Iðavöllur

Fjárfestum í framtíðinni: Læsi, fjöltyngi og réttur barna til náms og læsis

28. október, 2026

Anna Lilja Sævarsdóttir

Undanfarnar vikur hefur umræða um bókakost í leik- og grunnskólum vakið verðskuldaða athygli. Umræðan hefur beinst að því hvort aðgengi barna að bókum sé nægilegt, hvernig staðið sé að uppbyggingu skólabókasafna og hvaða afleiðingar það hafi þegar lestur og bókmenntir fá ekki þann sess sem þau eiga skilið í skólastarfi (Ríkisútvarpið, 2026). Þessar spurningar eru mikilvægar. Þær kalla á umræðu um fjármögnun, stefnumótun og innviði. En þær minna okkur líka á að aðgengi að bókum snýst ekki eingöngu um safnkost eða fjárveitingar, heldur um það hvers konar bernsku við viljum skapa. Umfram allt minna þær okkur á að bækur eru ekki aðeins námsúrræði heldur leið barna til tungumáls, ímyndunarafls og skilnings á sjálfum sér og öðrum. (meira…)

Færslusafn

Fara íTopp