Matsverkefni við lok 10. bekkjar
Kristrún Birgisdóttir
Ásgarðsskóli, skóli í skýjunum, er grunnskóli á unglingastigi sem starfar nánast alfarið á netinu. Starf skólans byggir á því að börnum sé mætt í námi á þann hátt sem hentar þeim en þó eftir ákveðnu formi og skipulagi sem gerir ráð fyrir að börn læri á ólíkan máta og að áhugasvið þeirra séu ólík. Kennslan er að stórum hluta leiðsagnarnám en byggir á sama tíma á skýrum markmiðum. Allir nemendur vinna samkvæmt aðalnámskrá grunnskóla og skipulag náms og kennslu byggir á kröfum yfirvalda þrátt fyrir að útfærslan sé að miklu leyti persónumiðuð.
Til að styðja við þessa nálgun var ákveðið að nýta erlendar fyrirmyndir og reynslu til að þróa vandað og yfirgripsmikið matsverkefni sem notað er við lok tíunda bekkjar. Þessi grein fjallar um matsverkefnið, framkvæmd þess og hvernig það hefur reynst í skólastarfi. (meira…)