, námskrárgerð og innra mati leikskóla með áherslu á lýðræðislega starfshætti. Þá hefur hún lagt áherslu á sjónarmið og þátttöku barna í rannsóknum sínum. Hún er formaður Félags um menntarannsóknir. https://orcid.org/0000-0003-4923-3879

Kristín Dýrfjörð (dyr(hja)unak.is) er dósent við kennaradeild Háskólans á Akureyri. Kristín starfaði sem leikskólastjóri í um áratug og var virk í félagsstörfum fyrir Félag leikskólakennara. Rannsóknir hennar snúa að hæglæti, áhrifum, vinnuaðstæðum og skapandi starfi í leikskólum ásamt áhrifum stefnumótunar og hugmyndafræði, svo sem nýfrjálshyggju á leikskólastarf. https://orcid.org/0000-0003-1559-713X


 

Grein birt 4. október 2026

 

image_pdfSmelltu hér fyrir PDF skjal

Færslusafn

Fara íTopp

Hefurðu lesið þessar greinar?

Leikskólinn Rauðhóll: Að horfa til lengri tíma og vera samt hér og nú

Magnea Arnardóttir Í þessari grein segir Magnea Arnardóttir leikskólakennari og

Leikskólinn Ugluklettur: Að dvelja með – vegferð Uglukletts

Kristín Gísladóttir og Elín Friðriksdóttir Í þessari grein segja þær