Frá stefnu til skólabrags: Innleiðing Réttindaskólaverkefnisins í Vesturbæjarskóla
Guðlaug Elísabet Finnsdóttir
Þessi grein fjallar um það hvernig við í Vesturbæjarskóla í samstarfi við frístundaheimilið Skýjaborgir urðum Réttindaskóli og -frístund UNICEF og festum í sessi skólamenningu þar sem réttindi barna eru leiðarljós. Ákvörðun okkar um að gerast Réttindaskóli og -frístund UNICEF, vorið 2018, byggðist á faglegum forsendum um mikilvægi þess að kynna Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna fyrir öllu skólasamfélaginu. Markmiðið var að efla lýðræðislega og jákvæða skólamenningu. Rannsóknir sýna að réttindamiðuð nálgun getur dregið úr einelti og stuðlað að auknu umburðarlyndi og virðingu fyrir fjölbreytileika. Í innleiðingarferlinu stóðum við frammi fyrir ýmsum áskorunum eins og að gera flókin hugtök skiljanleg fyrir börn og að byggja upp sameiginlegan skilning og samræmda nálgun innan skólasamfélagsins.
Á degi mannréttinda barna, þann 20. nóvember 2019, fengum við í Vesturbæjarskóla og frístundaheimilinu Skýjaborgum okkar fyrstu viðurkenningu sem Réttindaskóli og -frístund UNICEF. Vorið 2022 fórum við í gegnum okkar fyrsta endurmat og í nóvember 2025 tókum við á móti okkar þriðju viðurkenningu sem Réttindaskóli og -frístund UNICEF við hátíðlega athöfn. (meira…)