„Við fórum út með bros á vör og hlýju í hjarta“ – Samkennd og sjálfræði í Verzlunarskóla Íslands

Ásta Henriksen, Benedikt Ingi Ásgeirsson, Berta Gerður Guðmundsdóttir og Guðrún Inga Sívertsen

Þróunarverkefni hafa skipað mikilvægan sess í skólastarfi Verzlunarskóla Íslands undanfarin ár. Haustið 2022 var fyrsta verkefnið lagt fyrir nemendur en það var samþættingarverkefni fimm námsgreina sem byggði á heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Undirbúningur verkefnisins hófst með því að kennara var veittur kennsluafsláttur til að leggja grunn að þróunarverkefni. Í framhaldinu var komið á fót stýrihópi innan skólans undir stjórn sama kennara. Síðar sama ár voru þrír kennarar ráðnir í hlutastarf sem þróunarstjórar við skólann, þar á meðal kennarinn sem hafði leitt verkefnið frá upphafi og hafa þeir síðan stýrt verkefninu og bera ábyrgð á skipulagningu þess, framkvæmd og áframhaldandi þróun.

Á næstu tveimur árum (2023–2024) var verkefnið þróað áfram með hliðsjón af fenginni reynslu og endurgjöf nemenda og kennara, sem aflað var með könnunum og rýniviðtölum. Niðurstöðurnar bentu til þess að þörf væri á að gera verkefnið markvissara og styrkja tengsl þess við nærsamfélagið. Í kjölfar þessara niðurstaðna urðu ákveðin kaflaskil haustið 2025 þegar nýtt verkefni, Samkennd og sjálfræði, leit dagsins ljós. Í stað þess að byggja áfram á heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna og samþættingu fimm námsgreina var sjónum beint að því að efla samfélagslega ábyrgð nemenda, stuðla að virkari þátttöku þeirra og styrkja hæfni þeirra til að setja sig í spor annarra og sýna samkennd.

Þróunarverkefnið Samkennd og sjálfræði veitir nemendum tækifæri til að láta gott af sér leiða í samfélaginu með raunverulegum verkefnum í samstarfi við stofnanir og félagasamtök. Nemendur stýra sjálfir verkefninu, fá svigrúm til að móta eigin hugmyndir og bera ábyrgð á að hrinda þeim í framkvæmd. Þannig fá þau tækifæri til að þjálfa frumkvæði, gagnrýna hugsun og samvinnu. Slíkt svigrúm til áhrifa og ákvarðanatöku samræmist rannsóknum á stuðningi við sjálfræði nemenda, sem benda til þess að aukið sjálfræði geti eflt áhugahvöt, sjálfstæði og virkni nemenda í eigin námi (Núñez og León, 2015).

Þar sem samfélagsumræða einkennist oft af hraða, skautun og takmörkuðum samskiptum milli ólíkra hópa verður sífellt mikilvægara að skólar skapi markviss tækifæri fyrir ungt fólk til að kynnast aðstæðum annarra. Samkennd er ekki einungis meðfæddur eiginleiki heldur hæfni sem þarf að rækta og þjálfa. Skólinn gegnir þar mikilvægu hlutverki með því að skapa aðstæður þar sem nemendur fá tækifæri til að skilja sjónarmið og reynslu annarra. Verkefnið tengist því vel nýlegu ákalli forseta Íslands, Forseti í samtali (Embætti forseta Íslands, e.d.) þar sem lögð er áhersla á traust, tengsl, lýðræðislega þátttöku og hæfni fólks til að ræða saman. Ákall forseta beinist sérstaklega að ungu fólki og framhaldsskólum. Sama áhersla birtist einnig á Forvarnardeginum 2026, sem að þessu sinni ber yfirskriftina Samtal og samkennd (https://www.forvarnardagur.is/). Það að þessi hugtök séu nú áberandi í ólíkum verkefnum og samfélagslegri umræðu endurspeglar aukna þörf fyrir að efla samkennd, samtal og tengsl milli fólks.

