Fjárfestum í framtíðinni: Læsi, fjöltyngi og réttur barna til náms og læsis

Anna Lilja Sævarsdóttir

Undanfarnar vikur hefur umræða um bókakost í leik- og grunnskólum vakið verðskuldaða athygli. Umræðan hefur beinst að því hvort aðgengi barna að bókum sé nægilegt, hvernig staðið sé að uppbyggingu skólabókasafna og hvaða afleiðingar það hafi þegar lestur og bókmenntir fá ekki þann sess sem þau eiga skilið í skólastarfi (Ríkisútvarpið, 2026). Þessar spurningar eru mikilvægar. Þær kalla á umræðu um fjármögnun, stefnumótun og innviði. En þær minna okkur líka á að aðgengi að bókum snýst ekki eingöngu um safnkost eða fjárveitingar, heldur um það hvers konar bernsku við viljum skapa. Umfram allt minna þær okkur á að bækur eru ekki aðeins námsúrræði heldur leið barna til tungumáls, ímyndunarafls og skilnings á sjálfum sér og öðrum.

Í viðtali í Kastljósi í kjölfar umfjöllunar um stöðu bókakosts skólabókasafna, benti Gerður Kristný rithöfundur á að við tengjum lestur gjarnan við fræðslu, innlögn og námslegan árangur (sjá hér). Minna fari fyrir umræðu um lestur til yndis, forvitni, samveru og upplifunar (Ríkisútvarpið, 2026). Í þeim orðum felst mikilvæg áminning. Þegar lestur verður fyrst og fremst tæki til að ná markmiðum sem aðrir hafa skilgreint er hætta á að við gleymum því sem gerir bækur svo öflugar. Við gleymum gleðinni sem felst í því að sökkva sér ofan í sögu, undruninni sem kviknar þegar nýr heimur opnast og þeirri tilfinningu að finna sjálfan sig í orðum annarra.

Sú sýn hefur verið leiðarljós í þróunarverkefninu Fjárfestum í framtíðinni – jöfn tækifæri til náms (sjá hér), sem unnið er að þennan veturinn í leikskólanum Iðavelli í samstarfi við Amtsbókasafnið á Akureyri og Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri, og er styrkt af Sprotasjóði og Þróunarsjóði leik-, grunn- og tónlistarskóla Akureyrarbæjar (Leikskólinn Iðavöllur, e.d.). Verkefnið byggir á réttindasýn Barnasáttmálans þar sem öll börn eiga rétt á þátttöku, menntun og því að tungumál þeirra og menning njóti virðingar (Sameinuðu þjóðirnar, 1989). Með því að skapa vettvang þar sem bækur, tungumál og sögur tengja saman heimili, leikskóla og bókasafn er leitast við að efla læsi á forsendum barnanna sjálfra og styrkja tilfinningu þeirra fyrir því að vera hluti af samfélagi.

Þegar rætt er um læsi er oft vísað til lestrarkannana, lesskilnings og námsárangurs. Sjaldnar er læsi rætt sem réttindamál sem það þó vissulega er. Samkvæmt Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna eiga öll börn rétt á menntun, þátttöku í samfélaginu og að njóta eigin tungumáls og menningar (Sameinuðu þjóðirnar, 1989). Þessi réttindi snúast þó ekki aðeins um skólagöngu eða aðgengi að kennslu. Þau snúast einnig um að börn hafi raunverulegan aðgang að sögum, tungumáli og menningarlegri reynslu sem gerir þeim kleift að skilja heiminn og eiga virkan þátt í honum. Að þau eigi rödd sem heyrist.

Þessi réttindasýn hefur sérstaka þýðingu í íslensku samfélagi samtímans. Í leikskólum landsins fjölgar stöðugt börnum sem alast upp með fleiri en eitt tungumál og fleiri en einn menningarheim (Alþingi, 2025). Í leikskólanum Iðavelli tala börnin sautján tungumál. Þau koma í skólann sinn með fjölbreytta reynslu, ólíkar sögur og mismunandi leiðir til að skilja heiminn. Sú fjölbreytni er ekki áskorun sem þarf að takast á við heldur auðlind sem þarf að rækta, enda hafa rannsóknir sýnt að viðurkenning og efling allra tungumála barna styrkir bæði sjálfsmynd þeirra og námsþátttöku (Cummins, 2021).

