fronēsis

Er unnt að kenna og mæla „fronēsis“ kennara?

26. nóvember, 2020
Birt til heiðurs dr. Ingvari Sigurgeirssyni prófessor sjötugum

Kristján Kristjánsson

Það er mér mikið ánægjuefni að vera beðinn að skrifa pistil í Skólaþræði til heiðurs Ingvari Sigurgeirssyni sjötugum. Ég á ekkert nema góðar minningar um Ingvar frá þeim tíma er við unnum saman á Menntavísindasviði HÍ. Ég minnist með sérstöku þakklæti staðalspurningar Ingvars sem hann dembdi einatt á mig eftir loftborinn fyrirlestur um eitthvert heimspekilegt efni sem ég taldi vera þjóðaþrifamál fyrir menntun og kennslu í landinu: „Hvað þýðir þetta þá fyrir starf kennarans í skólastofunni?“ spurði Ingvar til að draga mig niður úr skýjunum. Ég gerði mitt besta, ef ég man rétt, til að láta spurninguna ekki koma mér úr jafnvægi; en ég kann því betur að meta þessa ísmeygilegu spurn sem lengra líður og ég hlusta á fleiri fyrirlestra um „menntamál“ er fara með himinskautum en án snertipunkta við raunverulegt skólastarf. Ég ætla að reyna að gera Ingvari það virðingarmark hér á eftir að draga heimspekilega spurningu niður úr háloftunum og inn í kennslustofuna. (meira…)

Færslusafn

Fara íTopp