Mottuaðferðin – samvinna og sameiginleg ákvörðun

Í verkefninu Samkennd og sjálfræði unnu tæplega 400 nemendur í 5-6 manna teymum sem alls urðu 70 talsins. Til þess að tryggja að allir nemendur kæmu skoðunum sínum á framfæri var notuð aðferð sem nefnd er „mottuaðferðin“ (e. placemat method) (Utrecht University, e.d.). Aðferðin felst í því að í hverju teymi leggja allir nemendur fram hugmyndir um hvaða stofnun eða félagasamtök þau vilja heimsækja og hvernig þau vilja nýta heimsóknina til að láta gott af sér leiða. Í kjölfarið ræða nemendur hugmyndir sínar og komast að sameiginlegri niðurstöðu.

Kennarar skólans höfðu áður fengið fræðslu um mottuaðferðina frá sérfræðingum á Menntavísindasviði Háskóla Íslands og kynnst aðferðinni og möguleikum hennar í kennslu og hópastarfi. Þegar þróunarverkefnið var mótað var ákveðið að nýta þessa aðferð markvisst til að styðja við hugmyndavinnu, virka þátttöku allra nemenda og sameiginlega ákvarðanatöku innan teymanna. Með aðferðinni fá nemendur svigrúm til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri, hlusta á aðra og taka þátt í sameiginlegri ákvarðanatöku og þar með tækifæri til að þjálfa lýðræðislega þátttöku. Lýðræðismenntun felst þannig ekki aðeins í því að fræða nemendur um lýðræði heldur einnig í því að skapa þeim raunveruleg tækifæri til að taka þátt, hafa áhrif og axla ábyrgð (Biesta, 2007). Rannsóknir benda einnig til þess að reynsla nemenda af því að hafa rödd innan skólans tengist jákvæðari viðhorfum til þess að taka þátt í lýðræðislegu samfélagi (Kan o.fl., 2024).

Lyfturæða – hugmyndin í hnotskurn

Þegar nemendur hafa ákveðið hvaða verkefni þau ætla að taka sér fyrir hendur flytja þau svokallaða lyfturæðu. Hugtakið vísar til þess að kynningin eigi að vera svo markviss og stutt að hægt sé að flytja hana á þeim tíma sem ein lyftuferð tekur. Góð lyfturæða á að fanga athygli hlustandans og draga skýrt fram hvert markmið verkefnisins er og með hvaða hætti samkennd birtist í því. Með lyfturæðunni þurfa nemendur að kjarna þá hugmynd sem varð til í vinnunni sem þau unnu samkvæmt mottuaðferðinni, og móta skýra sýn um næstu skref í verkefninu.

Samkennd í verki – að láta gott af sér leiða

Nemendurnir skipuleggja viðburði eða sinna sjálfboðavinnu í samvinnu við stofnanir og félagasamtök og fá þannig tækifæri til að setja sig í spor annarra og sýna samkennd í verki. Þau fóru víða í fimm til sex manna teymum og hafa meðal annars heimsótt dvalarheimili aldraðra, kirkjur, leikskóla, íþróttafélög fatlaðra, Hjálpræðisherinn, Rauða krossinn, Barnaspítala Hringsins og Þjóðgarðinn á Þingvöllum. Á þessum stöðum unnu þau sjálfboðavinnu í samstarfi við staðarhaldara eða skipulögðu samverustundir með fjölbreyttri dagskrá, svo sem tónlistaratriðum, skák, bingói, dansi, vatnslitamálun og jóga. Mörg teymi buðu einnig upp á veitingar og gáfu sér tíma til samveru og samtals. Nemendum var alls staðar vel tekið og fengu þau að kynnast þeirri gleði sem felst í því að gefa af sér og gleðja aðra. Sem dæmi um verkefni nemenda má nefna að eitt af teymunum stóð fyrir fótboltamóti hjá íþróttafélaginu Ösp og bauð að því loknu upp á veitingar. Annað teymi heimsótti Hlíðabæ sem er sérhæfð dagþjálfun fyrir fólk með heilabilun. Þar áttu nemendur notalega samverustund með skjólstæðingum og unnu með þeim að leirgerð. Að lokum má nefna teymi sem tók þátt í opnu húsi á vegum Rauða krossins þar sem nemendur spiluðu við innflytjendur til að efla íslenskukunnáttu þeirra, skipulögðu leiki fyrir börnin og spiluðu íslenska tónlist.

