Leikskólinn Aðalþing: Að kafa djúpt

4. október, 2026

Agnes Gústafsdóttir og Þórhildur Ýr Arnardóttir

Í þessari grein segja þær Agnes Gústafsdóttir leikskólastjóri og Þórhildur Ýr Arnardóttir aðstoðarskólastjóri í leikskólanum Aðalþingi í Kópavogi frá þátttöku skólans í  þróunarverkefninu Stillu – hæglátt leikskólastarf, sem unnið var í samstarfi fræðimanna við Háskóla Íslands, Háskólann á Akureyri og Háskólann í Suðaustur-Noregi (Universitetet i Sørøst-Norge) við fjóra leikskóla á Íslandi, leikskólann Aðalþing í Kópavogi, Iðavöll á Akureyri, Rauðhól í Reykjavík og Ugluklett í Borgarnesi. Verkefnið beindist að því að þróa hæglátt leikskólastarf og auka skilning starfsfólks á þeim tíma og skilyrðum sem börn þurfa til að kanna heiminn, prófa hugmyndir, endurtaka og skapa þekkingu.

Í fyrstu greininni, sjá hér, segja Anna Magnea Hreinsdóttir og Kristín Dýrfjörð frá verkefninu, þróun þess og áhrifum, en þær voru verkefnastjórar verkefnisins. Hér má nálgast greinarnar um starfið í hinum leikskólunun þremur:

Leikskólinn Aðalþing 

Leikskólinn Aðalþing er kennararekinn leikskóli í Kópavogi sem tók til starfa árið 2009 og í eru um 120 börn á aldrinum eins til sex ára. Leikskólinn er rekinn í anda hugmyndafræði Loris Malaguzzi, oftast kennd við bæinn Reggio Emilia á Ítalíu. Áhersla er lögð á leikinn sem undirstöðu náms hjá börnum og skapandi starf. Umhverfi leikskólans á að styðja við náttúrulega rannsóknar- og sköpunarþörf barna. Hlutverk starfsfólks er að vera samverkamenn barnanna.

Þegar við í Aðalþingi hófum þátttöku í Stillu-verkefninu var hugtakið hæglátt leikskólastarf flestum okkar framandi. Með samtali og ígrundun mótuðum við smám saman okkar eigin skilning á hugtakinu og hvað það þýðir fyrir okkur í Aðalþingi. Stilla hefur ekki fært okkur tilbúna uppskrift heldur fengið okkur til að kafa dýpra í eigið starf og skoða hvernig við getum skapað börnunum tíma og rými til að sökkva sér í leik, svala forvitni sinni og þróa eigin hugmyndir.

Frá tíma klukkunnar að tíma barnsins

Í upphafi beindist athygli okkar mikið að tíma. Við skoðuðum meðal annars biðtíma barnanna og þær stundir dagsins þegar skipulagið tók völdin. Við spurðum okkur hvort leikur barna væri stundum stöðvaður vegna þess að skipulagið og klukkan segðu að eitthvað annað ætti að taka við. Til dæmis urðu gönguferðirnar okkar meðal annars til þess að við fórum að velta fyrir okkur áhrifum tímans og dagskipulagsins. Í einni ferðinni fann kennari hvernig athyglin færðist frá börnunum og því, sem vakti áhuga þeirra, yfir í að þurfa að drífa sig aftur í leikskólann til að ná hádegismat. Sú reynsla varð tilefni til mikilvægrar ígrundunar hjá okkur: Hversu mikið látum við dagskipulagið stýra ferðinni og hversu mikið svigrúm gefum við börnunum til að staldra við til að svala forvitni sinni og dvelja við það sem vekur áhuga þeirra?

Við fórum að skoða daginn í smáatriðum og velta fyrir okkur hvar við gætum skapað meira svigrúm fyrir börnin. Við breyttum til dæmis verklagi í fataherberginu þannig að börnin þyrftu síður að bíða fullklædd eftir öðrum áður en þau kæmust út. Við endurskoðuðum líka fastar salernisferðir fyrir matartíma og breyttum skipulaginu í matstofunni þannig að færri börn borðuðu þar í einu. Þetta kunna að virðast lítil atriði, en áhrifin voru mikil. Bið og streita minnkuðu og um leið skapaðist meira rými fyrir sjálfstæði, samskipti og samveru. Smám saman færðist athygli okkar frá því að draga úr biðtíma yfir í stærri spurningu: Hvernig gætum við gefið börnunum meiri tíma til að dvelja við það sem vekur áhuga þeirra?

