Ingvar Sigurgeirsson

„Í skólum þar sem áhersla er á leiðsagnarnám er rík jafningjamenning“ Viðtal við Ívar Rafn Jónsson

4. ágúst, 2023

Ingvar Sigurgeirsson ræðir við Ívar Rafn Jónsson

Föstudaginn 13. maí 2022 varði Ívar Rafn Jónsson doktorsritgerð sína við Háskóla Íslands. Ritgerðina nefndi hann: Námsmatsmenning skiptir máli: Upplifun kennara og nemenda af námsmati og endurgjöf.

Ívar Rafn stundaði nám í sálfræði við Háskóla Íslands og lauk BA gráðu í þeirri grein 1998. Hann lauk kennsluréttindanámi frá sama skóla 2006 og meistaranámi í kennslufræðum 2010. Hann kenndi við Borgarholtsskóla 2006‒2012 en flutti sig síðan í Framhaldsskólann í Mosfellsbæ 2011 og kenndi þar til 2020. Ívar Rafn réðst til Háskóla Íslands 2018 og gegndi þar aðjúnktstöðu. Hann hefur nú verið ráðinn lektor við Háskólann á Akureyri. 

Ég naut þeirra forréttinda að sitja í doktorsnefnd Ívars Rafns, sem fyrst hafði vakið athygli mína þegar hann skrifaði grein í Netlu 2008 sem bar heitið „Að virkja sjálfstæða hugsun nemenda“. Sálfræðikennari rýnir í sjálfan sig (sjá hér). Ég leyni því ekki að þessi grein, var og er ein af uppáhaldsgreinum mínum í Netlu, en þar segir hann frá starfendarannsókn sem hann gerði og beindist að því að kveikja áhuga nemenda á námi með fjölbreyttum kennsluaðferðum.

Ívar Rafn birti 2015 aðra grein í Netlu, sem hann skrifaði með samkennara sínum, Birgi Jónssyni, um og fjallar um aðferð sem þeir beittu til að bæta leiðsagnarmat í áföngum sínum sem þeir kenndu í FMOS með aðferðum sem þeir kenndu við Vörðuvikur og byggðust á því að taka viðtöl við nemendur þar sem áherslan er lögð á nemandi og kennari eigi samtal um námið og kennsluna.

Ívar Rafn hóf doktorsnám árið 2015 og ákvað að helga það leiðsagnarnámi. Í tengslum við doktorsverkefni sitt birti hann þrjár fræðigreinar í viðurkenndum vísindatímaritum, sjá hér

Eftirfarandi viðtal unnum við Ívar með þeim hætti að ég sendi honum spurningar sem hann svaraði og hann fékk líka umboð til að setja fram eigin spurningar. Textann höfðum við á svæði sem báðir höfðu aðgang að og smám saman tók textinn á sig þá mynd sem hér birtist. (meira…)

Breytingar á áfengis- og kannabisneyslu íslenskra unglinga 1995−2015

Ársæll Már Arnarsson

Undanfarna tvo áratugi hefur verulega dregið úr áfengisneyslu íslenskra unglinga. Þetta hefur komið endurtekið fram í nokkrum könnunum, meðal annars með þátttöku Íslands í Evrópsku vímuefnarannsókninni (ESPAD – European School Survey Project on Alcohol and Other Drugs). Í þeirri könnun er öllum skólum á Íslandi, sem eru með nemendur í 10. bekk, boðin þátttaka og hafa skólastjórnendur sýnt þessu verkefni bæði skilning og hjálpsemi. Það hefur vitanlega mikið gildi að taka þátt í samevrópsku verkefni sem 49 önnur lönd leggja fyrir í grunnskólum sínum á sama tíma. Þar með skapast óviðjafnanleg tækifæri til samanburðar og greiningar. Sömuleiðis er það mikilvægt að Ísland hefur tekið þátt í ESPAD-verkefninu frá upphafi árið 1995 sem þýðir að hægt er að leggja mat á langtímabreytingar í neyslu unglinga og viðhorfum þeirra til vímuefna og annarra þátta í þeirra lífi. (meira…)

