Skólaþræðir 10 ára – litið um öxl og fram á veg

15. nóvember, 2026

Ingvar Sigurgeirsson og Ingólfur Ásgeir Jóhannesson

Tímaritið Skólaþræðir fagnar um þessar mundir 10 ára afmæli og þótti ástæða til að fagna tímamótunum með því að líta yfir farinn veg og skoða sögu þess á liðnum áratug. Einnig var greinin rituð til að skapa grundvöll fyrir umræðu um stefnu og framtíð tímaritsins. Höfundar fóru yfir efni tímaritsins frá upphafi og freistuðu þess að leggja mat á hvernig til hefði tekist.

Hvers vegna veftímarit um skólaþróun 2016?

Mat stjórnar Samtaka áhugafólks um skólaþróun var að brýnt væri að til væri rit með aðgengilegu efni um menntarannsóknir, kennsluhætti og skólaþróun fyrir kennara og aðrar uppeldisstéttir. Þetta var meðal annars vegna þess að þótt kennarar vilji gjarnan nýta sér rannsóknir við undirbúning kennslu er þekkt að þeir hafa ekki alltaf ráðrúm til að lesa sér til um niðurstöður þeirra (OECD, 2022; van Schaik o.fl., 2018). Líklega er það oftast í tengslum við eigið framhaldsnám eða aðra starfsþróun að kennarar og annað fagfólk í skólum les ritrýnt efni. Þetta hefur þó ekki verið kannað hér á landi og örugglega engin algild regla til um lestur kennara á fræðigreinum.

Um miðjan síðasta áratug voru gefin út tvö tímarit um menntamál sem birtu öðru fremur ritrýnt efni, það er Netla – veftímarit um uppeldi og menntun og Tímarit um uppeldi og menntun. Ekki var á þessum tíma mikið gefið út af almennu efni fyrir kennara og annað fagfólk um skólastarf, skólaþróun, kennsluhætti og menntarannsóknir. Þó má nefna Skólavörðuna sem kennarasamtökin gefa út og rit einkum ætluð tilteknum faghópum, svo sem Glæður, fagtímarit Félags íslenskra sérkennara; Skímu, málgagn móðurmálskennara og Flatarmál, málgagn stærðfræðikennara.

Við undirbúning Skólaþráða var sérstaklega horft til Netlu á upphafsárum hennar þótt Ný menntamál, sem samtök kennara gáfu út frá 1983–1999, væru einnig höfð til hliðsjónar. Netla var í raun helsta fyrirmyndin, en til hennar var stofnað af áhugahópi kennara við Kennaraháskóla Íslands 2002. Þar birtist í fyrstu fjölbreytt efni, ekki aðeins ritrýndar greinar, heldur einnig erindi, frásagnir af þróunarstarfi, umræðugreinar, hugleiðingar, pistla, viðtöl, ritfregnir og ritdóma. Netla var raunar með fyrstu veftímaritum sem gefin voru út hér á landi. Eftir að upphaflegi ritstjórnarhópur Netlu hvarf frá breyttist tímaritið smám saman og er nú einkum vettvangur fyrir ritrýndar greinar.

Stofnun Skólaþráða

Markviss undirbúningur að stofnun Skólaþráða hófst í ársbyrjun 2016 og í maí var skipuð ritstjórn: Ásmundur Örnólfsson aðstoðarleikskólastjóri, Hafsteinn Karlsson skólastjóri, Þorbjörg Þorsteinsdóttir verkefnisstjóri í upplýsingatækni hjá Skóla og frístundasviði Reykjavíkurborgar, Valgerður S. Bjarnadóttir framhaldsskólakennari og doktorsnemi. Þess var gætt að í ritstjórninni væru fulltrúar leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla, en það var sá markhópur sem ritið var hugsað fyrir. Ásmundur hvarf fljótlega frá og tók Anna Magnea Hreinsdóttir, sem þá var sviðsstjóri fræðslu- og velferðarsviðs Borgarbyggðar, við hlutverki hans sem fulltrúi leikskólastigsins. Ákveðið var að Ingvar Sigurgeirsson starfaði með ritstjórninni sem fulltrúi stjórnar samtakanna. Þau Anna Magnea og Ingvar hafa því bæði verið í ritstjórn frá upphafi.

