Menntakerfi í krísu?
Eva Harðardóttir
Þegar ég útskrifaðist með doktorspróf í menntunarfræðum fékk ég að gjöf bol með áletruninni What would Hannah Arendt do? Þar var á ferðinni ákveðinn einkahúmor en nú sléttu ári eftir útskrift sit ég í bolnum og velti þessari spurningu alvarlega fyrir mér í ljósi þeirrar líflegu en oft og tíðum afar neikvæðu opinberu umræðu sem einkennir menntamálin á Íslandi. Daglega birtast greinar í fjölmiðlum sem viðra mismunandi skoðanir á kjörum og vinnuframlagi kennara, gæðum náms, árangri nemenda, líðan þeirra og möguleikum til farsællar framtíðar. Orðræðan er í þeim anda að krísuástand virðist ríkja á vettvangi menntunar. En í hverju nákvæmlega liggur þessi krísa?
Árið 1954 skrifaði heimspekingurinn Hannah Arendt (2006) stutta en þýðingarmikla grein sem bar heitið The Crisis in Education þar sem hún rýnir í bandarískt menntakerfi. Greinin hefst á þeim orðum að ekki þurfi auðugt ímyndarafl til að gera sér grein fyrir þeim hættum sem stafi af stöðugt hnignandi gæðum í skólakerfinu. Áhyggjuefni þess tíma voru meðal annars slök lestrarfærni drengja, agaleysi nemenda og efasemdir um störf kennara. Hljómar kunnuglega? (meira…)
Hafsteinn Óskarsson og Sigurrós Erlingsdóttir
Eyþór Eiríksson
Berglind Rós Magnúsdóttir
Hólmfríður Helga Sigurðardóttir Th., Ingunn Ásta Sigmundsdóttir, Arndís Steinþórsdóttir, Guðrún Helga Sigfúsdóttir og Ragnar Jón Ragnarsson
Hugrún Helgadóttir og Hrönn Pálmadóttir
Klara E. Finnbogadóttir og Þórður Kristjánsson