öryggi í skólum

Hættan gerir ekki boð á undan sér – Um öryggi og viðbúnað í íslenskum grunnskólum

10. september, 2026

Svava Magdalena Hönnudóttir

Nýlegt rútuslys á Íslandi þar sem grunnskólabörn voru að leið í skólasund vakti spurningar um viðbúnað skóla þegar slys verða á skólatíma. Eftir áreksturinn voru börnin send fótgangandi í sund án þess að gengið væri úr skugga um meiðsli en síðar um daginn kom í ljós að nokkrir nemendur höfðu slasast og þörfnuðust aðhlynningar. Foreldrar gagnrýndu viðbrögð og upplýsingargjöfina og kölluðu eftir skýrari ábyrgð og verkferlum þegar slys eða áföll verða (Silja Rún Sigurðardóttir, 2026). Atvikið má skoða sem dæmi um að öryggi í skólum mætti fela í sér víðtækari sýn en eingöngu að skapa öruggt námsumhverfi enda skipta skýr viðbrögð og verkferlar sköpum þegar á reynir.

Öryggi nemenda í íslenskum grunnskólum var viðfangsefni í lokaverkefni mínu til BA-prófs í uppeldis- og menntunarfræði við Háskóla Íslands. Í rannsókninni voru greind opinber skjöl sem móta starf grunnskóla, það er að segja lög, reglugerðir og leiðbeinandi gögn um öryggi og viðbúnað. Leitast var við að svara því hvernig öryggi og viðbúnaður birtist í þessum skjölum og hvort sú mynd sem þar er dregin upp bendi til þess að nemendur njóti sambærilegs öryggis óháð skóla. (meira…)

Færslusafn

Fara íTopp