Fyrsti fundur ritstjórnar með stjórn Samtaka áhugafólks um skólaþróun var haldinn 6. júní 2016. Á dagskrá var hagnýtur undirbúningur þess að gefa ritið út, þar með talið að leita til sérfræðinga í upplýsingatækni og vefmiðlun varðandi birtingarform. Þorbjörg leiddi þessa vinnu en Tryggvi Thayer var fenginn til að sjá um tæknimál. Helga Ágústsdóttur, grafískur hönnuður og kennsluráðgjafi veitti ráðgjöf um hönnun og útlit.

Ákveðið var að efna til hugmyndasamkeppni um nafn og átti Vigfús Hallgrímsson, þróunarfulltrúi grunnskóla í Hafnarfirði, hugmyndina að heitinu Skólaþróunarþræðir, sem stytt var í Skólaþræði. Í framhaldi af því var keypt lén og samið um hýsingu þess. Jafnframt var hafist handa um efnisöflun og gekk vel að fá fyrstu greinarnar.

Hvers konar efni hefur birst í Skólaþráðum?

Fyrsta efnið birtist í Skólaþráðum. nóvember 2016, það er stutt frétt um ársþing samtakanna sem það ár fjallaði um það sem kennt var við stóru málin: Hvernig á að fjalla í skólum um flóttamannavandann, loftslagsmálin, stríð, hryðjuverk, fátækt, jafnréttismál, framtíðina?

Þann 6. desember sama ár birtist viðtal við Jón Thoroddsen, heimspekikennara í Laugarlækjarskóla, um nýja bók hans Gagnrýni og gaman: Samræður og spurningalist, en Jón var brautryðjandi í þessum efnum. Viðtalið hét Nemendur þurfa að finna að þeir séu teknir alvarlega sem vitsmunaverur. Fullyrða má að þetta viðtal við Jón, sem nú er látinn, eigi enn brýnt erindi við kennara og annað áhugafólk um gæði í skólastarfi. Seinna sama dag birtist í tímaritinu pistill eftir Hafþór Guðjónsson, sem þá var dósent við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, sem bar heitið Nám sem þátttaka en eins og síðar kemur fram átti hann eftir að skrifa marga pistla í ritið. Síðar í desember birtust greinar um skapandi viðfangsefni leikskólabarna, heimspekimenntun, útvarpsstöð sem nemendur í Borgarnesi halda úti í desember, áhugasviðsverkefni á unglingastigi, þar sem byggt er á verkefnamiðuðu námi, þemanám og teymiskennsla í fámennum skóla og grein um hvernig við sköpum börnum bestu tækifærin til að læra.

Þegar þessi grein er skrifuð, í byrjun nóvember 2026, eru birtingar í Skólaþráðum rúmlega 300 eða yfir 30 á hverju ári, og skiptast í greinar, bókafregnir, pistla og fréttir. Rúmlega 100 greinar tengjast málefnum grunnskólans og tæpur þriðjungur fjallar um efni ótengt ákveðnu skólastigi. Tólf greinar fjalla um málefni háskólastigsins. Um 30 greinar tengjast framhaldsskólastiginu og jafn margar um leikskólastigið. Nokkrar greinar tengjast tveimur skólastigum, leik- og grunnskólum eða grunn- og framhaldsskólum.

Tólf viðtöl hafa birst í ritinu og tvö þeirra einnig í enskri þýðingu. Þá hafa birst 13 bókadómar og bókafregnir og um 30 pistlar, það er stuttar umræðugreinar. Fyrstu árin birtust stundum fréttabrot í ritinu en því var fljótlega hætt eftir að samtökin tóku að sér Skólaþróunarspjallið á Facebook; fréttir úr starfi samtakanna eru birtar þar.

Meirihluti greina í Skólaþráðum eru annars vegar frásagnir af áhugaverðum skólaþróunar- eða nýbreytniverkefnum og hins vegar umræðugreinar um tiltekin efni.

