samvinnunám

Samvinnunám: Aðferð til að styrkja lýðræðislegt skólastarf

9. mars, 2021

Birt til heiðurs dr. Ingvari Sigurgeirssyni prófessor sjötugum

Guðrún Ragnarsdóttir

Algengt er að innan skólastofunnar, sem og á öðrum vettvangi, birtist valdakerfi sem gefur ákveðnum einstaklingum og hópum meira rými en öðrum. Ýmislegt getur styrkt þetta kerfi en þar má nefna ríkjandi menningu og hegðun, uppröðun í kennslustofu, skipulag kennslustunda og námsaðferðir.  Kennarinn gegnir lykilhlutverki þegar kemur að námi og samskiptum nemenda (Kidd og Czerniawski, 2011) og þarf því að velta því fyrir sér hvernig hið dæmigerða valdakerfi birtist í þeim ólíku námshópum sem hann kennir. Hann þarf að velta upp spurningum á borð við: Hverjir taka pláss í umræðunni og hvernig? Hverjir ráða og af hverju? En einnig þarf hann að hugsa um það hvernig hægt er að hafa áhrif á ríkjandi valdakerfi og vinna með markvissum hætti gegn því.

Í þessu samhengi ætla ég að fjalla um samvinnunám og þýðingu þess fyrir skólastarf í tengslum við aðferðir sem styrkja lýðræðislega menningu í kennslustofunni. Í dag byggi ég sjálf nánast alla mína kennslu á þessari hugmyndafræði. Ég hef tileinkað mér hana á löngum tíma eða allt frá því að ég fór að hafa efasemdir um aðferðir mínar í kennslu strax í upphafi míns kennsluferlis. Á þeim tíma byggði ég kennsluna fyrst og fremst á beinni einhliða miðlun og verkefni nemenda voru að mestu þannig að þeir unnu einir í vinnubækur. Á sama tíma og ég tókst á við efasemdir mínar um eigið ágæti og aðferðir bauðst mér einstakt tækifæri til að starfa að fjölbreyttum verkefnum á vettvangi menntamála fyrir Evrópuráðið þar sem áherslan var á menntun til lýðræðis og mannréttinda (sjá Evrópuráðið, e.d.). Ég tók þátt í að þróa fjölbreytt námskeið fyrir kennaramenntendur og var hugmyndafræði samvinnunáms og lýðræðis alltaf í forgrunni. Ég öðlaðist í því samstarfi verkfæri sem auðvelduðu mér að takast á við áskoranir mínar í kennslu og þróa mig áfram sem kennara.

Fyrir mér er samvinnunám bæði kennslufræðilega og félagslega mikilvæg aðferð til að virkja alla og gefa öllum nemendum mínum rými og athygli. Ég hef einnig notað þessar aðferðir í vinnu minni sem stjórnandi og tel þær því ekki bara gagnlega í kennslu heldur í allri samvinnu manna á milli á ólíkum vettvangi. (meira…)

 „Við fórum út með bros á vör og hlýju í hjarta“ – Samkennd og sjálfræði í Verzlunarskóla Íslands

Ásta Henriksen, Benedikt Ingi Ásgeirsson, Berta Gerður Guðmundsdóttir og Guðrún Inga Sívertsen

Þróunarverkefni hafa skipað mikilvægan sess í skólastarfi Verzlunarskóla Íslands undanfarin ár. Haustið 2022 var fyrsta verkefnið lagt fyrir nemendur en það var samþættingarverkefni fimm námsgreina sem byggði á heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Undirbúningur verkefnisins hófst með því að kennara var veittur kennsluafsláttur til að leggja grunn að þróunarverkefni. Í framhaldinu var komið á fót stýrihópi innan skólans undir stjórn sama kennara. Síðar sama ár voru þrír kennarar ráðnir í hlutastarf sem þróunarstjórar við skólann, þar á meðal kennarinn sem hafði leitt verkefnið frá upphafi og hafa þeir síðan stýrt verkefninu og bera ábyrgð á skipulagningu þess, framkvæmd og áframhaldandi þróun. (meira…)

Færslusafn

Fara íTopp