skólamenning

,,og ég held að traust sé upphaf og endir svo margra jákvæðra hluta í skólastarfi“ (Frelsi til að kafa djúpt IV)

13. mars, 2019

Oddný Sturludóttir

Þá er komið að fjórðu og síðustu grein minni um fjórðu leið skólaumbóta, sem þeir Hargreaves og Shirley fjalla um í bókum sínum Fourth Way og The Global Fourth Way. Í henni koma fyrir hugtök eins og  traust, hvatning, væntingar, bjartsýni til náms, endurgjöf, hugsun, sjálfstæð vinnubrögð og starfsgleði. Greinarnar byggja á meistaraverkefni mínu Frelsi til að kafa djúpt sem lýsir og greinir skólastarf alþjóðlegs skóla í Mið-Austurlöndum, Gardens Secondary School (hér eftir nefndur GSS). Þar dvaldi ég á vettvangi sem rannsakandi í tvö misseri en þræði saman við ferlið sjónarhorni mínu sem foreldri barna í skólanum. Í fyrri greinum mínum hef ég fjallað um skólastarfið í tengslum við fjórðu leið skólaumbóta, um nálgun skólans gagnvart tilgangi og markmiðum menntunar og þriðja greinin fjallaði um hvernig skólinn stendur að námsmati og starfsþróun.  Í þessari grein mun ég beina sjónum mínum að skólamenningu. (meira…)

Frá stefnu til skólabrags: Innleiðing Réttindaskólaverkefnisins í Vesturbæjarskóla

Guðlaug Elísabet Finnsdóttir

Þessi grein fjallar um það hvernig við í Vesturbæjarskóla í samstarfi við frístundaheimilið Skýjaborgir urðum Réttindaskóli og -frístund UNICEF og festum í sessi skólamenningu þar sem réttindi barna eru leiðarljós. Ákvörðun okkar um að gerast Réttindaskóli og -frístund UNICEF, vorið 2018, byggðist á faglegum forsendum um mikilvægi þess að kynna Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna fyrir öllu skólasamfélaginu. Markmiðið var að efla lýðræðislega og jákvæða skólamenningu. Rannsóknir sýna að réttindamiðuð nálgun getur dregið úr einelti og stuðlað að auknu umburðarlyndi og virðingu fyrir fjölbreytileika. Í innleiðingarferlinu stóðum við frammi fyrir ýmsum áskorunum eins og að gera flókin hugtök skiljanleg fyrir börn og að byggja upp sameiginlegan skilning og samræmda nálgun innan skólasamfélagsins.

Á degi mannréttinda barna, þann 20. nóvember 2019, fengum við í Vesturbæjarskóla og frístundaheimilinu Skýjaborgum okkar fyrstu viðurkenningu sem Réttindaskóli og -frístund UNICEF. Vorið 2022 fórum við í gegnum okkar fyrsta endurmat og í nóvember 2025 tókum við á móti okkar þriðju viðurkenningu sem Réttindaskóli og -frístund UNICEF við hátíðlega athöfn. (meira…)

Færslusafn

Fara íTopp