Flestar greinar um nýbreytni og skólaþróun fjalla um þróunarstarf sem kennarar eru að prófa sig áfram með ýmsar kennsluaðferðir, yfirleitt aðferðir sem kenna má við nemendamiðaðar aðferðir, það er aðferðir sem beinast öðru fremur að því að virkja nemendur til þátttöku og sjálfstæðrar vinnu. Hér má nefna skapandi verkefni af ýmsu tagi, áhugasviðsverkefni, samþættingar- og þemanámsverkefni, samvinnunám, þjónustunám, verkefnamiðað nám, jafningjakennslu, lýðræðismenntun, nýsköpun, námsstöðvar, frumkvöðlanám, umhverfis- og sjálfbærnimennt, útinám, val í námi, leiki sem kennsluaðferð og velferðarkennslu. Nokkrar greinar hafa birst um notkun snjalltækja, gervigreindar eða upplýsingatækni í námi, vendinám, samræðuaðferðir og hina hugsandi skólastofu í stærðfræði. Ekki má gleyma greinum um námsmat, einkum um innleiðingu og aðferðir leiðsagnarnáms og leiðsagnarmats, en alls hafa birst 18 greinar um það efni.

Þá má nefna umræðugreinar um teymiskennslu, nýstárleg viðfangsefni, hæglátt leikskólastarf, námsumhverfi, námsefnisgerð og notkun námsefnis, starfsþróun, inngildandi skólastarf, starfendarannsóknir, starfsumhverfi og vinnustaðamenningu. Þá er að nefna greinar um fagmennsku og gæði í skólastarfi, menntakerfi, menntastefnu, inntak og markmið náms, námskrá, samstarf menntastofnana, heimspeki menntunar, kennaramenntun og rannsóknir. Ekki má gleyma greinum um læsi en alls hafa tæplega 20 greinar fjallað um það efni frá ýmsum hliðum, svo sem um læsishugtakið, lesfimi og lestrarkennsluaðferðir. Loks er þess að geta að þrjár greinar hafa einnig birst í enskri þýðingu og ein þeirra einnig á pólsku.

Frá upphafi hafa höfundar átt þess kost að birta ritrýndar greinar í Skólaþráðum. Eftirspurn hefur hins vegar verið lítil og til þessa aðeins birst tvær ritrýndar greinar. Skýringin er líklega sú að birting fæst ekki metin sem svokölluð aflstig í stigamatskerfi háskólanna en það eru líka þegar til að minnsta kosti tvö tímarit, Netla og Tímarit um uppeldi og menntun, sem birta ritrýndar greinar á sviði menntavísinda.

Eins og sjá má af þessu yfirliti um inntak þeirra greina sem birst hafa í Skólaþráðum er efnið afar fjölbreytt. Því má vel halda fram að það endurspegli þá miklu grósku sem einkennir skólastarf hér á landi á öllum skólastigum sem mikilvægt er að varpa ljósi á, þar sem fjölmiðlar virðast því miður öðru fremur hafa áhuga á því sem miður er talið hafa farið.

Útbreiðsla

Ekki hafa verið gerðar formlegar kannanir á lestri greina í Skólaþráðum. Að vísu er hægt að sjá hversu margir nálgast hverja grein, sem væntanlega gefur vísbendingar um lestur. Því miður varð breyting á vefumhverfi fyrir nokkrum árum, skipt um teljara og fyrri tölum ekki haldið til haga, nema að vitað var hvaða greinar höfðu oftast verið skoðaðar. Sú grein sem flestir höfðu opnað var grein Rannveigar Oddsdóttur Hversu hratt er nógu hratt? – Tengsl lestrarhraða, lesfimi og lesskilnings sem birtist 21. febrúar 2018 (sjá hér) sem var að nálgast 20 þúsund innlit. Rannveig var þá sérfræðingur við Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri, nú dósent við Háskólann á Akureyri. Í greininni gagnrýnir hún ofuráherslu á lestrarhraða við mælingar á læsi, en um nokkurt skeið hafði verið mikil umræða um þýðingu hraðamælinga. Sú grein sem næst komst grein Rannveigar er einnig um lestur, en það er grein Baldurs Sigurðssonar Punktar um læsi (í víðum skilningi) sem birt var 2017 (sjá hér). Áhugavert er að greinar um lestur fá almennt mikla skoðun, í samanburði við margt annað efni.

