Kristín Gísladóttir og Elín Friðriksdóttir
Í þessari grein segja þær Kristín Gísladóttir skólastjóri og Elín Friðriksdóttir aðstoðarleikskólastjóri leikskólans Uglukletts í Borgarnesi frá þátttöku skólans í þróunarverkefninu Stillu – hæglátt leikskólastarf, sem unnið var í samstarfi fræðimanna við Háskóla Íslands, Háskólann á Akureyri og Háskólann í Suðaustur-Noregi (Universitetet i Sørøst-Norge) við fjóra leikskóla á Íslandi, leikskólann Aðalþing í Kópavogi, Iðavöll á Akureyri, Rauðhól í Reykjavík og Ugluklett í Borgarnesi. Verkefnið beindist að því að þróa hæglátt leikskólastarf og auka skilning starfsfólks á þeim tíma og skilyrðum sem börn þurfa til að kanna heiminn, prófa hugmyndir, endurtaka og skapa þekkingu.
Í fyrstu greininni, sjá hér, segja Anna Magnea Hreinsdóttir og Kristín Dýrfjörð frá verkefninu, þróun þess og áhrifum, en þær voru verkefnastjórar verkefnisins. Hér má nálgast greinarnar um starfið í hinum leikskólunun þremur:
- Leikskólinn Aðalþing: Að kafla djúpt
- Iðavöllur: Að þora að fara út af sporinu
- Rauðhóll: Að horfa til lengri tíma og vera samt hér og nú
Leikskólinn Ugluklettur
Leikskólinn Ugluklettur er í útjaðri Borgarness þar sem villt náttúra og gróður eru rétt við garðhliðið og skapa einstakt umhverfi til leiks, náms og upplifunar. Einkunnarorð leikskólans eru leikur, virðing og gleði. Frá stofnun leikskólans árið 2007 hefur stefna hans og menning byggst á hugmyndum jákvæðrar sálfræði og kenningu Mihaly Csikszentmihalyi um flæði. Leitast hefur verið við að láta klukkuna ekki ráða ferðinni heldur gefa viðfangsefnum og áhuga barna og starfsfólks svigrúm til að móta daginn hverju sinni.
Í ljósi þessara áherslna þótti okkur eðlilegt næsta skref að taka þátt í þróunarverkefninu Stillu þegar það tækifæri bauðst. Við vonuðumst til að þátttakan myndi hjálpa okkur að dýpka og skerpa sameiginlegan skilning skólasamfélagsins á því hvað hæglæti getur þýtt í daglegu leikskólastarfi.
Frá tónlist og hljóðheimi til útináms og sköpunar
Fyrsta árið fólst verkefnið að miklu leyti í því að staldra við, endurskoða starfshættina í ljósi hugmyndafræði hæglætis og leita leiða til að skapa meiri ró í daglegu starfi leikskólans. Við beindum fyrst athyglinni að tónlist sem síðan þróaðist í rannsókn á hljóðheimi leikskólans. Meðvituð hlustun barnanna varð mikilvægur þáttur í verkefninu. Til að styðja við ígrundun voru gerðar reglulegar skráningar og myndbandsupptökur sem starfsfólk greindi og ræddi saman. Sú vinna veitti innsýn í áhrif hljóðheims leikskólans á daglegt starf og hvernig tónlist gat ýmist ýtt undir óróa eða stuðlað að ró, vellíðan og þátttöku barna. Eitt af því sem við skerptum á varðandi tónlist og söng er hvernig hægt er að nota hann til að breyta andrúmslofti. Við skoðuðum markvisst hvernig hægt væri að fanga athygli yngri barna með því að nýta kunnugleg söng- og hreyfilög til að breyta taktinum á deildinni þegar þess þarf, til dæmis í samverustund þegar börn á yngstu deild koma inn eftir útiveru.
Á öðru ári verkefnisins beindist áherslan að hæglæti í útinámi og útiveru. Horfið var frá þeirri hugsun að gönguferðir þyrftu alltaf að hafa ákveðinn áfangastað eða skýrt markmið. Þess í stað var lögð áhersla á hæglætisgöngutúra þar sem börnum var gefinn tími og rými til að staldra við, skoða, upplifa og njóta ferðarinnar sjálfrar.
Á þriðja ári beindist áherslan að sköpun í gegnum hæglæti. Starfsfólkið skoðaði hvernig skapa mætti betri aðstæður fyrir börn til að njóta skapandi vinnu á eigin forsendum. Áhersla var lögð á ferlið fremur en afraksturinn og mikilvægi þess að gefa börnum tíma, svigrúm og næði til að fylgja eigin hugmyndum.
Að setja upp hæglætisgleraugun
Samhliða þessari vinnu rýndi starfsfólkið markvisst í eigið starf, daglegar venjur og skipulag leikskólans. Starfsfólkið hefur lýst þessari vegferð með þeirri samlíkingu að hafa „sett upp hæglætisgleraugu“ til að skoða skólastarfið frá nýju sjónarhorni.