Til umhugsunar um framtíð skólaíþrótta

Aron Laxdal og Sveinn Þorgeirsson

Kennsla í skólaíþróttum virðist einkennast af heilsuorðræðu, íþróttavæðingu og óhóflegri áherslu á keppni. Skoðun höfunda þessarar greinar er að endurskoða þurfi kennsluhætti og inntak í þessari mikilvægu námsgrein. Mögulegar afleiðingar núverandi áherslna eru fjölmargar og margþættar, og geta haft neikvæð áhrif á viðhorf ákveðinna nemenda til hreyfingar og almennrar líkams- og heilsuræktar til lengri tíma. Með ákveðnum breytingum væri hægt að bjóða flestum nemendum upp á kennslu við hæfi; þar sem innri gildi hreyfingar, samvinna og háttvísi fengi meira vægi en núverandi áhersla á líkamlegt atgervi og færni í einstökum íþróttagreinum. Slík nálgun myndi að öllum líkindum hafa betri langtímaáhrif á lýðheilsu þjóðarinnar en núverandi nálgun gerir. (meira…)

Samvinnunám: Aðferð til að styrkja lýðræðislegt skólastarf

Birt til heiðurs dr. Ingvari Sigurgeirssyni prófessor sjötugum

Guðrún Ragnarsdóttir

Algengt er að innan skólastofunnar, sem og á öðrum vettvangi, birtist valdakerfi sem gefur ákveðnum einstaklingum og hópum meira rými en öðrum. Ýmislegt getur styrkt þetta kerfi en þar má nefna ríkjandi menningu og hegðun, uppröðun í kennslustofu, skipulag kennslustunda og námsaðferðir.  Kennarinn gegnir lykilhlutverki þegar kemur að námi og samskiptum nemenda (Kidd og Czerniawski, 2011) og þarf því að velta því fyrir sér hvernig hið dæmigerða valdakerfi birtist í þeim ólíku námshópum sem hann kennir. Hann þarf að velta upp spurningum á borð við: Hverjir taka pláss í umræðunni og hvernig? Hverjir ráða og af hverju? En einnig þarf hann að hugsa um það hvernig hægt er að hafa áhrif á ríkjandi valdakerfi og vinna með markvissum hætti gegn því.

Í þessu samhengi ætla ég að fjalla um samvinnunám og þýðingu þess fyrir skólastarf í tengslum við aðferðir sem styrkja lýðræðislega menningu í kennslustofunni. Í dag byggi ég sjálf nánast alla mína kennslu á þessari hugmyndafræði. Ég hef tileinkað mér hana á löngum tíma eða allt frá því að ég fór að hafa efasemdir um aðferðir mínar í kennslu strax í upphafi míns kennsluferlis. Á þeim tíma byggði ég kennsluna fyrst og fremst á beinni einhliða miðlun og verkefni nemenda voru að mestu þannig að þeir unnu einir í vinnubækur. Á sama tíma og ég tókst á við efasemdir mínar um eigið ágæti og aðferðir bauðst mér einstakt tækifæri til að starfa að fjölbreyttum verkefnum á vettvangi menntamála fyrir Evrópuráðið þar sem áherslan var á menntun til lýðræðis og mannréttinda (sjá Evrópuráðið, e.d.). Ég tók þátt í að þróa fjölbreytt námskeið fyrir kennaramenntendur og var hugmyndafræði samvinnunáms og lýðræðis alltaf í forgrunni. Ég öðlaðist í því samstarfi verkfæri sem auðvelduðu mér að takast á við áskoranir mínar í kennslu og þróa mig áfram sem kennara.