Á fimm ára afmæli ritsins 2021 var gerð tilraun til að forvitnast um lestur greina í ritinu með því að spyrja á Skólaþróunarspjallinu hvort grein í Skólaþráðum hafi vakið athygli en undirtektir voru litlar. Þá er lítið vitað um notkun efnis úr Skólaþráðum í grunn- og framhaldsnámi kennara eða annarra fagstétta, eða í tengslum við starfsþróun þeirra.

Óformleg fyrirspurn höfunda til kennara á Menntavísindasviði Háskóla Íslands, í Háskólanum á Akureyri og Listaháskóla Íslands leiddi í ljós að nokkrir háskólakennarar nota greinar úr ritinu og hafa sumir þeirra góð orð um þýðingu ritsins. Sem dæmi má nefna þessi svör: Skólaþræðir eru einmitt góður vettvangur til að vekja athygli á rannsóknunum okkar. Hægt að birta þar meginniðurstöður og þau sem hafa áhuga á að vita meira geta þá farið í fræðigreinarnar – sem eru oft alltof lítið lesnar. Í öðru svari segir: Við bendum oft á greinar í Skólaþráðum enda er það mjög mikilvægur vettvangur fyrir fræðilega og hagnýta umræðu um menntun. Og loks þetta: Þær hjálpa oft við að ýta undir umræður og ígrundun því þær eru skrifaðar á „mannamáli“ og gefa bæði mynd af skólastarfi á vettvangi og sýn, stefnu og áskorunum í menntamálum sem fólk tengja við og rýna í samhliða öðru lesefni.

Þá er þess að geta að við endurskoðun Litrófs kennsluaðferðanna (Ingvar Sigurgeirsson o.fl., 2025) fóru höfundar skipulega yfir efni Skólaþráða og settu inn í nýju útgáfuna ábendingar um greinar sem þar höfðu birst og tengdust vel efni bókarinnar. Bókinni fylgir vefsíða (sjá hér) og þar er bent á nýjar greinar.

Nýjar greinar eru kynntar á Skólaþróunarspjallinu á Facebook (sjá hér) og í fleiri hópum þar ef efnið er talið eiga erindi þangað.

Hverjir skrifa í Skólaþræði?

Höfundar greina í Skólaþráðum eru fjölbreyttur hópur: kennarar á öllum skólastigum, skólastjórnendur, verkefnisstjórar, fræðslustjórar, ráðgjafar og sérfræðingar.

Háskólakennarar hafa komið að ritun 146 greina. Rétt er þó að taka fram að nokkrir hafa skrifað margar greinar. Þar er fyrst að nefna Hafþór Guðjónsson, fyrrverandi dósent við Menntavísindasvið HÍ, sem skrifaði reglulega pistla í ritið, eða alls 19 greinar um fjölbreytt efni, meðal annars læsi, gagnrýna hugsun og kennsluaðferðir. Gaman er að segja frá því að margar þeirra birti hann í bók, Menntun í félagsmenningarlegu ljósi, sem hann gat út 2026, ásamt fleira efni. Ingvar Sigurgeirsson, fyrrverandi prófessor við Menntavísindasvið hefur skrifað 16 greinar, einn eða með öðrum. Atli Harðarson, fyrrverandi prófessor við Menntavísindasvið hefur komið að birtingu tíu greina, greina, bókadóma og þýðinga, en Atli hefur verið ötulastur háskólakennara við að kynna bækur í Skólaþráðum. Ólafur H. Jóhannsson, fyrrverandi lektor við Menntavísindasvið hefur birt átta greinar og Rúnar Sigþórsson, fyrrverandi prófessor við Háskólann á Akureyri er höfundur eða einn höfunda að sjö greinum. Alls hafa rúmlega 80 háskólakennarar lagt af mörkum til greina í Skólaþráðum.

Grunnskólakennarar og skólastjórnendur eru næst afkastamestir og flestar greinar sem þeir skrifa fjalla um nýbreytni og skólaþróunarverkefni af ýmsu tagi. Nokkur dæmi eru um að háskólakennarar hafi fengið nemendur sína, kennara eða stjórnendur í framhaldsnámi, til að rita pistla í Skólaþræði.