Að fara út fyrir girðinguna

Skráningar starfsfólks urðu mikilvægur þáttur í þessari vinnu. Við fórum markvisst að skoða hvenær börnin virtust upplifa flæði, teygðan tíma og tækifæri þeirra til að sökkva sér í leik. Þá tókum við eftir sterkri tengingu við útiveru, sérstaklega þegar farið var út fyrir girðingu leikskólans og út í náttúruna í nærumhverfinu. Þessi uppgötvun hafði bein áhrif á skipulag leikskólastarfsins og varð til þess að við lögðum aukna áherslu á útinám. Í kjölfarið ákváðum við að hafa sérstakan útinámskennara sem vinnur með öllum deildum. Með því vildum við tryggja að öll börn í Aðalþingi fengju jöfn tækifæri til að fara út fyrir leikskólalóðina, dvelja í náttúrunni og njóta þeirra fjölbreyttu tækifæra til leiks og uppgötvana sem þar skapast.

Af gönguferðunum lærðum við að það að kafa djúpt krefst þess stundum að hinn fullorðni sé tilbúinn að fara út af fyrirfram ákveðinni leið. Í einni gönguferð með vasaljós hafði útinámskennarinn ákveðinn áfangastað í huga. Á leiðinni heilluðust börnin hins vegar af hvítum vegg, skuggunum sem féllu á hann og steinum sem lágu þar hjá. Kennarinn ákvað að stoppa og gefa börnunum tíma til að dvelja við það sem hafði fangað athygli þeirra. Veggur sem þau höfðu oft gengið fram hjá varð allt í einu uppspretta forvitni, rannsókna og leikja. Þarna birtist fyrir okkur mikilvægur kjarni hægláts leikskólastarfs: Markmiðið þarf ekki alltaf að vera staðurinn sem við ætluðum okkur að komast á. Stundum felst það mikilvægasta í því sem gerist á leiðinni.

Þegar upplifunin heldur áfram

Að fara út fyrir girðinguna hefur kennt okkur að vera vakandi fyrir því sem verður á vegi barnanna. Stundum felst hæglætið í því að staldra við, fylgja athyglinni og gefa augnablikinu tíma. Hvíti veggurinn, skuggarnir og steinarnir þurftu ekki að verða að verkefni þegar heim var komið. Upplifunin fékk að eiga sér stað þar og þá og það var nóg.

Önnur augnablik fylgja börnunum hins vegar aftur inn í leikskólann. Dæmi um það varð til í ferð að Elliðavatni þegar börnin komu auga á tvo óvenjulega fugla á vatninu. Kennararnir mynduðu fuglana og veltu þeim fyrir sér með börnunum. Í sameiningu komust þau að því að þetta væru flórgoðar. Þegar aftur var komið í leikskólann hélt áhugi barnanna áfram að vaxa. Þau skoðuðu ljósmyndir og myndbönd, leituðu í fuglabókum, hlustuðu á hljóð flórgoðans, teiknuðu fuglana, hreiðrin og eggin og léku sér að því að vera fuglar. Tónlistarkennarinn tók einnig þátt í ferlinu og breytti texta við lag þannig að það fjallaði um flórgoðann og hægt væri að vinna áfram með áhugann í samveru.

Þessar ólíku upplifanir hafa kennt okkur að við þurfum ekki að ákveða fyrirfram hvað eigi að verða úr því sem vekur athygli barnanna. Sum augnablik fá að lifa hér og nú en önnur þróast áfram vegna þess að áhugi barnanna heldur þeim á lífi. Verkefni okkar er að taka eftir, hlusta og skrá og vera tilbúin að skapa tíma og aðstæður til að kafa dýpra þegar börnin sýna okkur að þau vilja halda áfram.

Efniviður sem styður við hæglátt leikskólastarf

Reynslan af Stillu hefur einnig beint sjónum okkar að efniviðnum. Við höfum skoðað og skráð hvaða aðstæður og efniviður hjálpar börnum að sökkva sér í leik, halda einbeitingu og dvelja lengi við það sem fangar áhuga þeirra. Í skráningum okkar sjáum við að opinn efniviður getur skapað slíkar aðstæður. Sandur, vatn, leir, drulla, snjór, steinar, greinar, ljós, litir, kubbar og pappi geta tekið sífelldum breytingum í höndum barnanna. Þegar efniviðurinn býður upp á marga möguleika skapast tækifæri fyrir leik að þróast á forsendum barnanna og þau sökkt sér í hann þannig að tíminn gleymist. Efniviðurinn sem við notum er að mörgu leyti sá sami og áður en við horfum á hann öðrum augum og erum meðvitaðri um hvað hann býður börnunum.