Fyrir mér er samvinnunám bæði kennslufræðilega og félagslega mikilvæg aðferð til að virkja alla og gefa öllum nemendum mínum rými og athygli. Ég hef einnig notað þessar aðferðir í vinnu minni sem stjórnandi og tel þær því ekki bara gagnlega í kennslu heldur í allri samvinnu manna á milli á ólíkum vettvangi. (meira…)

Árborgarmódelið í skólamálum – hvað gerðum við?

5. janúar, 2017

thorsteinnÞórdísÞorsteinn Hjartarson, fræðslustjóri hjá Sveitarfélaginu Árborg og Þórdís H. Ólafsdóttir, verkefnisstjóri hjá skólaskrifstofu Hafnarfjarðar


Í tengslum við umræðuna um PISA og þann samanburð sem hefur verið birtur milli átta stærstu sveitarfélaga landsins hefur margt verið ritað og rætt að undanförnu. Því hefur jafnvel verið haldið fram að bæting hjá Árborg, Hafnarfirði og Reykjanesbæ í PISA sé vegna þess að sveitarfélögin séu að vinna nánast eins í skólamálum. Einn forsvarsmanna vefritsins Skólaþráða hafði samband við fræðslustjóra til að spyrja nánar út í skólamálaáherslur Árborgar og í kjölfarið var ákveðið að skrifa grein í ritið sem gæti kynnt í stuttu máli það sem gert hefur verið í skólamálum sveitarfélagsins á undanförnum misserum. Greinarhöfundar hafa báðir tekið virkan þátt í breytingastarfinu í Sveitarfélaginu Árborg. Þorsteinn Hjartarson frá haustdögum 2011 og Þórdís H. Ólafsdóttir sem kennsluráðgjafi frá haustdögum 2013 fram undir mitt ár 2016 er hún færði sig í Hafnarfjörð. Þar tók hún við starfi verkefnastjóra í bættum námsárangri hjá skólaskrifstofu bæjarins. Greinarhöfundar eru sammála um að þeir geti ekki sagt nákvæmlega til um hvað það er sem hefur skilað bættum árangri Árborgar í PISA en bætinguna megi þó vafalaust rekja til samspils margra þátta sem hér fá nokkra umfjöllun. (meira…)

Átak í breyttum kennsluháttum – innleiðing spjaldtölva í Kópavogi

5. janúar, 2017

bjorn_gunnlaugssonBjörn Gunnlaugsson, verkefnisstjóri


Niðurstöður samræmdra prófa voru tilefni fréttar sem birt var á vef Kópavogsbæjar seint í mars 2015, fáeinum dögum áður en höfundur þessa greinarkorns hóf störf sem verkefnastjóri spjaldtölvuinnleiðingar í grunnskólum bæjarins. Í fréttinni kom fram að grunnskólar í Kópavogi hefðu verið yfir landsmeðaltali í öllum greinum og árgöngum þetta árið. Það mátti því líta svo á að skólastarf í Kópavogi væri í miklum blóma, að minnsta kosti miðað við þennan mælikvarða. (meira…)

Getur sýndarveruleiki nýst til að skapa betri skilning?

1. janúar, 2017

ingvi_hrannarIngvi Hrannar Ómarsson, grunnskólakennari og kennsluráðgjafi


Í nóvember sl. hélt ég erindi á ársþingi Samtaka áhugafólks um skólaþróun. Erindið bar heitið: Hvernig á að fjalla um stóru málin í skólum? Á ráðstefnunni var leitast við að svara þessari spurningu: Hvernig á að fjalla í skólum um flóttamannavandann, loftslagsmálin, stríð, hryðjuverk, fátækt, jafnréttismál, framtíðina? Ráðstefnan var með þjóðfundasniði og byggðist á virkri þátttöku fundargesta þar sem leitast var við að svara þessari spurningu, en einnig voru flutt nokkur stutt erindi, og var mitt eitt þeirra. Í erindinu leitaðist ég við að sýna þá möguleika sem sýndarveruleikatækni gefur til að nemendur geti betur sett sig í annarra spor.