Efnisöflun

Á upphafsárunum lagði ritstjórnin áherslu á að safna efni skipulega með því að hafa samband við hugsanlega höfunda og biðja um efni sem gjarnan tengdist þeim málefnum sem efst voru á baugi á hverjum tíma. Þetta skilaði oft ágætum árangri en var að mestu hætt þegar framboð efnis fór að aukast. Allar greinar sem birtast í Skólaþráðum eru lesnar af að minnsta kosti tveimur úr ritstjórn og fá höfundar athugasemdir þeirra og ábendingar til að vinna úr áður en greinar eru birtar. Áhersla hefur verið lögð á ritstjórn hraði þessari vinnu og hafa því flestar greinar, ef þær þörfnuðust ekki mikilla breytinga, birst innan viku frá því að handrit var lagt fram.

Þrátt fyrir að framboð efnis sé nokkuð gott eru þó talsverðar sveiflur í fjölda innsendra handrita. Ýmislegt hefur verið reynt til að afla efnis þegar minna hefur borist. Sem dæmi var á upphafsárunum leitað eftir samstarfi við Sprotasjóð um að styrkþegum yrði heimilt að skila lokaskýrslu um þróunarverkefni sem grein í tímariti eða miðli, til dæmis Skólaþráðum. Því miður varð ekki af þessu og aldrei fengust neinar skýringar á því hvers vegna þetta var ekki heimilað.

Nokkrum sinnum hefur verið efnt til samkeppni um ritun greina. Sú fyrsta var 2021 þegar óskað var eftir greinum um þróunarstarf í leikskólum, til dæmis um nýbreytni, aðferðir, nálganir, skemmtilegar hefðir, námsumhverfi, hugmyndir og hugmyndafræði eða rannsóknir. Þátttaka var ekki mikil en fjórar greinar voru verðlaunaðar. Næst árið 2024 var leitað eftir greinum sem fjölluðu um framhaldsskólastigið og fáeinar greinar birtar í kjölfarið. Síðasta samkeppnin í tengslum við 20 ára afmæli Samtaka áhugafólks um skólaþróun árið 2025. Leitað var eftir greinum um þróunar- og umbótastarf og umræðugreinum um stefnur og strauma í skólastarfi. Eftirsóknarvert þótti að fá greinar um árangursríka kennsluhætti og samstarfsverkefni, innlend eða alþjóðleg. Enn voru undirtektir ekki miklar en þrjár greinar hafa þó verið birtar.

Síðla árs 2024 var efnt til nokkurs konar samkeppni um lýsingar á áhugaverðu námsumhverfi. Óskað var eftir myndefni sem sýndi námsumhverfi eða önnur námsrými, list- og verkgreinastofur, verkstæði eða önnur rými fyrir skapandi starf, útikennslustofur, leikvelli, skólasöfn eða aðstöðu fyrir tómstundir og félagsstarf. Snjallar lausnir við að skipuleggja rafrænt námsumhverfi komu einnig til greina. Þetta skilaði ágætum árangri og birtust fimm greinar í kjölfarið. Hins vegar skilaði hliðstæð ósk um lýsingar á á vinnusvæðum (valsvæðum, stöðvavinnu eða hringekjum) engum árangri þótt verðlaun væru í boði.

Loks er að nefna afmælisgreinar en alls birtust 46 greinar á árunum 2020 og 2021 í tengslum við sjötugsafmæli annars greinarhöfundar (sjá yfirlit hér).

Framtíðin

Þegar mat er lagt á þýðingu þess að halda útgáfu Skólaþráða áfram verður að líta til þeirra breytinga sem hafa orðið að undanförnu á vettvangi umræðu um menntamál. Í fyrsta lagi hefur orðið gjörbreyting á tíðni birtinga á vefmiðlum. Sem dæmi má nefna að nú líður varla sá dagur að ekki birtist grein um menntamál á visir.is. Þá birtast oft fréttir af skólamálum á mbl.is en athygli vekur að þær eru oftar en ekki um það sem miður þykir hafa farið. Þá virðist höfundum að umfjöllun um menntamál hafi aukist í útvarpi. Í umræðuþáttum á Samstöðinni eru menntamál oft brotin til mergjar og hlaðvörp um menntamál hafa verið að ryðja sér til rúms á undanförnum árum. Einnig hafa verið góðir þættir og þáttaraðir í Ríkisútvarpinu.

