Lærdómur í ímynduðum heimi: Kraftur sérfræðingskápunnar
Ása Helga Proppé Ragnarsdóttir og Hákon Sæberg Björnsson
Íslenskt samfélag hefur þróast hratt á undanförnum áratugum frá menningarlegu einsleitu samfélagi yfir í samfélag sem er fjölmenningarlegt; þar sem nemendur koma frá ólíkum menningarheimum. Þessi breyting kallar á fjölbreytta kennsluhætti í skólum þar sem skapað er frjótt vinnuumhverfi, áhugi nemenda á viðfangsefnum er vakinn og tekið mið af bakgrunni, tungumáli, menningu og reynslu hvers og eins nemanda. Með því að leggja áherslu á virðingu, gagnkvæman skilning, inngildingu og samvinnu má stuðla að aukinni þátttöku allra nemenda og efla sjálfsmynd þeirra og námsárangur. Til að mæta þessum áskorunum dugar ekki einungis að viðurkenna mikilvægi menningarnæmrar nálgunar, heldur þarf einnig að innleiða kennsluaðferðir sem endurspegla þessi gildi í framkvæmd. Það felur í sér að skapa námsumhverfi þar sem rödd nemenda fær að heyrast, reynsla þeirra er metin að verðleikum og þeir fá tækifæri til að hafa áhrif á eigið nám. Með því að færa áhersluna frá einhliða miðlun þekkingar yfir í virka þátttöku nemenda má stuðla að aukinni ábyrgð, áhuga og innri hvata til náms. (meira…)