forvarnir

Kennarar og einelti. Stuðningur, fræðsla og þjálfun

19. mars, 2021

Birt til heiðurs dr. Ingvari Sigurgeirssyni prófessor sjötugum

Vanda Sigurgeirsdóttir

Inngangur

Ég var 24 ára þegar ég heyrði um fyrirbærið einelti í fyrsta skipti. Árið var 1989 og ég var í skóla í Svíþjóð. Ég man ennþá eftir þeirri hræðilegu tilfinningu sem helltist yfir mig. Ekki vegna þess að ég hefði verið lögð í einelti sjálf heldur vegna þess að þarna áttaði ég mig á að þó að ég hefði útskrifast úr 10. bekk með bros á vör, góðar minningar og góða vini, þá eru alls ekki allir sem eru svo heppnir. Ég áttaði mig einnig á að mínar gjörðir og viðbragðsleysi höfðu átt þátt í að láta öðrum líða illa. Ég skammaðist mín, samviskubit helltist yfir mig og tárin spruttu fram. „Mikið vildi ég að einhver hefði komið og rætt við okkur,“ hugsaði ég og á þeirri stundu tók ég þá lífsbreytandi ákvörðun að berjast á móti einelti.

Lykilaðilar í þeirri baráttu eru grunnskólakennarar. Að sjálfsögðu bera þeir ekki ábyrgðina einir, en eigi að síður eru þeirra athafnir eða athafnaleysi afgerandi þáttur þegar kemur að forvörnum og inngripum í eineltismál. Í þessari grein verður fjallað um einelti, mögulegar lausnir og um stuðning við grunnskólakennara, þannig að aðgerðir gegn einelti beri árangur. Alveg eins hefði verið hægt að skrifa þessa grein um skólastjórnendur eða foreldra, sem einnig gegna sérlega mikilvægu hlutverki, en í stuttri grein getur verið betra að kafa dýpra í einn þátt. Margt í greininni á einnig við um aðrar fagstéttir, svo sem leikskólakennara, tómstunda- og félagsmálafræðinga og náms- og starfsráðgjafa. (meira…)

Hættan gerir ekki boð á undan sér – Um öryggi og viðbúnað í íslenskum grunnskólum

Svava Magdalena Hönnudóttir

Slys á Íslandi þar sem grunnskólabörn voru á leið með rútu í skólasund vakti mig til umhugsunar um viðbúnað skóla og annarra aðila þegar slys verða á skólatíma. Eftir áreksturinn voru börn send fótgangandi 300 metra leið í sund áður en verkferlar voru virkjaðir (Garðabær, 2026). Foreldrar gagnrýndu viðbrögð og upplýsingagjöfina og kölluðu eftir skýrari ábyrgð og verkferlum þegar slys eða áföll verða (Silja Rún Sigurðardóttir, 2026). Vart þarf að nefna hversu miklu máli skiptir að verkferlar séu skýrir og samræmdir þegar á reynir.

Öryggi nemenda í íslenskum grunnskólum var viðfangsefni í lokaverkefni mínu til BA-prófs í uppeldis- og menntunarfræði við Háskóla Íslands. Í rannsókninni voru greind opinber skjöl sem móta starf grunnskóla, það er að segja lög, reglugerðir og leiðbeinandi gögn um öryggi og viðbúnað. Leitast var við að svara því hvernig öryggi og viðbúnaður birtast í þessum skjölum og hvort sú mynd sem þar er dregin upp bendi til þess að nemendur njóti sambærilegs öryggis óháð skóla.

(meira…)

Færslusafn

Fara íTopp