Annar veikleiki dægurumræðunnar er hversu skammvinn hún er. Jafnvel vandaðar og áhugaverðar greinar á miðlum á borð við visir.is fá oft aðeins athygli í einn dag, eða skemur, áður en þær hverfa í sífellt hraðara upplýsingaflæði. Í veftímariti, eins og Skólaþráðum, er greinum haldið til haga. Þær verða áfram aðgengilegar og enginn skortur á plássi.

Þegar litið er yfir sviðið í heild sinni má halda því fram að nú sé jafnvel enn meiri þörf en áður fyrir miðil sem fjallar um menntamál af yfirvegun og fagmennsku. Við teljum því nokkuð brýna þörf fyrir tímarit á borð við Skólaþræði sem er opið og aðgengilegt.

Hér að framan var vikið að því að ritrýnt efni nýttist því miður ekki sem skyldi í skólamálaumræðu og starfsþróun. Margoft hefur verið bent á að gjá sé á milli þeirra sem rannsaka nám og kennslu og þeirra sem eiga að nýta niðurstöður rannsóknanna til að bæta skólastarf (Rycroft-Smith, 2022; Schlicht-Schmälzle, 2014). Annar greinarhöfunda var fyrir nokkru viðstaddur fyrirlestur háskólakennara sem var að kynna mjög áhugaverðar og hagnýtar rannsóknarniðurstöður. Aðspurð um hvar mætti lesa sér betur til um efnið svaraði hún: Allt í erlendum ritum – því miður – því við þurfum að safna aflstigum. Háskólakennari sem ekki birtir reglulega ritrýndar fræðigreinar fær ekki rannsóknarleyfi eða framgang í starfi. Aðgengileg skrif á íslensku vega lítið í þessu matskerfi – ritrýnt efni hefur forgang. Þetta þýðir að önnur skrif mæta afgangi eða er ekki sinnt. Hér er tekið svo djúpt í árinni að staðhæfa að knýjandi nauðsyn sé til að breyta matskerfi háskólanna á þann hátt að aðgengilegri skrif fyrir fagstéttir fái aukið vægi. Hið síðasttalda nær örugglega til fleiri fagstétta en þeirra sem heyra undir menntavísindi.

Væntingar ritstjórnar hafa einkum tengst tvenns konar framlagi frá háskólasamfélaginu. Annars vegar aðgengilegum greinum á íslensku þar sem greint er frá rannsóknum á uppeldi, námi og kennslu, gjarnan með tilvísunum í annað fræðilegt efni, innlent og erlent. Hins vegar kynningum á áhugaverðum bókum, eða öðru efni sem á erindi við kennara og aðrar fagstéttir, líkt og Atli Harðarson hefur verið ötull við að birta og vikið var að hér að framan. Fjölgun birtinga af þessu tagi hefði væntanlega gildi fyrir grunn- og endurmenntun kennara og annarra fagstétta sem tengjast menntun og skólastarfi.

Þrátt fyrir þann hemil, sem matskerfi háskólanna setur á birtingu annars efnis en ritrýnds, eru vissulega dæmi um að vel hafi verið tekið til hendi við almennar kynningar á rannsóknarniðurstöðum. Gott dæmi og fyrirmynd er framlag fræðafólks sem staðið hefur að QUINT-rannsókninni (Quality in Nordic Teaching, sjá hér) en þar er að um að ræða verkefni sem byggðist á samvinnu innlendra fræðimanna við erlenda fræðimenn og starfandi kennara. Niðurstöður eru hagnýtar og má nota til að bæta kennslu. Þær hafa verið kynntar á kennaranámskeiðum og á fræðslufundum fyrir kennara. Rannsóknarhópurinn hefur gefið út fræðirit á íslensku fyrir kennaramenntun og starfsþróun og til hafa orðið gögn og aðferðir sem nú eru nýttar í kennaramenntun. Enn má nefna fjölsótta ráðstefnu hér á landi um niðurstöðurnar. Auk fræðilegra greina í innlend og erlend fræðirit skrifaði rannsóknarhópurinn bæði greinar á visir.is, auk greinar í Skólaþræði (sjá hér). Fleiri mættu fylgja þessu góða fordæmi. Gildi vinnubragða af þessu tagi fyrir kennaramenntun og starfsþróun fagstétta er ótvírætt.

