fjölmenningarkennsla

Fjöltyngi og leikskólastarf

23. október, 2019

Fríða Bjarney Jónsdóttir

Nýlega sótti ég þriðju ráðstefnu Multilingual Childhoods en það er alþjóðlegt tengslanet rannsakenda, kennara og áhugafólks um fjöltyngi ungra barna. Að þessu sinni var ráðstefnan haldin í Hamar í Noregi og var áhersla lögð á menntun, stefnumótun og aðferðir í tungumálanámi ungra barna. Þátttakendur komu víða að en það vakti athygli mína að fyrir utan að tengjast menntun og lífi fjöltyngdra barna, voru langflestir þátttakendur sjálfir fjöltyngdir og þá ekki einungis færir í tveimur tungumálum heldur frekar fjórum eða fleiri. Á ráðstefnukvöldverðinum sat ég til borðs með áhugaverðri ungri konu, Guzel en hún er doktorsnemi og aðstoðarkennari í rússnesku sem öðru máli, við háskólann í Kazan (höfuðborg lýðveldisins Tatarstan í Rússneska sambandsríkinu, sjá hér: https://en.wikipedia.org/wiki/Kazan). Alltaf jafn spennandi að hitta einhvern frá stað sem maður þekkir ekki. (meira…)

 Lærdómur í ímynduðum heimi: Kraftur sérfræðingskápunnar

Ása Helga Proppé Ragnarsdóttir og Hákon Sæberg Björnsson

Íslenskt samfélag hefur þróast hratt á undanförnum áratugum frá menningarlegu einsleitu samfélagi yfir í samfélag sem er fjölmenningarlegt; þar sem nemendur koma frá ólíkum menningarheimum. Þessi breyting  kallar á fjölbreytta kennsluhætti í skólum þar sem skapað er frjótt vinnuumhverfi, áhugi nemenda á viðfangsefnum er vakinn og tekið mið af bakgrunni, tungumáli, menningu og reynslu hvers og eins nemanda. Með því að leggja áherslu á virðingu, gagnkvæman skilning, inngildingu og samvinnu má stuðla að aukinni þátttöku allra nemenda og efla sjálfsmynd þeirra og námsárangur. Til að mæta þessum áskorunum dugar ekki einungis að viðurkenna mikilvægi menningarnæmrar nálgunar, heldur þarf einnig að innleiða kennsluaðferðir sem endurspegla þessi gildi í framkvæmd. Það felur í sér að skapa námsumhverfi þar sem rödd nemenda fær að heyrast, reynsla þeirra er metin að verðleikum og þeir fá tækifæri til að hafa áhrif á eigið nám. Með því að færa áhersluna frá einhliða miðlun þekkingar yfir í virka þátttöku nemenda má stuðla að aukinni ábyrgð, áhuga og innri hvata til náms. (meira…)

Færslusafn

Fara íTopp