Leikskólinn Iðavöllur: Að þora að fara út af sporinu.
Anna Lilja Sævarsdóttir, Ragnheiður I. Ragnarsdóttir og Lísbet Reykjalín Elvarsdóttir
Í þessari grein segja þær Anna Lilja Sævarsdóttir, Ragnheiður I. Ragnarsdóttir og Lísbet Reykjalín Elvarsdóttir, sem allar eru í stjórnunarteymi leikskólans Iðavallar á Akureyri, frá þátttöku skólans í þróunarverkefninu Stillu – hæglátt leikskólastarf, sem unnið var í samstarfi fræðimanna við Háskóla Íslands, Háskólann á Akureyri og Háskólann í Suðaustur-Noregi (Universitetet i Sørøst-Norge) við fjóra leikskóla á Íslandi, leikskólann Aðalþing í Kópavogi, Iðavöll á Akureyri, Rauðhól í Reykjavík og Ugluklett í Borgarnesi. Verkefnið beindist að því að þróa hæglátt leikskólastarf og auka skilning starfsfólks á þeim tíma og skilyrðum sem börn þurfa til að kanna heiminn, prófa hugmyndir, endurtaka og skapa þekkingu.
Í fyrstu greininni, sjá hér, segja Anna Magnea Hreinsdóttir og Kristín Dýrfjörð frá verkefninu, þróun þess og áhrifum, en þær voru verkefnastjórar verkefnisins. Hér má nálgast greinarnar um starfið í hinum leikskólunun þremur:
Agnes Gústafsdóttir og Þórhildur Ýr Arnardóttir
Anna Magnea Hreinsdóttir og Kristín Dýrfjörð
Kristín Gísladóttir og Elín Friðriksdóttir
Magnea Arnardóttir