Ef markmið okkar er að skapa jöfn tækifæri til náms getum við ekki byggt á þeirri hugmynd að öll börn eigi að laga sig að einni menningarlegri eða tungumálalegri fyrirmynd. Rannsóknir á íslensku menntakerfi hafa jafnframt sýnt að nemendur af erlendum uppruna standa oft frammi fyrir brothættari menntunarleiðum en jafnaldrar þeirra (Eva Dögg Sigurðardóttir, 2024). Við þurfum að skapa umhverfi þar sem reynsla hvers barns fær að njóta sín og verða hluti af sameiginlegu lærdómssamfélagi.

Í verkefninu Fjárfestum í framtíðinni hefur þessi hugsun meðal annars birst í þróun á fjöltyngdum bókatöskum sem ferðast á milli leikskóla og heimila, hugmynd sem kemur frá barnabókaverði Amtsbókasafnsins, sem leggur bækurnar til að hluta. Í töskunum eru bækur á íslensku og heimatungumálum barnanna, og hjá eldri börnunum er einnig val um að fá lánaða spjaldtölvu með íslensku kennsluefni.

Með þessu er leitast við að skapa aðstæður þar sem ólík tungumál fá að lifa hlið við hlið og verða hluti af læsisumhverfi barnanna. Þegar börn fá tækifæri til að lesa, hlusta á og ræða sögur á fleiri en einu tungumáli styrkist ekki aðeins tungumálaþroski þeirra heldur einnig tengsl þeirra við fjölskyldu, menningu og það samfélag sem þau alast upp í. Slík viðurkenning á tungumálauðlindum barna hefur reynst ein forsenda inngildingar og námsárangurs (Cummins, 2021).

Um leið verða bækurnar brú á milli heima. Þær tengja saman heimili, leikskóla og bókasafn, foreldra og kennara, íslensku og önnur tungumál. Þær skapa tækifæri til samlestrar, samtala og sameiginlegrar merkingarsköpunar. Þannig verður læsi ekki verkefni sem á sér eingöngu stað innan veggja skólastofunnar heldur hluti af daglegu lífi barna og fjölskyldna þeirra þar sem horft er til framtíðar.

Í þessari vinnu hefur hugmyndafræði hæglætis haft sérstaka þýðingu á Iðavelli (Anna Magnea Hreinsdóttir og Kristín Dýrfjörð (2026). Á tímum þar sem hraði, mælingar og skilvirkni eru oft ráðandi gildi er auðvelt að líta á nám sem röð markmiða sem þarf að ná á sem skemmstum tíma. Hæglæti í leikskólastarfi býður upp á annað sjónarhorn. Það leggur áherslu á að börn fái tíma til að staldra við, velta hlutunum fyrir sér og mynda eigið samband við viðfangsefnið (Clark, 2023). Það á sérstaklega vel við um lestur. Fáar menntunarlegar athafnir kalla jafn sterkt á nærveru og lestur. Barn sem hlustar á sögu þarf tíma til að dvelja við myndirnar, íhuga persónurnar, spyrja spurninga og tengja söguna við eigið líf. Þegar slík stund fær að þróast á forsendum barnsins verður lesturinn meira en þjálfun. Hann verður upplifun.

Kannski er það einmitt þarna sem mikilvægustu tengslin myndast. Ekki þegar börn eru að æfa ákveðna færni heldur þegar þau hlæja að sögu, velta fyrir sér framvindu hennar eða biðja um að fá hana lesna aftur. Þar kviknar löngunin til að lesa til yndis. Þar kviknar forvitnin sem verður síðar grunnur að námi, orðaforða og þekkingarsköpun.

Í umræðunni um bókakost er því ekki nóg að velta eingöngu fyrir sér hversu margar bækur eru til eða hversu nýjar þær eru þó það sé mikilvægt. Við þurfum einnig að spyrja hvort börn spegli sjálf sig í þeim. Hvort þau sjái eigin tungumál, eigin fjölskyldur eða eigin reynslu endurspeglast á síðum bókanna, því bækur geta bæði verið speglar og gluggar að heimi annarra (Westby, 2022). Hvort þau upplifi að bókasafnið sé staður sem tilheyri þeim. Hvort þau fái tækifæri til að njóta lesturs.

