Leikskólinn Iðavöllur: Að þora að fara út af sporinu.

4. október, 2026

Anna Lilja Sævarsdóttir, Ragnheiður I. Ragnarsdóttir og Lísbet Reykjalín Elvarsdóttir

Í þessari grein segja þær Anna Lilja Sævarsdóttir, Ragnheiður I. Ragnarsdóttir og Lísbet Reykjalín Elvarsdóttir, sem allar eru í stjórnunarteymi leikskólans Iðavallar á Akureyri, frá þátttöku skólans í  þróunarverkefninu Stillu – hæglátt leikskólastarf, sem unnið var í samstarfi fræðimanna við Háskóla Íslands, Háskólann á Akureyri og Háskólann í Suðaustur-Noregi (Universitetet i Sørøst-Norge) við fjóra leikskóla á Íslandi, leikskólann Aðalþing í Kópavogi, Iðavöll á Akureyri, Rauðhól í Reykjavík og Ugluklett í Borgarnesi. Verkefnið beindist að því að þróa hæglátt leikskólastarf og auka skilning starfsfólks á þeim tíma og skilyrðum sem börn þurfa til að kanna heiminn, prófa hugmyndir, endurtaka og skapa þekkingu.

Í fyrstu greininni, sjá hér, segja Anna Magnea Hreinsdóttir og Kristín Dýrfjörð frá verkefninu, þróun þess og áhrifum, en þær voru verkefnastjórar verkefnisins. Hér má nálgast greinarnar um starfið í hinum leikskólunun þremur:

Leikskólinn Iðavöllur

Iðavöllur er fjögurra deilda leikskóli á Akureyri þar sem um 80 börn á aldrinum 1–5 ára stunda leik og nám. Í leikskólanum er lögð rík áhersla á vellíðan, sköpun, fjölmenningu og barnmiðaðar áherslur sem sóttar eru í hugmyndafræði Reggio Emilia.

Allt frá árinu 2018 hefur verið unnið markvisst að því á Iðavelli að minnka álag og streitu í starfinu. Vinnuumhverfi barna og fullorðinna í leikskólum er það sama, við deilum sömu rýmum allan daginn og fylgjum að stórum hluta sama skipulaginu. Því var ljóst að ef við ætluðum að skapa rólegra og nærandi umhverfi fyrir börnin, varð breytingin fyrst og fremst að hefjast hjá okkur fullorðna fólkinu. Þegar Iðavelli bauðst að taka þátt í þróunarverkefninu Stillu árið 2023, ásamt þremur öðrum leikskólum, fékk þessi leit okkar skýran faglegan ramma. Hæglæti reyndist okkur dýrmætt verkfæri til að minnka álag og efla vellíðan barna og starfsfólks.

Að fara út af sporinu

Hvað þýðir það í raun og veru að „fara út af sporinu“ í daglegu leikskólastarfi? Í hraða nútímans þar sem stundatöflur, námskrárkröfur og skipulagðar stundir móta oft umhverfi okkar, getur það virst ógnvænlegt að víkja frá áætlunum. Í Leikskólanum Iðavelli á Akureyri hefur þátttaka í þróunarverkefninu Stillu – hæglátu leikskólastarfi hins vegar kennt okkur að þegar við þorum að fara út af sporinu skapast dýrmætasta rýmið fyrir tengsl, forvitni og raunverulegt nám.

Þema Iðavallar í Stillu, „að fara út af sporinu“ (Going Off Track), snýst um að fylgja áhuga, þörfum og forvitni barnsins, jafnvel þótt það leiði okkur út fyrir fyrirfram skipulagða námskrá eða daglegt skipulag. Í stað þess að líta á óvæntar breytingar eða frávik sem mistök eða truflun, tökum við áskoruninni og sköpum rými fyrir undrun, rannsóknir og uppgötvanir.

Aðferðafræði okkar byggist meðal annars á uppeldisfræðilegum skráningum í anda Reggio Emilia, þar sem kennarar og starfsfólk koma saman til sameiginlegrar ígrundunar og greiningar. Með því að horfa minna á klukkuna, velja vel þær stundir sem við skipuleggjum og auka sveigjanleika í daglegum venjum, verður tíminn ekki lengur streituvaldur heldur vettvangur fyrir samveru og sköpun.

