Hættan gerir ekki boð á undan sér – Um öryggi og viðbúnað í íslenskum grunnskólum
Svava Magdalena Hönnudóttir

Slys á Íslandi þar sem grunnskólabörn voru á leið með rútu í skólasund vakti mig til umhugsunar um viðbúnað skóla og annarra aðila þegar slys verða á skólatíma. Eftir áreksturinn voru börn send fótgangandi 300 metra leið í sund áður en verkferlar voru virkjaðir (Garðabær, 2026). Foreldrar gagnrýndu viðbrögð og upplýsingagjöfina og kölluðu eftir skýrari ábyrgð og verkferlum þegar slys eða áföll verða (Silja Rún Sigurðardóttir, 2026). Vart þarf að nefna hversu miklu máli skiptir að verkferlar séu skýrir og samræmdir þegar á reynir.
Öryggi nemenda í íslenskum grunnskólum var viðfangsefni í lokaverkefni mínu til BA-prófs í uppeldis- og menntunarfræði við Háskóla Íslands. Í rannsókninni voru greind opinber skjöl sem móta starf grunnskóla, það er að segja lög, reglugerðir og leiðbeinandi gögn um öryggi og viðbúnað. Leitast var við að svara því hvernig öryggi og viðbúnaður birtast í þessum skjölum og hvort sú mynd sem þar er dregin upp bendi til þess að nemendur njóti sambærilegs öryggis óháð skóla.