leikskólastarf

Styrkleikar leikskólastigsins á Íslandi: Vangaveltur um skýrslu Eurydice fyrir árið 2019

10. september, 2019

Anna Magnea Hreinsdóttir

Í nýrri skýrslu Eurydice, samstarfsvettvangs Evrópuþjóða á sviði menntamála, má greina stöðu leikskólastigsins á Íslandi í samanburði við aðrar Evrópuþjóðir (European Commission/EACEA/Eurydice, 2019). Í skýrslunni er meðal annars fjallað um rétt barna til þátttöku í leikskólastarfi, umönnunarbilið sem myndast milli fæðingarorlofs og leikskóladvalar og kostnað foreldra við leikskólagöngu barna sinna. Grunnmenntun og starfsþróun kennara er skoðuð og gerð er grein fyrir kjarna leikskólastarfs, það er hvernig umönnun, kennsla og nám er skipulagt í námskrá og hvernig samfella er tryggð í námi barna. Að auki er rætt um mat á starfi leikskóla og á námi barna og framförum. Ýmsar vangaveltur vakna við lestur skýrslunnar sem verða viðraðar hér. (meira…)

Fjöltyngi og leikskólastarf

Fríða Bjarney Jónsdóttir

Nýlega sótti ég þriðju ráðstefnu Multilingual Childhoods en það er alþjóðlegt tengslanet rannsakenda, kennara og áhugafólks um fjöltyngi ungra barna. Að þessu sinni var ráðstefnan haldin í Hamar í Noregi og var áhersla lögð á menntun, stefnumótun og aðferðir í tungumálanámi ungra barna. Þátttakendur komu víða að en það vakti athygli mína að fyrir utan að tengjast menntun og lífi fjöltyngdra barna, voru langflestir þátttakendur sjálfir fjöltyngdir og þá ekki einungis færir í tveimur tungumálum heldur frekar fjórum eða fleiri. Á ráðstefnukvöldverðinum sat ég til borðs með áhugaverðri ungri konu, Guzel en hún er doktorsnemi og aðstoðarkennari í rússnesku sem öðru máli, við háskólann í Kazan (höfuðborg lýðveldisins Tatarstan í Rússneska sambandsríkinu, sjá hér: https://en.wikipedia.org/wiki/Kazan). Alltaf jafn spennandi að hitta einhvern frá stað sem maður þekkir ekki. (meira…)

Ný bók: Leikum, lærum, lifum – Um nám, leik og grunnþætti menntunar

Fréttatilkynning


Árið 2012 gerði RannUng (Rannsóknastofa í menntunarfræðum ungra barna) samstarfssamning við sveitarfélögin í Kraganum; Garðabæ, Hafnarfjörð, Kópavog, Mosfellsbæ og Seltjarnarnes, um rannsóknarverkefni í leikskólum með það að markmiði að auka þekkingu á leikskólastarfi í sveitarfélögunum og stuðla að auknum gæðum í leikskólastarfi.

Markmið verkefnisins var að vinna með tengsl leiks og náms í leikskólum út frá námsviðum aðalnámskrár leikskóla frá 2011. Skoðað var hvernig leikskólakennarar, umhverfið og barnahópurinn studdu við leik barna og nám. Gengið var út frá víxlverkun leiks og náms, þar sem leikurinn styður við nám og nám styður við leik. Starfendarannsókn og þróunarvinna var framkvæmd í fimm leikskólum, einum í hverju sveitarfélagi, þar sem ein deild tók þátt úr hverjum þeirra. (meira…)

Hörður Svavarsson (1960–2025): Rannsakandans og aðgerðasinnans minnst

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson

Snemma vors 2018 hafði Hörður Svavarsson samband við mig til að herma upp á mig loforð frá því mörgum árum fyrr: að leiðbeina honum við meistaraprófsrannsókn en í millitíðinni sinnti Hörður öðrum mikilvægum verkefnum í samfélaginu.

Við hittumst svo síðla vors þetta sama vor og Hörður byrjaði að undirbúa rannsóknarvinnuna. Hann var með skýrar hugmyndir um að hann vildi rannsaka leikrýmið sem leikskólabörn hefðu því að talið væri of þröngt um þau; ég setti nokkurs konar skilmála um að það yrði kynjafræðileg vídd í verkefninu sem Hörður féllst á.

(meira…)

Færslusafn

Fara íTopp