Dæmisaga: Þegar hæglæti og sveigjanleiki breyttu öllu

Skýrasta reynsla okkar af virði þess að „fara út af sporinu“ birtist í vinnu okkar með einhverfu barni í leikskólanum sem þurfti mikinn og sérhæfðan stuðning. Barnið hafði gengið í gegnum erfiðleika og vanlíðan sem stóð yfir í nokkurn tíma. Þrátt fyrir að það fengi daglega þjónustu frá stoðþjónustuteymi leikskólans allan daginn tókst ekki að skapa nægilega ró eða árangur með hefðbundnum úrræðum og dagskipulagi sem byggðist á einstaklingsnámskrá. Upplifun barnsins og teymisins einkenndist af spennu þar sem hefðbundnar kröfur og umhverfisáreiti kölluðu fram mótþróa og vanlíðan.

Vendipunktur ferlisins varð þegar stoðþjónustan tók faglega ákvörðun um að stíga stórt skref til baka, að fara alveg út af sporinu og víkja frá fyrirfram ákveðinni dagskrá og áætlunum í einstaklingsnámskrá. Í stað þess að reyna að aðlaga barnið að áætluninni var ákveðið að aðlaga umhverfið og tímann að þess einstöku þörfum og gefa allt það svigrúm, tíma og öryggi sem barnið þurfti. Lögð var rík áhersla á mjög náið og daglegt samstarf við foreldrana til að samræma viðbrögð og tryggja samfellt öryggisnet milli heimilis og skóla.

Til að ná fram raunverulegu hæglæti og draga úr streitu voru gerðar breytingar á öllum rútínum: Sett var upp kerfi þar sem barnið fékk sjálft að velja „sinn starfsmann“ á hverjum tíma. Barnið gat þannig leitað til þess starfsmanns sem það upplifði mest öryggi hjá í viðkomandi aðstæðum. Aðrir í stoðteyminu gripu þá bolta þess starfsmanns á meðan.

Barnið fékk fullt frelsi til að velja sín eigin viðfangsefni og leik, án þess að vera beint í skipulagðar stundir eða verkefni sem kölluðu fram áreiti. Kveikjur voru undirbúnar en farið var eftir vali barnsins þannig að stundum nýttust þær, stundum ekki.

Þá var hugað að sveigjanleika í næringu og matmálstímum. Í stað þess að þurfa að fylgja matmálstímum eða matseðli skólans fékk barnið að velja sinn mat og tímasetningar í beinu samstarfi við eldhús leikskólans. Barnið stillti upp myndum með óskum, sem það síðan afhenti matráðinum beint með því að fara í eldhúsið.

Þegar helstu hindranir og kröfur voru teknar í burtu breyttist allur taktur dagsins. Dregið var úr allri ytri stýringu og dagsform barnsins látið stýra öllum skrefum. Smám saman náðist mikil ró, og barnið varð mun tilbúnara til að eiga í samskiptum og takast á við umhverfi sitt. Þegar öryggi og tilfinningaleg vellíðan voru orðin tryggð, gat teymið hafist handa við að kynna viðfangsefni, áætlanir og matartegundir á nýjan leik – en nú á barnsins eigin forsendum og í þess eigin takti.

Þetta ferli tók þó nokkrar vikur, en árangurinn var dásamlegur. Barnið náði meiri framförum í námi, máltöku og félagslegri þátttöku en nokkru sinni fyrr og lærði hraðar þegar fólk mætti því þar sem það var og tilfinningalegt jafnvægi var til staðar. Breytingin hafði líka áhrif á fjölskyldulífið heima og nú gátu foreldrarnir meðal annars í fyrsta sinn farið með barnið í ferðalag til útlanda. Fyrir starfsfólk Iðavallar var þessi faglega áskorun ómetanlegur lærdómur. Að „fara út af sporinu“ jók næmni og faglegan styrk fagfólksins í teyminu, minnkaði árekstra og sýndi að sveigjanleiki og hæglæti geta verið forsenda þess að barnmiðað leikskólastarf geti blómstrað.

