Minnkandi þörf fyrir menntun?
Atli Harðarson
Í þessari grein, sem byggð er á fyrirlestri sem ég hélt á ráðstefnu Kennsluakademíu opinberu háskólanna sem haldin var í Sögu 20. nóvember 2026, ræði ég spurningar um áhrif gervigreindar á aðsókn að skólum. Ég ræði þær með hliðsjón af gervigreind sem er þegar orðin til og felur í sér sjálfvirka úrvinnslu gríðargagna, greiningu á myndum og tali, þýðingar milli tungumála, framleiðslu texta á venjulegu mannamáli og mynda sem torvelt er að greina frá ljósmyndum. Undir hatti gervigreindar eru líka fjölmargar gerðir af sjálfvirkni, frá sjálfkeyrandi bílum til mikils og ítarlegs eftirlits með fólki. Framboð af allri þessari tækni fer mjög hratt vaxandi um þessar mundir.
Það sem ég segi um efnið eru vangaveltur og tilgátur enda traustri þekkingu á samfélagslegum áhrifum þessa nýja veruleika ekki til að dreifa. Ég veit ekki frekar en aðrir hvaða áhrif gervigreindin hefur á næstu áratugum. (meira…)