Annar draumur aðstandenda Skólaþráða hefur verið að fá fleiri kynningar á niðurstöðum rannsóknar- og þróunarverkefna og þá ekki hvað síst skólaþróunarverkefna sem fengið hafa opinbera styrki. Nefnt hefur verið að skýrslur, til dæmis þeirra sem hlotið hafa styrki úr Sprotasjóði, nýtast ekki sem skyldi.

Skólaþræðir eru gefnir úr af áhugafólki. Vinna við ritið er sjálfboðavinna, ef undan er skilin stöku umbun fyrir ritun greina þegar efnt hefur verið til samkeppni um birtingar. Slík útgáfa hlýtur að standa veikt. Spyrja verður hvort hægt sé að treysta hana með formlegu samstarfi við aðra aðila, til dæmis kennarasamtökin, kennaramenntastofnanir eða Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.

Kjörið er að nota þetta tilefni, tíu ára afmæli ritsins, til að meta stöðuna og endurskoða stefnu og vinnubrögð. Þessi grein var rituð til að skapa grundvöll fyrir slíka umræðu.

Heimildir

Ingvar Sigurgeirsson, Súsanna Margrét Gestsdóttir og Svava Pétursdóttir. (2025). Litróf kennsluaðferðanna. Iðnú.

OECD. (2022). Who Cares about Using Education Research in Policy and Practice?: Strengthening Research Engagement. Educational Research and Innovation, OECD Publishing. https://doi.org/10.1787/d7ff793d-en.

Rycroft-Smith, L. (2022). Knowledge brokering to bridge the research-practice gap in education: Where are we now? Review of Education, 10(1), e3341. https://doi.org/10.1002/rev3.3341Digital Object Identifier (DOI)

Schlicht-Schmälzle, R., Hill, J., Folkvord, K. A., Tharaldsen, K. B., Wargo, J., Hartmann, U. og Révai, N. (2024). Bridging the research-practice gap in education: Initiatives from 3 OECD countries (OECD Education Working Papers No. 319). OECD Publishing. https://doi.org/10.1787/c0d3f781-en DOI

van Schaik, P., Volman, M., Admiraal, W. og Schenke, W. (2018). Barriers and conditions for teachers’ utilisation of academic knowledge. International Journal of Educational Research, 90, 50–63. https://doi.org/10.1016/j.ijer.2018.05.003


Um höfunda

Ingvar Sigurgeirsson (ingvars(hjá)hi.is) er prófessor emeritus í kennslufræði við Háskóla Íslands og sjálfstætt starfandi skólaráðgjafi. Hann lauk kennaraprófi frá Kennaraskóla Íslands 1970 og B.Ed.-prófi frá Kennaraháskóla Íslands 1985, meistaragráðu frá Háskólanum í Sussex 1986 og doktorsgráðu frá sama skóla 1992. Rannsóknir Ingvars hafa einkum snúist um kennsluhætti, kennsluaðferðir, námsmat, heimanám og skólaþróun og nú á síðustu árum um teymiskennslu. Ingvar hefur skrifað námsefni, greinar, skýrslur og bækur um kennslufræði og skólastarf.

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson (ingo(hjá)hi.is) er prófessor emeritus við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Hann lauk bakkalárprófi í sagnfræði og uppeldisfræði 1979, námi til kennsluréttinda 1980 og cand.mag.-prófi í sagnfræði 1983 frá Háskóla Íslands, og doktorsprófi í menntunarfræðum frá Wisconsinháskóla, Madison, 1991. Sérsvið hans eru námskrár, framhaldsskólar, menntastefna og kynjafræði í menntarannsóknum. Nýjustu rannsóknir Ingólfs og félaga eru um nýliða í grunnskólakennslu.

Grein birt 15. nóvember 2026

image_pdfSmelltu hér fyrir PDF skjal

Færslusafn

Fara íTopp