Útvarp Óðal 101,3: Jólaútvarp nemenda í Grunnskólanum í Borgarnesi
Kristín M. Valgarðsdóttir, deildarstjóri, Grunnskólanum í Borgarnesi
Útvarp Óðal 101,3, jólaútvarp Nemendafélags Grunnskólans í Borgarnesi, er árviss viðburður á aðventunni og ómissandi liður í jólaundirbúningi í Borgarbyggð. Útsendingar standa yfir í fimm daga og er það orðinn fastur liður í lífi margra Borgnesinga að hlusta á ungmennin flytja efni af ýmsum toga meðan þeir vinna að jólaundirbúningnum eða sinna vinnu sinni. Síðustu ár hefur einnig verið sent út á netinu þannig að hvar sem er í veröldinni má hlusta á útvarpið. Fm Óðal hefur góðan hlustendahóp en samkvæmt hlustendakönnun sem gerð var árið 2012 hlustuðu 90% íbúa í Borgarnesi á þætti í jólaútvarpinu. Lesa meira…