(meira…)

Hvernig sköpum við börnum bestu tækifærin til að læra?

29. desember, 2016

gah

Guðrún Alda Harðardóttir, pedagogista


Aðalþing, heitir leikskóli í Kópavogi, sem vakið hefur mikla athygli fyrir margháttað þróunarstarf. Ritstjórn leitaði til dr. Guðrúnar Öldu Harðardóttur, sem er kennsluráðgjafi við skólann og falaðist eftir grein. Guðrún Alda notar gjarnan starfsheitið pedagogista, en Aðalþing starfar í anda Reggio Emila hugmyndafræðinnar, og þetta heiti er gjarnan notað um þá starfsmenn sem gegna leiðtogahlutverki. Guðrún tók okkur vel og ákvað að skrifa um hugmyndir sínar (kenningu sína) um þá þætti sem helst móta skólastarf. Í raun er hún í þessari grein að skrifa um grundvallarhugmyndir sínar, þ.e. um starfskenningu sína (e. professional theory). Kjörið er að lesa greinina og spyrja sig um leið um eigin afstöðu!

(meira…)

„Það er gott að geta valið það sem maður VILL læra“ – Um Brúna – þróunarverkefni í Brúarásskóla

27. desember, 2016

 Ingvar Sigurgeirsson í samstarfi við starfsfólk Brúarásskóla

Í Brúarásskóla í Jökulsárhlíð er verið að fást við áhugavert þróunarverkefni, sem gengur undir nafninu Brúin. Verkefnið hófst haustið 2015 og er því á öðru ári. Verkefnið hefur hlotið styrk úr Sprotasjóði.

Í skólanum stunda á þessu skólaári 40 grunnskólanemendur og 9 leikskólabörn nám. Brúarverkefnið nær til beggja skólastiganna og vísar heiti þess vísar í margar áttir – til náttúrunnar, örnefnanna og brúnna, bæði yfir árnar, sem og milli aldurshópa og námsgreina. Í skólanum er áhersla lögð á að nemendur á ólíkum aldri vinni saman og á samþættingu, í formi þemavinnu og heildstæðra viðfangsefna.

Sá sem þetta ritar átti þess kost nú í nóvember sl. að heimsækja skólann og kynna sér verkefnið; ræða við skólastjóra og kennara, fylgjast með nemendum við námið, ræða við þá og vera viðstaddur verkefnaskil þeirra. Mér fannst þetta starf svo áhugavert að ég fór þess á leit við skólastjóra, Stefaníu Malen Stefánsdóttur, að fá með hennar aðstoð og kennaranna, að taka saman grein um verkefnið. Greinin er skrifuð í samstarfi okkar og byggð á gögnum sem þau létu í té, sem og á viðræðum mínum við starfsfólk og nemendur. (meira…)

Að hugsa út fyrir rammann: Áhugasviðsverkefni á unglingastigi í Borgarhólsskóla

15. desember, 2016

Halla Rún Tryggvadóttir og Kolbrún Ada Gunnarsdóttir, kennarar við Borgarhólsskóla á Húsavík


Hér er sagt frá áhugasviðsverkefnum sem nemendur á unglingastigi í Borgarhólsskóla á Húsavík fá tækifæri til að glíma við. Þessi verkefni hafa vakið athygli út fyrir skólann og orðið öðrum hvatning til að fara inn á svipaðar brautir. Athygli er vakin á því að í greininni eru hlekkir sem vísa á ýmis gögn sem kennararnir hafa þróað (námssamnings- og dagbókarform, verklýsingar og matsblöð). (meira…)

Útvarp Óðal 101,3: Jólaútvarp nemenda í Grunnskólanum í Borgarnesi

10. desember, 2016

kristin_m_valgardsdottirKristín M. Valgarðsdóttir, deildarstjóri, Grunnskólanum í Borgarnesi

