gervigreind

Spjallmenni í kennslu

26. janúar, 2025

Fríða Gylfadóttir og Tinna Ösp Arnardóttir

Umræða er nú mikil um hvaða tækifæri notkun gervigreindar býður upp á í námi og kennslu. Margir álíta að hún bjóði upp á framfarir á meðan aðrir hafa efasemdir um gildi hennar í menntun. Í ljósi þessa þurfa kennarar að íhuga markvisst þá möguleika sem gervigreind býður uppá í kennslu en líka þær áskoranir sem tilkoma hennar inn í skólastarf hefur í för með sér. Með notkun gervigreindar hafa kennarar tækifæri til að endurskipuleggja vinnu sína og jafnvel hugsa kennsluna upp á nýtt. Gott dæmi um slíka nýsköpun er notkun spjallmenna í kennslu, en þeim er hægt að beita til að veita nemendum persónulega einstaklingsmiðaða aðstoð, þau má nota til að dýpka skilning og auka virkni nemenda í kennslustofunni. Hér verður sagt frá dæmi um þetta sem byggir á reynslu okkar sem kennarar í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ. (meira…)

Gervigreind frá sjónarhóli samræðuhyggju

Ívar Rafn Jónsson

Greinin fjallar um notkun gervigreindar í námi út frá sjónarhóli samræðuhyggju. Færð eru rök fyrir því að hefðbundnar hugmyndir um nám geti haft áhrif á hvernig tekst til við að innleiða gervigreind í skólastarf. Í greininni beini ég sjónum að því hvernig samræða við gervigreind getur litið út í anda þeirrar samræðuhyggju sem Rupert Wegerif (2025) lýsir í bókinni Rethinking Educational Theory. Með þessari nálgun er leitast við að hugsa um leiðir til að nýta gervigreindina til að styðja við gagnrýna hugsun, gaumgæfa sjónarmið annarra og spyrja góðra spurninga. Slík nálgun kallar á endurskoðun kennsluhátta þar sem áhersla er færð frá miðlun yfir á hlutverk kennarans í að styðja við og efla samræðuna. (meira…)

Að kenna gervigreind í framhaldsskóla

Geir Finnsson

Á vorönn 2025 bauð Menntaskólinn við Sund upp á nýjan áfanga um gervigreind og ábyrga notkun á henni. Áfanginn, sem ber heitið Gervigreind & samfélag, var settur á laggirnar í kjölfar ört vaxandi áhrifa gervigreindar, nánar tiltekið spunagreindar (e. generative AI) á skólastarfið auk umræðu innan skólans um mikilvægi þess að fræða nemendur um áhrif, tækifæri og áskoranir sem fylgja þessari nýju tækni. Með spunagreind er átt við skapandi gervigreind sem getur útbúið alls kyns texta, mynd- og hljóðefni út frá sérstökum skipunum. Markmið áfangans var að undirbúa nemendur undir nýjan veruleika þar sem gervigreind gegnir sífellt stærra hlutverki, jafnt í námi sem og starfi. Hér verður fjallað um reynslu mína af kennslu þessa áfanga, innihaldi hans og þær kennsluaðferðir sem stuðst var við. (meira…)

Gervigreind í kennslu: Hvorki heimsendir né töfralausn – heldur verkfæri

Fríða Gylfadóttir og Tinna Ösp Arnardóttir

Umræða um gervigreind í skólum sveiflast oft milli tveggja öfga. Annars vegar á tæknin að gjörbylta námi á einni önn og hins vegar á hún að eyðileggja ritfærni, gagnrýna hugsun og sjálfstæði nemenda. Raunveruleikinn í kennslustofunni er sem betur fer allt annar. Gervigreind er verkfæri sem þarf að læra á, nota með ábyrgð og kennslufræðina að leiðarljósi.

Hvað getur gervigreind gert fyrir okkur kennara og nemendur okkar? Við áttuðum okkur fljótt á því hvert svarið var: Gervigreind getur gagnast vel í kennslustofunni en aðeins ef kennarinn heldur áfram að sinna sínu hlutverki.

Í þessari grein deilum við reynslu okkar af notkun gervigreindar í daglegu skólastarfi, hvað virkar, hvað kemur á óvart og hvað við höfum lært. (meira…)

Spunagreind í skólastarfi: Innleiðing eða samleiðing?

5. október, 2026

Tryggvi Thayer, Hannes Ottósson og Ívar Rafn Jónsson

Í Aðgerðaráætlun um gervigreind 2024-2026 er meðal annars fjallað um innleiðingu gervigreindarlausna í íslenskt menntakerfi. Það ætti í sjálfu sér ekki að koma á óvart enda um stefnumótandi plagg að ræða og vaninn að tala um innleiðingu í því samhengi. Þegar talað er um innleiðingu er gjarnan átt við tiltekið ferli sem á sér upphaf og endapunkt þar sem viðkomandi tækni eða annars konar nýjung telst að fullu innfelld í starfsemina sem um er að ræða.

En hvað gerist þegar tæknin sem á að innleiða og aðstæður innleiðingarinnar breytast á meðan ferlið stendur yfir? Í þessari grein verða færð rök fyrir því að hefðbundin innleiðingarhugsun henti illa í því óvissuástandi sem skapast þegar örar tæknibreytingar verða. Hér er lagt til nýyrðið samleiðing til að lýsa ferli þar sem tækni og starfshættir eru leidd saman í gagnkvæmu og viðvarandi þróunarferli. Orðið vísar þannig til þess að ekki sé aðeins verið að leiða inn nýja tækni í fyrirliggjandi starfshætti, líkt og hugtakið innleiðing gefur til kynna, heldur þróist tæknin og starfshættirnir samhliða og móti hvort annað. Í þeim skilningi sækir hugtakið samleiðing til fræðilegrar hugmyndar um co-evolution, þar sem tvö eða fleiri kerfi þróast í gagnkvæmu samspili.

Í greininni er sjónum beint sérstaklega að spunagreind, þeirri tegund gervigreindar sem hefur á skömmum tíma haft hvað sýnilegust áhrif á ritun, verkefnavinnu, undirbúning kennslu og námsmat. Það má deila um hversu mikil formleg innleiðing spunagreindar hafi í raun orðið, en sú spurning er ekki aðalatriðið hér. Mikilvægara er að spyrja hvort raunhæft sé að innleiða, í hefðbundinni merkingu hugtaksins, tækni sem breytist svo hratt og snertir svo marga þætti skólastarfs. (meira…)

Færslusafn

Fara íTopp