Kynning á verkefninu á UNESCO-degi umönnunar og stuðnings

Gert er ráð fyrir að nemendur kynni þróunarverkefni sín á alþjóðlegum degi umönnunar og stuðnings, 29. október, og er foreldrum og forráðamönnum boðið að koma í skólann og kynna sér verkefnin. Þar segja nemendur frá hugmyndum sínum, reynslu og því sem þau hafa lagt af mörkum í samfélaginu. Þar sem Verzlunarskóli Íslands er UNESCO-skóli leggur skólinn áherslu á að halda upp á UNESCO-daga og þykir þessi dagur falla sérstaklega vel að markmiðum verkefnisins um samkennd, samfélagslega ábyrgð og umhyggju fyrir öðrum.

Upplifun nemenda – samkennd og persónulegur þroski

Nemendur skila skýrslu þar sem m.a. kemur fram hver markmið verkefnisins eru og hvernig samkennd birtist í verkefninu. Rauði þráðurinn í skýrslum nemenda var að verkefnið hafði ekki síður áhrif á nemendurna sjálfa en þá einstaklinga sem þeir hittu í tengslum við heimsóknir og viðburði. Ítrekað kom fram að upplifunin hefur vakið þau til umhugsunar um mikilvægi samkenndar, góðvildar og þess að gefa af sér. Eitt teymið lýsti reynslu sinni með þessum orðum: „Við lærðum líka að þegar maður gerir eitthvað fallegt fyrir aðra fær maður sjálfur það alltaf margfalt til baka.“ Annað teymi lýsti upplifun sinni að heimsókn lokinni með orðunum: „Við fórum út með bros á vör og hlýju í hjarta.“ Þessi orð endurspegla vel þá tilfinningu sem birtist víða í skýrslunum. Það að gleðja aðra, gefa af tíma sínum og leggja eitthvað jákvætt af mörkum getur orðið dýrmæt reynsla. Verkefnið er þannig ekki aðeins æfing í samfélagslegri ábyrgð heldur einnig tækifæri til persónulegs þroska, samvinnu og aukins skilnings á öðrum.

Endurgjöf og ígrundun

Nemendur fá skriflega endurgjöf frá kennara sem hefur umsjón með verkefninu þar sem dregnir eru fram styrkleikar í vinnu teymisins og þeir þættir sem betur mættu fara. Námsmatið byggist á sóknarkvarða (e. rubric) þar sem gerð er grein fyrir þeim matsþáttum sem lagðir eru til grundvallar við mat á vinnu teymisins. Kvarðinn er aðgengilegur nemendum frá upphafi verkefnisins svo þeim sé ljóst hvaða kröfur eru gerðar til þeirra. Við námsmatið er meðal annars horft til lyfturæðu teymisins, skýrslu um verkefnið, ljósmynda af mottunni sem sýna hugmyndavinnuna, kynningar og staðfestingar á framkvæmd verkefnisins. Við matið er m.a. lögð áhersla á skýr markmið og hvernig samkennd birtist í verkefninu. Einnig er horft til virkrar þátttöku allra, samvinnu og þess hvort nemendur hafi varið tilskildum tíma á vettvangi. Námsmatið er í formi staðið/fallið og telst verkefninu ekki lokið fyrr en öllum matsþáttum hefur verið fullnægt.

Viðhorf nemenda og kennara

Í lok verkefnisins eru lagðar fyrir kannanir meðal nemenda og kennara. Niðurstöðurnar sýndu mikla ánægju með verkefnið hjá báðum hópum. Kennarar töldu að verkefnið hafi verið krefjandi og að það hafi styrkt samfélagslega þátttöku nemenda. Mikill meirihluti nemenda taldi verkefnið lærdómsríkt og sögðust vilja sjá það endurtekið. Auk þess kunnu þau að meta það traust sem þeim er sýnt. Kannanirnar bentu einnig til þess að verkefnið stuðli að aukinni samkennd, samfélagsvitund og samvinnu meðal nemenda. Niðurstöðurnar styðja að verkefnið nái vel þeim markmiðum sem lagt er upp með og skapi nemendum dýrmætt tækifæri til að tengja skólastarfið við nærsamfélagið.

