Markviss vinna með samskipti styrkir heilbrigða vinnustaðamenningu

4. júní, 2026

Jóhanna Benný Hannesdóttir og Helena Sigurdórsdóttir

Í þessari grein lýsa höfundar þátttöku leikskólans Heiðarborgar í Reykjavík í samstarfsverkefni Vinnueftirlitsins, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands um vinnustaðamenningu í skólum. Tveir grunnskólar og þrír leikskólar tóku þátt í verkefninu sem beindist að því að efla heilbrigða vinnustaðamenningu, öryggi og vellíðan starfsfólks. Verkefnið þótti skila góðum árangri. Sjá um verkefnið hér.


Leikskólinn Heiðarborg er í Árbæjarhverfi í Reykjavík þar sem dvelja um 70 börn og starfsfólk er um 20 talsins. Heiðarborg er meðal þeirra fimm skóla sem tóku þátt í samstarfsverkefninu þar sem sjónum var meðal annars beint að því efla góð samskipti með því að endurskoða samskiptasáttmála leikskólans. Hér fer lýsing stjórnenda á reynslu þeirra af verkefninu.

Upphafið

Við höfðum óskað eftir því að fá að taka þátt í verkefninu og vorum valin okkur til mikillar ánægju. Vinnustaðamenningin var ekki eins og við vildum hafa hana og samskipti voru stirð. Töluvert var um ágreining og starfsmennirnir veigruðu sér við að láta í ljós skoðun sína, leysa málin og standa á sínu. Þátttaka í samstarfsverkefninu markaði nýtt upphaf eins og kom fram í orðum aðstoðarleikskólastjóra Heiðarborgar þegar samstarfsverkefnið var kynnt fyrir starfsfólki skólans: „Í dag er mikilvægur dagur. Í dag byrjum við upp á nýtt og leggjum grunn að betri vinnustað“.

Samskipti og sálrænt öryggi

Fljótlega eftir að við hófum vegferðina í verkefninu gafst okkur tækifæri til að spjalla við stuðnings- og ráðgjafateymi Reykjavíkurborgar. Það teymi, ásamt þeim sem héldu utan um samstarfsverkefnið, veitti okkur fræðslu og leiðbeiningar og hjálpaði okkur við að komast að kjarna málsins, það er samskiptunum. Góð samskipti eru mikilvæg á hverjum vinnustað en til að þau geti átt sér stað þurfa starfsmenn að finna sálrænt öryggi, þora að tjá skoðanir sínar, koma með hugmyndir án ótta við höfnun og að viðurkenna mistök. Til þess að styrkja sálrænt öryggi þurftum við því að skapa traust.

Samskiptasáttmáli

Leið okkar að trausti og góðum samskiptum var í gegnum samskiptasáttmálann sem hangið hafði svo til ósýnilegur upp á vegg til fjölda ára. Sáttmálinn var tekinn skoðunar og rýnt í hann lið fyrir lið og hver þáttur skoðaður vandlega. Síðan var unnið með hvern þátt út frá einkunnarorðum leikskólans sem eru vinátta, gleði og virðing.

Vinátta, gleði, virðing

Við unnum markvisst með einkunnarorð skólans, eitt í einu. Í vinnunni með vináttu einblíndum við á jákvæðar hliðar hvert hjá öðru. Við útbjuggum þrjár hróskrukkur þar sem fólk gat hrósað samstarfsmanni sínum. Þá bjuggum við til myndavegg þar sem starfsmenn hengdu upp mynd af sér og átti hún að vera lýsandi fyrir persónu viðkomandi starfsmanns. Þannig fengum við að kynnast fleiri hliðum samstarfsfélaga okkar.

Í vinnunni með gleðina vorum við með margs konar leiki og skemmtanir fyrir starfsfólkið. Í hverjum mánuði fékk einhver deildin nafnbótina „gleðideild“ og sá þá um að skipuleggja uppákomur á vinnutíma. Þetta heppnaðist mjög vel og skapaði ánægjulegar stundir.

Síðasta atriðið var virðing. Við einblíndum á að hlusta hvert á annað, bera ábyrgð á eigin tilfinningum og láta ekki aðra stjórna þeim, að segja varfærnislega það sem okkur finnst og sýna hvert öðru virðingu. Við bjuggum til trúnaðarkassa og var starfsfólki gefið rými til að viðurkenna mistök, efasemdir eða ótta. Einnig völdum við „starfsmann vikunnar“ sem okkur fannst hafa skarað fram úr þegar kom að virðingu.

Óvænt samvinnuverkefni skutu upp kollinum, líkt og þegar ein í hópnum bað tvo aðra um að aðstoða sig við að hekla nokkrar tátiljur. Þetta varð til þess að næstum allt starfsfólkið sat með heklunál og garn í kaffitímanum og heklaði fyrir samstarfsfélagann, verkefni sem vakti mikla gleði.

Samskipti og traust

Allt þetta og meira til hafði áhrif á samskipti og skapaði traust á milli starfsmanna. Vinnustaðamenningin í Heiðarborg batnaði til muna og við færðumst upp um mörg sæti í „Stofnun ársins“ sem er könnun Sameykis. Dagurinn sem við hófum vegferðina var sannarlega mikilvægur dagur og við höfum lagt grunn að betri vinnustað sem við höldum áfram að byggja ofan á.

Skrifað í skýin. Hugmyndir starfsfólks um virðingu og hvað vekti helst ótta. Ljósmynd: Jóhanna Benný Hannesdóttir.

Um höfunda

Helena Sigurdórsdóttir útskrifaðist sem þroskaþjálfi frá Kennaraháskóla Íslands árið 2003 og hefur starfað sem slíkur bæði á Ísland og í Noregi. Núna er hún í meistaranámi í menntunarfræði leikskóla hjá HÍ. Helena er sérkennslustjóri Heiðarborg og hefur starfað þar frá 2019.

Jóhanna Benný Hannesdóttir útskrifaðist sem leikskólakennari (fóstra) frá Fósturskóla Íslands vorið 1991. Hún hefur starfað sem leikskólakennari, deildarstjóri, aðstoðarleikskólastjóri og leikskólastjóri bæði á höfuðborgarsvæðinu sem og á Akureyri. Hún hóf störf í Heiðarborg í lok sumars 2017, þá sem aðstoðarleikskólastjóri, og tók við leikskólastjórastöðunni í janúar 2022.


Grein birt 4. júní 2026
image_pdfSmelltu hér fyrir PDF skjal

Færslusafn

Fara íTopp

Hefurðu lesið þessar greinar?

Markvisst samtal um teymisvinnu og sálrænt öryggi styrkir vellíðan og vinnustaðamenningu

Anna Valgerður Sigurðardóttir, Hermann Örn Kristjánsson og Ragnheiður Guðný Magnúsdóttir

Skýr hlutverk og skýrt verklag bæta samskipti, vellíðan og vinnustaðamenningu

Guðlaug Kristinsdóttir, Margrét Sæmundsdóttir og Sigríður María Sigurðardóttir Í þessari