Bara pláss? Fagmennska og gæði í leikskólastarfi
Anna Magnea Hreinsdóttir, Sara Margrét Ólafsdóttir og Ingibjörg Ósk Sigurðardóttir
Leikskólinn gegnir lykilhlutverki í íslensku menntakerfi sem fyrsta skólastigið og er mikilvægur vettvangur fyrir nám, vellíðan og félagslega þátttöku barna. Samhliða sterkri stöðu leikskólastigsins og víðtækri þátttöku barna hefur þó opinber umræða á undanförnum árum einkennst af áskorunum sem snúa að mönnun, skipulagi og aðgengi. Slík umræða dregur oft fram skort og álag, en gefur jafnframt tilefni til að staldra við og spyrja spurninga um gæði, fagmennsku og hlutverk leikskólans í samfélaginu. Í þessari grein er leitast við að draga fram heildstæða mynd af leikskólastarfi á Íslandi. Fjallað er um stefnumótun, lagaramma og hugmyndafræði sem móta starfið, en jafnframt um þá spennu sem getur myndast milli metnaðarfullrar stefnu og aðstæðna í daglegu starfi. Sérstök áhersla er lögð á að varpa ljósi á gildi leikskólans sem menntastofnunar og mikilvægi þess að efla fagmennsku og gæði samhliða áframhaldandi þróun kerfisins. (meira…)
