farsæld

Náttúra, skepnur og farsælt líf

14. október, 2023

Ólafur Páll Jónsson

Mary Midgley byrjar bók sína, Skepna og maður: Rætur mannlegrar náttúru á orðunum: „Við erum ekki tiltölulega lík dýrum; við erum dýr.“ Hún heldur svo áfram og segir: „Það sem gerir okkur frábrugðin öðrum dýrum kann að vera sláandi, en samanburður við þau hefur verið, og er óhjákvæmilega, mikilvægur fyrir hugmyndir okkar um okkur sjálf“ (Midgley, 1979, bls. xiii).

Í þessari grein, sem byggð er á erindi sem ég hélt á Menntaviku 2023, fjalla ég um manneskjur sem dýr og um mannlega farsæld sem dýrslegt ástand, eða öllu heldur, sem dýrslegt hlutskipti. Nú þegar orðið „farsæld“ er nánast á hvers manns vörum er vert að staldra við og hugleiða merkingu þess. Ég lít svo á að farsæld sé ekki bara ástand, staða einhvers sem er mælanleg á tilteknum tímapunkti, heldur hlutskipti sem varðar aðstæður, sögu og væntingar einstaklingsins, og það umhverfi sem hann er hluti af, bæði náttúrulegt og manngert, efnislegt og menningarlegt. Til að skilja hverskonar hlutskipti það er í tilviki manneskja að njóta farsældar, þá verður að líta á það sem hlutskipti dýrs. En vissulega mjög sérstak dýrs. (meira…)

Fjölbreytt menntun er forsenda jafnréttis, farsældar og lýðræðis

Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir

Menntun snýst ekki aðeins um að afla þekkingar eða undirbúa einstaklinga fyrir atvinnulífið. Hún snýst um frelsi, sjálfstæði og raunveruleg tækifæri til að móta eigið líf. Þess vegna er fjölbreytt og vönduð menntun ein mikilvægasta forsenda farsældar, jafnréttis og lýðræðis.

Menntun er ein verðmætasta auðlind hvers samfélags. Hún opnar dyr, víkkar sjóndeildarhringinn og skapar möguleika sem annars væru ekki til staðar. Með aukinni þekkingu öðlumst við ekki aðeins hæfni til að takast á við verkefni heldur einnig forsendur til að taka upplýstar ákvarðanir, nýta gagnrýna hugsun, hafa áhrif á eigin aðstæður og móta eigin framtíð.

Í þessari grein er fjallað um mikilvægi fjölbreyttrar menntunar og hvernig hún getur skapað börnum raunverulegt val til framtíðar, aukið sjálfstæði þeirra og stuðlað að farsæld. Rýnt er í tengsl menntunar, jafnréttis og lýðræðis út frá fræðilegum hugmyndum um frelsi og mannlega hæfni, auk þeirra réttinda og markmiða sem íslensk löggjöf og aðalnámskrá grunnskóla byggja á. Jafnframt er þeirri spurningu velt upp hvort menntakerfið skapi öllum börnum raunveruleg tækifæri til að þroska hæfileika sína og nýta þá þekkingu sem þau öðlast. Því það er ekki nóg að eiga rétt á menntun; sá réttur þarf að birtast í fjölbreyttum námstækifærum sem gera hverju barni kleift að finna sína leið og móta eigin framtíð. (meira…)

Sýnd veiði eða gefin: Aðalnámskrá sem „vinnutæki“ fyrir „fólkið á gólfinu“

Rúnar Sigþórsson 

Í umræðum um gæði og þróun skólastarfs er iðulega horft til aðalnámskrár og bundnar vonir við áhrif hennar á gæði kennslu og náms. Þetta hefur til dæmis verið áberandi upp á síðkastið í umræðum um nýjustu niðurstöður PISA-prófanna og fallandi gengi íslenskra unglinga á þeim. Mennta- og barnamálaráðherra boðar endurskoðun og einföldun námskrárinnar með aukinni áherslu á lestur (ekki læsi!), íslensku, stærðfræði og raun- og tæknigreinar (Inga Sæland, 2026). Í beinu framhaldi af því segir ráðherrann: „Börn þurfa tíma til að skilja það sem þau læra og æfa sig þar til þau ná tökum á því“ og er helst að skilja að hin einfaldaða námskrá eigi að hjálpa þeim við það.   (meira…)

Færslusafn

Fara íTopp