flæði

Menntun til farsældar

20. mars, 2021

Birt til heiðurs dr. Ingvari Sigurgeirssyni prófessor sjötugum

Ebba Áslaug Kristjánsdóttir

Við sem störfum við kennslu höfum því mikilvæga hlutverki að gegna að kveikja neista í hugum og hjörtum nemenda. Þegar ég sá fyrst orðið farsældarmenntun kviknaði minn neisti sem hefur síðan orðið að ástríðubáli. Orðið varð á vegi mínum í auglýsingu um erindi Kristjáns Kristjánssonar heimspekiprófessors um farsældarmenntun á Menntakviku 2019 sem fangaði strax athygli mína. Eftir að hafa hlýtt á erindi Kristjáns og fengið staðfestingu á að efnið höfðaði til mín hófst heilmikið grúsk af minni hálfu. Sú vegferð leiddi fljótt að námi í jákvæðri sálfræði. (meira…)

Leikskólinn Rauðhóll: Að horfa til lengri tíma og vera samt hér og nú

Magnea Arnardóttir

Í þessari grein segir Magnea Arnardóttir leikskólakennari og þroskaþjálfi við leikskólann Rauðhól í Reykjavík frá þátttöku skólans í  þróunarverkefninu Stillu – hæglátt leikskólastarf, sem unnið var í samstarfi fræðimanna við Háskóla Íslands, Háskólann á Akureyri og Háskólann í Suðaustur-Noregi (Universitetet i Sørøst-Norge) við fjóra leikskóla á Íslandi, leikskólann Aðalþing í Kópavogi, Iðavöll á Akureyri, Rauðhól í Reykjavík og Ugluklett í Borgarnesi. Verkefnið beindist að því að þróa hæglátt leikskólastarf og auka skilning starfsfólks á þeim tíma og skilyrðum sem börn þurfa til að kanna heiminn, prófa hugmyndir, endurtaka og skapa þekkingu.

Í fyrstu greininni, sjá hér, segja Anna Magnea Hreinsdóttir og Kristín Dýrfjörð frá verkefninu, þróun þess og áhrifum, en þær voru verkefnastjórar verkefnisins. Hér má nálgast greinarnar um starfið í hinum leikskólunun þremur:

(meira…)

Færslusafn

Fara íTopp