Horft fram á veginn

Skólar gegna mikilvægu hlutverki við að móta ekki aðeins þekkingu nemenda heldur einnig viðhorf þeirra, gildi og samfélagslega ábyrgð. Ef við viljum búa í samfélagi sem einkennist af virðingu, samheldni og þátttöku ungs fólks þurfum við að skapa aðstæður þar sem það fær að æfa þessa eiginleika í verki. Með vinnu sinni í verkefninu Samkennd og sjálfræði hafa nemendur skapað tengsl milli skólastarfs og samfélags og fengið tækifæri til að upplifa hvernig frumkvæði, samkennd og samfélagsleg ábyrgð geta haft jákvæð áhrif. Verkefnið hefur náð langt út fyrir veggi skólans, snert mörg hundruð einstaklinga og styrkt tengsl milli kynslóða og tengsl nemenda við ólíka hópa, ekki síst þá sem standa höllum fæti.

Skólanum hafa borist hlýleg og jákvæð viðbrögð frá stofnunum og félagasamtökum, sem í nokkrum tilvikum hafa óskað eftir áframhaldandi samstarfi. Þau jákvæðu viðbrögð sem verkefnið hefur hlotið urðu til þess að ákveðið var að endurtaka það haustið 2026. Við hverja framkvæmd gefst tækifæri til að byggja á fenginni reynslu, fínstilla skipulag og framkvæmd og þróa verkefnið áfram með það að markmiði að gera það enn markvissara og innihaldsríkara bæði fyrir nemendur og þá einstaklinga og hópa sem þau heimsækja og eiga í samskiptum við.

Verkefni á borð við Samkennd og sjálfræði sýna að þegar nemendum er treyst fyrir raunverulegum viðfangsefnum og gefið svigrúm til að móta eigin leiðir bregðast þau við af ábyrgð, frumkvæði og metnaði. Þannig verður skólinn ekki eingöngu vettvangur náms heldur einnig vettvangur lýðræðis, mannræktar og samfélagslegrar þátttöku.

Heimildaskrá

Biesta, G. (2007). Education and the democratic person: Towards a political conception of democratic education. Teachers College Record, 109(3), 740–769. https://doi.org/10.1177/016146810710900302

Embætti forseta Íslands. (e.d.). Forseti í samtali. https://www.forseti.is/forseti/samtal

Núñez, J. L., og  León, J. (2015). Autonomy support in the classroom: A review from self-determination theory. European Psychologist, 20(4), 275–283. https://doi.org/10.1027/1016-9040/a000234

Rinnooy Kan, W. F., Munniksma, A., Volman, M., og Dijkstra, A. B. (2024). Practicing voice: Student voice experiences, democratic school culture and students’ attitudes towards voice. Research Papers in Education, 39(4), 560–580. https://doi.org/10.1080/02671522.2023.2178496

Utrecht University. (e.d.). Placemat Method. https://teaching-and-learning-collection.sites.uu.nl/learning_activity/placemat-method/

Um höfunda

Ásta Henriksen er enskukennari og þróunarstjóri við Verzlunarskóla Íslands. Hún lauk B.A.-prófi í ensku og námi í uppeldis- og kennslufræði til kennsluréttinda auk M.A.-gráðu í uppeldis- og menntunarfræði frá Háskóla Íslands. Fagleg áhugamál hennar snúa einkum að skapandi og nemendamiðuðum kennsluháttum.

Benedikt Ingi Ásgeirsson er efnafræðikennari og þróunarstjóri við Verzlunarskóla Íslands. Hann lauk B.S.-prófi í efnafræði við HÍ og er með kennsluréttindi í efnafræði. Fagleg áhugamál hans snúa einkum að kennslu í raungreinum og þróun kennsluhátta.

Berta Gerður Guðmundsdóttir er viðskiptagreinakennari og þróunarstjóri við Verzlunarskóla Íslands. Hún lauk B.S.-prófi í viðskiptafræði og námi í uppeldis- og kennslufræði til kennsluréttinda frá Háskóla Íslands. Fagleg starfstengd áhugamál hennar snúa meðal annars  að því að virkja nemendur og efla áhuga þeirra.

Guðrún Inga Sívertsen er skólastjóri Verzlunarskóla Íslands frá árinu 2021 en áður kenndi hún hagfræði og aðrar viðskiptagreinar við skólann. Hún lauk BA gráðu í hagfræði, MPA gráðu í opinberri stjórnsýslu og kennsluréttindanámi frá Háskóla Íslands. Fagleg starfstengd áhugamál hennar snúa meðal annars að skólaþróun og tengingu náms og atvinnulífs.


Grein birt 12. október 2026