trúarbragðafræði

Hugmynd um verkefni í samfélagsgreinum fyrir unglingastig

2. júní, 2026

Helgi Skúli Kjartansson

Verkefnið, sem hér fylgir á eftir, er lagt fram til kynningar og umræðu, í þeirri von að einhverjir lesendur a.m.k. hugleiði það. Og jafnframt í þeirri veiku von að einhverjum nýtist það í raunverulegri kennslu, en þá að sjálfsögðu með þeim breyt­ingum sem hver kennari kýs að gera á því.

Verkefnið snýst um Jesú og guðspjöllin og er gengið út frá því að hinn jarðneski Jesús hafi verið til. En nemendur eiga að geta unnið verkefnið saman án þess að vera sammála um hvort guð sé til og hvort hann hafi þá opinberast í Jesú og guð­spjöllunum eða ekki.

Verkefnið felst í að kynnast Biblíunni, einkum guðspjöllunum, með því að rýna í frásagnir þeirra af tveimur veislum sem Jesús tók þátt í. Um leið fæst nokkur æfing í að nota frásagnirnar sem heimildir um lífið á dögum Jesú og bera þær saman við aðrar heimildir, þ.e. myndlist síðari tíma. Einnig sjá nemendur dæmi um að þýðing jafngildir ekki alltaf frumtexta. (meira…)

Færslusafn

Fara íTopp