Sigurður Arnar Sigurðsson
Í þessari grein er fjallað um uppbyggingar- og umbótastarf í Grundaskóla síðastliðin fimm ár. Hér er um að ræða umfangsmikla vegferð sem hefur gengið undir vinnuheitinu Opni skólinn.
Grundaskóli á Akranesi tók til starfa árið 1981 og var í upphafi einn af þeim skólum sem kenndir hafa verið við opið skólastarf. Í upphafi var strax lögð áhersla á teymisvinnu starfsfólks, vinnu á opnum svæðum og að nemendur væru virkir þátttakendur í eigin námi. Fyrirkomulagið birtist m.a. í fjölbreyttum valgreinum, áherslu á þemabundna námsaðlögun og aldursblöndun. Mikið vatn hefur runnið til sjávar frá stofnun skólans en í dag er hann einn fjölmennasti grunnskóli landsins með yfir 700 nemendur í fyrsta til tíunda bekk og um 130 starfsmenn.
Áfall í húsnæðismálum
Skólaárið 2020-2021 varð skólinn fyrir miklu áfalli þegar rýma þurfti um 2/3 hluta skólahúsnæðisins eftir að upp komu áskoranir tengdar loftgæðum. Stokka þurfti allt skólastarf upp á nokkrum dögum og rýma skólahúsnæðið. Kennsla var færð í húsnæði utan skólans og fór vikum saman fram á sjö til átta stöðum um allan bæ.
Haustið 2021 samþykkti bæjarstjórn Akraneskaupstaðar tillögur skólastjórnenda um stórfeldar endurbætur og skipulagsbreytingar sem dregnar voru saman eftir samtöl innan skólasamfélagsins um framtíðarskipulag og sýn skólans. Niðurstaðan varð sú að Grundaskóli skyldi endurbyggður út frá nýjum hugmyndum en með vísan til menntaforystu og skólastefnu upphafsáranna.
Að kjarna sig
Í daglegu tali vísar orðatiltækið að „kjarna sig“ yfirleitt til þess að ná aftur jafnvægi, ró og fókus, sérstaklega þegar aðstæður eru krefjandi og hugur fólks, eða starfsheildar, er dreifður. Þetta voru einmitt aðstæðurnar í skólasamfélagi Grundaskóla árið 2021. Á þeirri stundu var sem aldrei fyrr þörf fyrir framsýni og faglega forystu og fyrir ígrundun stjórnenda og starfsfólks ásamt djúpum samtölum við skólasamfélagið þar sem fulltrúar allra aðila komu að borðinu og mörkuðu saman næstu skref.
Samfélag okkar er að breytast hratt og hlutverk skólakerfisins vex með hverju árinu sem líður. Menntakerfið í heild sinni þarf að takast á við viðfangsefni samtímans með ígrundun og breyttum áherslum. Skólinn er ekki bara menntastofnun heldur einnig orðinn lykil þjónustustofnun fyrir börn, foreldra og samfélagið allt. Með tilkomu farsældarlaga varð mikilvægi skólans enn meira en áður þar sem allir þræðir menntunar og félagslegra þátta fléttast saman í ferli samþættingar, farsældar og velferðar fyrir öll börn og fjölskyldur þeirra.
Orðræðan „að kjarna sig“ vísar einnig í þessu samhengi að ákveðið var að leita í ræturnar. Segja má að hornsteinn skólans, DNA Grundaskóla, liggi í samþættu skólastarfi þar sem mikil áhersla hefur verið lögð á frumkvæði og gróskuhugsun. Að virk starfsþróun væri í stöðugu og markvissu ferli og þannig drifkraftur breytinga í skólastarfinu. Á liðnum árum höfðum við að vissu leyti misst sjónir af þessari tengingu. Starfsfólki hefur fjölgað mikið samhliða stækkandi skóla. Ungt og hæfileikaríkt fólk tók við af frumkvöðlunum en við höfðum þó gleymt okkur um tíma og ekki hugað nægjanlega að rótarkerfi þeirrar menntastefnu sem skólastarfið gekk út á. Mikilvægt er að muna að inngildandi starfshættir og gróskustarf þróast ekki né blómstrar af sjálfu sér heldur þarf að ígrunda hvert skref og hverja ákvörðun.