Læsi verður ekki til í tómarúmi. Það verður til í tengslum. Í samlestri barns og foreldris, í samtölum við kennara, í heimsókn á bókasafn, í augnablikum þar sem einhver gefur sér tíma til að hlusta á spurningar barns og velta fyrir sér svarinu með því. Þess vegna er læsi ekki aðeins menntamál. Það er einnig menningarmál, lýðræðismál og réttlætismál.

Þegar við fjárfestum í bókum, bókasöfnum og læsisumhverfi barna erum við ekki einungis að fjárfesta í framtíðarnámsárangri þeirra. Við erum að fjárfesta í rödd þeirra, þátttöku þeirra og tilfinningu þeirra fyrir því að eiga heima í samfélaginu. Við erum að fjárfesta í tengslum sem styrkja bæði einstaklinga og samfélag. Við erum að fjárfesta í gleðinni sem felst í því að finna sögu sem talar beint til manns. Í þeim skilningi felst raunverulegt gildi þróunarverkefnisins ekki síst í því að skapa hægara og meira ígrundað skólasamfélag þar sem raddir allra barna fá að hljóma (Clark, 2023).

Kannski þarf umræðan um læsi á Íslandi því að halda áfram á nýjum stað. Ekki eingöngu með spurningunni um hversu margar bækur eru í hillunum þó hún sé mikilvæg fyrir grunninn að hinu. Heldur einnig hvort börnin okkar fái tíma, tækifæri og aðstæður til að nýta sér bækur og njóta þeirra. Þar liggur hin raunverulega fjárfesting í framtíðinni.

Heimildir

Alþingi. (2025). Svar mennta- og barnamálaráðherra við fyrirspurn um nemendur af erlendum uppruna í leik- og grunnskólum landsins (Þingskjal 418, 157. löggjafarþing). https://www.althingi.is/altext/157/s/0418.html

Anna Magnea Hreinsdóttir og Kristín Dýrfjörð. (2026). Að finna taktinn: Um hæglátt leikskólastarf. Netla – Veftímarit um uppeldi og menntun, 2026. https://doi.org/10.24270/netla.2026/9

Clark, A. (2023). Slow knowledge and the unhurried child: Time for slow pedagogies in early childhood education. Routledge.

Cummins, J. (2021). Rethinking the education of multilingual learners: A critical analysis of theoretical concepts. Multilingual Matters.

Eva Dögg Sigurðardóttir. (2024). Brothættir menntunarmöguleikar nemenda af erlendum uppruna við lok grunnskóla: Málamiðlun framtíðarvona. Netla – Veftímarit um uppeldi og menntun. https://doi.org/10.24270/serritnetla.2024.5

Leikskólinn Iðavöllur. (e.d.). Fjárfestum í framtíðinni. https://www.akureyri.is/idavollur/skolastarfid/throunarverkefni-og-skyrslur

Ríkisútvarpið. (2026, október). Kastljós: Úttekt á bókmenningu [Sjónvarpsþáttur]. https://www.ruv.is/sjonvarp/spila/kastljos/39455/bo8mol/uttekt-a-bokamenningu

Sameinuðu þjóðirnar. (1989/2013). Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins. Umboðsmaður barna. https://www.barn.is/barnasattmalinn/barnasattmali-sameinudu-thjodanna/

Westby, C. (2022). Using Books as Mirrors, Windows, Sliding Glass Doors. Word of Mouth, 33(5), 4-6. https://doi.org/10.1177/10483950221086338a


Um höfund

Anna Lilja Sævarsdóttir er skólastjóri leikskólans Iðavallar (í námsleyfi), aðjunkt við Háskólann á Akureyri og doktorsnemi við Háskóla Íslands. Anna Lilja kennir í grunn- og framhaldsnámi kennaradeildar HA á kjörsviði leikskólans. Helstu áherslur eru leikskólakennarafræði, stjórnun, yngstu leikskólabörnin, fjölmenning og leiðsögn. Hún hefur 25 ára starfsreynslu í leikskóla sem kennari, deildarstjóri, aðstoðarleikskólastjóri og skólastjóri, og hefur komið að fjölda þróunarverkefna sem varða fjölmenningu (sjá m.a. á Iðavöllur – Akureyri). Hún situr einnig í stjórn Norsamby – norræns vinabæjarsamstarfs um leikskólamál sem heldur ráðstefnur árlega á Norðurlöndunum (https://norsamby.com/ ).


Grein birt 28. október 2026