Reynsla Iðavallar

Reynsla Iðavallar gefur skýrt til kynna að hæglátt leikskólastarf getur verið verkfæri til að skapa samfélag þar sem öll börn, óháð uppruna eða getu, fá tækifæri til að blómstra á eigin forsendum. Fyrir börn af erlendum uppruna eða börn með sértæka stuðningsþörf veitir hæglátt leikskólaumhverfi öryggi og svigrúm til að læra og þroskast á þeirra eigin hraða. Sveigjanleiki í daglegum venjum gerir kennurum kleift að hlusta á raddir barna og finna þann takt sem best virkar.

Þróunarverkefnið Stilla hefur fært okkur nýja sýn á tíma og nám. Að fara út af sporinu eru ekki mistök eða stjórnleysi – það er fagleg ákvörðun og tækifæri til að dýpka námsferil barna. Hæglæti er fyrst og fremst hugarfar sem við veljum á hverjum degi. Við höfum lært að velja vel þær stundir sem við skipuleggjum, losna frá áherslum sem þjóna okkur ekki lengur, og þora að dvelja í núinu með börnunum.

Við á Iðavelli viljum halda áfram að styrkja þetta ferli. Við viljum rækta enn frekar faglegan sveigjanleika og styrk kennara, efla barnamiðað starf og tryggja að raddir allra fái að heyrast. Með því að hægja á, hlusta og þora að fara út af sporinu, sköpum við leikskóla þar sem bæði börnum og fullorðnum líður vel. Við veljum að finna okkar eigin takt.

Um höfunda

Anna Lilja Sævarsdóttir útskrifaðist sem leikskólakennari frá Háskólanum á Akureyri 2002 og lauk M.Ed.-prófi með áherslu á stjórnun menntastofnana frá sama skóla 2012. Hún hóf störf á Iðavelli árið 2001, fyrst sumarstarfsmaður og svo sem nýútskrifaður kennari og síðar deildarstjóri frá 2005. Hún starfaði sem aðstoðarleikskólastjóri í leikskólanum Tröllaborgum frá 2014-2018, en hefur verið leikskólastjóri á Iðavelli frá árinu 2018. Anna Lilja hóf að starfa sem stundakennari við HA árið 2012 og hefur verið í stöðu aðjunkts við skólann frá árinu 2024. Hún stefnir á doktorsnám við HÍ og verður í leyfi frá Iðavelli í vetur.

Ragnheiður I. Ragnarsdóttir útskrifaðist með B.Ed. gráðu í leikskólakennarafræðum frá Kennaraháskóla Íslands 1998 og með viðbótardiplómu af námsbrautinni Heilbrigði og heilsuuppeldi frá Háskóla Íslands 2019. Ragnheiður starfaði sem leikskólakennari í leikskólanum Krógabóli Akureyri árin  1998-2005 en hafði starfað áður sem leiðbeinandi í þeim sama skóla. Ragnheiður var  leikskólastjóri í leikskólanum Glaðheimum í Bolungarvík frá árinu 2005 og starfaði þar í 17 ár. Ragnheiður hóf störf sem aðstoðarleikskólastjóri á Iðavelli í ágúst 2022 og starfar nú sem staðgengill leikskólastjóra þetta skólaár.

Lísbet útskrifaðist með B.Sc gráður í iðjuþjálfunarfræði frá háskólanum á Akureyri árið 2014 og er að að ljúka MT-námi í leikskólakennarafræði. Árin 2014-2017 starfaði hún sem deildarstjóri í leikskólanum Hlíðabóli á Akureyri og árin 2017-2019 sem iðjuþjálfi í stoðþjónustu á leikskólanum Naustatjörn. Haustið 2019 hóf hún svo störf á Iðavelli, fyrstu fjögur árin starfaði hún sem iðjuþjálfi í stoðteymi leikskólans og árið 2023 tók hún við deildarstjórn stoðþjónustu og stýrir stoðþjónustuteymi leikskólans.


Grein birt 4. október 2026
image_pdfSmelltu hér fyrir PDF skjal

Færslusafn

Fara íTopp

Hefurðu lesið þessar greinar?

Stilla – hæglátt leikskólastarf: Að finna taktinn í daglegu lífi leikskólans

Anna Magnea Hreinsdóttir og Kristín Dýrfjörð Skólaþræðir birta nú fimm

Leikskólinn Rauðhóll: Að horfa til lengri tíma og vera samt hér og nú

Magnea Arnardóttir Í þessari grein segir Magnea Arnardóttir leikskólakennari og