Með þeim hætti varð auðveldara að sjá hvaða þættir styðja við vellíðan, þátttöku og nám barna og hvaða þættir kunna að skapa óþarfa hraða eða álag. Reynslan sýndi að hæglæti snýst ekki um að gera minna heldur að vera meðvitaðri um það sem skiptir máli og gefa því rými til að þróast.
Samtalið varð lykilþáttur í þessari þróun, bæði samtal starfsfólks innbyrðis og samtal við börnin. Skráningar studdu við faglega umræðu, styrktu ákvarðanir og gerðu þróun starfsins sýnilegri.
Að mati eins starfsmanns upplifði hann ákveðna innri togstreitu og lýsti því sem svo að hann væri „að flækjast fyrir sjálfum sér“. Starfsmaðurinn upplifði sig sem kvikan einstakling en hann hefur meðvitað unnið að því að hægja á sér, efla sjálfsskoðun og vera meðvitaðri um líðandi stund með það fyrir augum að auka vellíðan og njóta andartaksins. Hann nýtti þannig fagmennsku sína í að rýna í sjálfan sig og aðstæður sínar til að ná fram skarpari innsýn inn í hæglæti og hugarheim barnanna.
Að finna taktinn saman
Ein helsta áskorunin var að dýpka skilning okkar á hugmyndafræði hæglætis og tryggja að allt starfsfólk fengi innsýn í hana. Við þurftum að skapa henni merkingu fyrir hvert og eitt okkar svo hún gæti smitast yfir í starfshætti og við fyndum saman réttan takt.
Við lærðum enn betur að meta hugarheim barna og þá sýn sem þau hafa á aðstæður og tíma. Með rannsókninni urðum við jafnframt öruggari í að rökstyðja og þróa eigið starf.
Þegar kemur að því að móta verkefni sem þetta innan skóla og skerpa á ákveðinni hugmyndafræði innan menningar er aldrei komið að lokapunkti. Að halda á lofti ákveðnum hugmyndum og verklagi er stöðugt ferli sem krefst þess að ígrundun og samtal haldi áfram.
Hæglæti er ekki „staðlaður efniviður“ sem hægt er að kaupa og innleiða. Við upplifum hæglæti fremur sem ákveðna afstöðu til lífsins og starfshátta í leikskólanum.
Allt starfsfólk þarf að vera meðvitað um hugarheim barna og að þau hafa sína eigin sýn á heiminn. Við sem starfsfólk erum mikilvægar fyrirmyndir þegar kemur að því að gefa okkur tíma, rýna í og ígrunda aðstæður.
Fá byrjun var vilji allra í Uglukletti að vera með í þróunarverkefninu og þar var enginn undanskilinn, starfsfólk á deildum, eldhúsi og skrifstofu vildu vera með. Þannig fékkst fram að allir þekktu starfshættina og þær áherslur sem hæglætið gengur út á. Með slíkri þátttöku var samtalið um verkefnið dýpra, fleiri sjónarhorn fengust og sama tungutakið var notað um allt húsið. Þannig festist menningin í veggjum alls skólans en ekki einungis inni á einni deild og smitaðist tungutakið meira að segja inn á heimili barnanna. Samvinna okkar við hina þátttökuskólana var einnig mikilvæg. Með því að geta talað saman og rætt reynslu okkar á þeim vettvangi fékkst skemmtilegt og lærdómsríkt tækifæri til að deila þekkingu og reynslu um leikskólastarfið.

Um höfunda
Kristín Gísladóttir er leikskólastjóri í leikskólanum Uglukletti og hefur starfað þar frá árinu 2007. Hún lauk B.Ed.-prófi 2002 og M.S.-prófi í forystu og stjórnun frá Háskólanum á Bifröst 2020. Hún hefur einnig lokið stjórnendanámsleiðinni Sterkari stjórnsýsla frá Háskólanum á Bifröst.
Elín Friðriksdóttir er aðstoðarleikskólastjóri í leikskólanum Uglukletti og hefur starfað þar frá árinu 2008. Hún lauk B.Ed.-prófi 2004 og M.Ed.-prófi í kennslufræði og skólastarfi 2021 frá Háskóla Íslands auk þess sem hún hefur lokið viðbótardiplómu í heilbrigði og heilsuuppeldi og í starfstengdri leiðsögn, frá sama skóla. Hún hefur einnig lokið stjórnendanámsleiðinni Sterkari stjórnsýsla frá Háskólanum á Bifröst.


Anna Magnea Hreinsdóttir og Kristín Dýrfjörð
Magnea Arnardóttir
Anna Lilja Sævarsdóttir, Ragnheiður I. Ragnarsdóttir og Lísbet Reykjalín Elvarsdóttir