Að kafa djúpt krefst ígrundunar

Einn mikilvægasti lærdómurinn sem við drógum af þróunarverkefninu er að hæglátt leikskólastarf snýst ekki eingöngu um að gefa börnunum tíma. Starfsfólkið þarf einnig tíma og svigrúm til að ígrunda það sem gerist í daglegu starfi. Skráningar gera okkur kleift að snúa aftur að ákveðnum augnablikum, skoða þau saman og velta fyrir okkur hvað vakti áhuga barnanna, hvernig við brugðumst við og hvert væri hægt að halda næst. Þessi vinna hefur jafnframt dýpkað skilning okkar á hugmyndafræði Reggio Emilia. Sýnin á barnið sem getumikið, forvitið og skapandi, áherslan á hlustun og opinn efnivið, mikilvægi skráninga og hlutverk kennarans sem meðrannsakanda falla vel að því sem við höfum lært í Stillu.

Ferlið hefur þó ekki verið án áskorana. Dagskipulag, undirmönnun og álag geta auðveldlega ýtt okkur aftur inn í hraðann. Starfsmannavelta hefur einnig áhrif því það tekur tíma að byggja upp sameiginlegan skilning á því hvað hæglátt leikskólastarf felur í sér. Við höfum lært að slíkt hugarfar verður ekki til með einu þróunarverkefni. Það þarf stöðugt samtal, sameiginlega ígrundun og skráningar til að hjálpa okkur að halda umræðunni lifandi og þróa skilning innan starfsmannahópsins.

Við erum rétt að byrja

Þótt þróunarverkefninu Stillu sé formlega lokið erum við hvergi nærri hætt. Verkefnið hefur vakið nýjar spurningar, breytt því hvernig við horfum á ýmsa þætti starfsins og gefið okkur hugmyndir sem við viljum halda áfram að þróa. Kannski er stærsti lærdómurinn sá að „að kafa djúpt“ á ekki aðeins við um börnin. Við þurfum líka sjálf að halda áfram að kafa dýpra í starfið okkar, vera tilbúin að endurskoða það sem við gerum og læra af því sem við sjáum.

Við viljum halda áfram að skapa börnunum góðar aðstæður til að dvelja við leik, bæði innan dyra og utan og verða markvissari í að nýta skráningar til að ígrunda starfið saman. Í Stillu höfum við lært að hæglátt leikskólastarf snýst ekki um að gera allt hægar. Það snýst fyrst og fremst um að gefa sér tíma til að taka eftir, hlusta á börnin, fylgja því sem vekur áhuga þeirra og gefa hugmyndum þeirra svigrúm til að þróast. Við vitum ekki alltaf fyrirfram hvert það ferðalag leiðir okkur og það er hluti af ferlinu.


Um höfunda

Agnes Gústafsdóttir er leikskólastjóri í leikskólanum Aðalþingi. Agnes er leikskólakennari, með M.Ed.-gráðu í leikskólakennarafræðum og viðbótardiplómur í grunnskólakennarafræðum og menntastjórnun og matsfræði frá Háskóla Íslands.

Þórhildur Ýr Arnardóttir er aðstoðarleikskólastjóri í leikskólanum Aðalþingi. Þórhildur er félagsfræðingur og kennari, með M.Ed.-gráðu í menntunarfræði leikskóla og viðbótardiplómu í menntastjórnun og matsfræði frá Háskóla Íslands.


Grein birt 4. október 2026
image_pdfSmelltu hér fyrir PDF skjal

Færslusafn

Fara íTopp

Hefurðu lesið þessar greinar?

Stilla – hæglátt leikskólastarf: Að finna taktinn í daglegu lífi leikskólans

Anna Magnea Hreinsdóttir og Kristín Dýrfjörð Skólaþræðir birta nú fimm

Leikskólinn Rauðhóll: Að horfa til lengri tíma og vera samt hér og nú

Magnea Arnardóttir Í þessari grein segir Magnea Arnardóttir leikskólakennari og