Útvarp Óðal 101,3, jólaútvarp Nemendafélags Grunnskólans í Borgarnesi, er árviss viðburður á aðventunni og ómissandi liður í jólaundirbúningi í Borgarbyggð.  Útsendingar standa yfir í fimm daga og er það orðinn fastur liður í lífi margra  Borgnesinga að hlusta á ungmennin flytja efni af ýmsum toga meðan þeir vinna að jólaundirbúningnum eða sinna vinnu sinni. Síðustu ár hefur einnig verið sent út á netinu þannig að hvar sem er í veröldinni má hlusta á útvarpið. Fm Óðal hefur góðan hlustendahóp en samkvæmt hlustendakönnun sem gerð var árið 2012 hlustuðu 90% íbúa í Borgarnesi á þætti í jólaútvarpinu. (meira…)

Af hverju var heimspekinni ekki hleypt inn í tíma?

10. desember, 2016

johannJóhann Björnsson, heimspekikennari við Réttarholtsskóla


Einu sinni varð bankahrun á Íslandi og eftir fall bankanna 2008 varð heimspekin og lykilþættir hennar, gagnrýnin hugsun og siðferðileg yfirvegun æ oftar til umræðu á opinberum vettvangi. Gerð var rannsóknarskýrsla á vegum Alþingis um orsakir ófaranna í bankakerfinu og í viðauka við skýrsluna kemur fram að ein af ástæðum efnahagshrunsins hafi verið skortur á gagnrýninni hugsun. Skýrsluhöfundar benda á leiðir til úrbóta sem felast m.a. í þjálfun gagnrýninnar hugsunar: Þjálfa þarf gagnrýna hugsun og efla læsi borgaranna á hvers kyns áróður og innistæðulausa ímyndarsmíð. Síðar í sömu skýrslu segir: Í skólum landsins þarf að styrkja ábyrgðarkennd nemenda gagnvart samfélaginu, efla gagnrýna hugsun og vitund þeirra sem borgara í lýðræðissamfélagi …[i] (meira…)

Ferli barns frá hugmynd að listaverki – jólagjöf til pabba og mömmu

8. desember, 2016

anna_gretaAnna Gréta Guðmundsdóttir


Þessi grein er útdráttur úr bókinni Ég get ákveðið hvað ég bý til, ég hugsa það mjög vel með huganum sem unnin var í Sæborg vorið 2016. Í henni segir frá því hvernig jólagjöf barnanna í Sæborg hefur þróast frá því að vera kennarastýrð yfir í það að börnin ákveða hvað sjálf viðfangsefnið og hvaða efnivið þau vilja nota. Bókina sjálfa er að finna hér.


jolagjafahandbok
Bókin opnast ef smellt er á myndina.

(meira…)

Þrjú áhugaverð verkefni í Hvanneyrardeild Grunnskóla Borgarfjarðar

8. desember, 2016

helgaHelga J. Svavarsdóttir, deildarstjóri Hvanneyrardeildar G.B.


Fyrir skömmu heimsótti einn af ritstjórnarmönnum Skólaþráða Hvanneyrardeild Grunnskóla Borgarfjarðar (hét áður Andakílsskóli). Skemmst er frá því að segja að í þessum litla skóla er öflugt starf á mörgum sviðum og var því falast eftir grein um einhverja þætti í starfinu. Svo vildi til að Helga J. Svavarsdóttir, deildarstjóri, hafði nýlega skrifað slíka grein í Borgfirðingabók, sem er ársrit Sögufélags Borgarfjarðar. Í greininni segir hún frá þremur áhugaverðum verkefnum. Því var óskað eftir leyfi til að birta greinina hér í Skólaþráðum með smávægilegum breytingum og var það góðfúslega veitt. (meira…)

1 26 27 28 29

Færslusafn

Fara íTopp