Á þessum tímamótum var ákveðið að ráðast í kerfisbundnar breytingar á starfsskipulagi Grundaskóla sem náðu til ólíkra vídda. Annars vegar uppbyggingar á skólahúsnæði og starfsaðstæðum sem féll vel að settri stefnu. Hins vegar var ráðist í kerfisbundnar áherslubreytingar í starfsþróun, skipulagi og starfsmannahaldi. Markvisst var unnið að umbreytingar- og umbótastarfi í stað þess að horfa bara til afmarkaðra úrræða. Í kennslufræðilegum áherslum var horft til annarra þátta en áður. Horft var til þess að skólastarfið eigi ekki að þróast út frá þröngri sýn á sérþarfir nemenda og sérkennslu. Umbótastarf síðustu fimm ára hefur miðast við að öll kennsla í Grundaskóla taki mið af áherslum Opna skólans.
Flugáætlun Grundaskóla – frá viðbragði til víðtækra umbreytinga
Akranes er öflugur íþrótta- og skólabær og hafa bæjaryfirvöld lengi haft mikinn metnað fyrir þessum málaflokkum. Strax í upphafi vegferðar var ákveðið að uppgjöf væri ekki í boði heldur þyrfti að blása til sóknar. Í endurreisnaráætlun var lögð áhersla á að endurbygging Grundaskóla yrði metnaðarfullt framtíðarverkefni og að skólasamfélagið stæði þétt saman um það. Áherslan var ekki aðeins á stöðuna sjálfa heldur hvert ætti að stefna, hvað væri hægt að gera og hvernig sterk liðsheild gæti stuðlað að framförum.
Í samstarfi bæjaryfirvalda og skólafólks var öllu ferlinu skipt upp í þrjú meginstig. Þessi stig voru í fyrsta lagi björgunaraðgerðir, flutningur, flokkun og sótthreinsun. Í öðru lagi þyrfti að ráðast skipulega í endurbætur og uppbygginu á húsnæðinu. Þriðji hlutinn sneri svo að langtímahugsun, uppbyggingu og lausnum í skólastarfi. Þessi þriðji hluti sneri með öðrum orðum að innra skipulagi skólans og kennslufræðilegum áherslum. Hvernig ætlum við að útfæra setta menntastefnu og mæta áskorunum til framtíðar? Verk- og umbótaáætlun var sett fram sem náði til fimm ára eins og fyrr er getið, eða frá 2021-2026.
Nýtt kennsluhúsnæði sem styður við kennslufræði og menntasýn
Nýr Grundaskóli hefur verið endurvígður eftir umfangsmiklar framkvæmdir og endurbætur og aðlagaður að stefnu skólans og kennsluáherslum sem stjórnendur og starfsfólk höfðu sett. Húsnæði skólans er í stuttu máli skipulagt með hliðsjón af teymis-og hópaskipulagi sem getur gengið þvert á aldurshópa og námsgreinar. Nýtt skólahúsnæði er allt hið glæsilegasta og í takt við nýja tíma varðandi tæki og tækni.
Við stofnun Grundaskóla árið 1981 var lögð áhersla á opnar skólastofur og sveigjanleg námssvæði. Í nýju starfsskipulagi er að hluta horft til þessara grunnhugmynda, jafnframt því sem byggt er áfram á þeim þáttum í skólastarfinu sem hafa reynst vel. Til framtíðar er stefnt að því að samþætta styrkleika opins skólastarfs og hefðbundnari kennsluhátta og nýta þannig kosti beggja nálgana. Slík nálgun styður við sveigjanlegt námsumhverfi og fjölbreytta kennsluhætti sem skapa aukin tækifæri til þátttöku og náms og mæta ólíkum þörfum nemenda.
Við endurbyggingu á kennsluhúsnæði Grundaskóla var listgreinastofum fjölgað og allur kennslubúnaður endurnýjaður. Við hönnun var sérstaklega horft til samþættingar á milli námsgreina og stuðnings við samstarf kennara og kennsluhópa. Miðsvæði skólans er ætlað fyrir starfsemi Opna skólans þar sem blandaðir aldurshópar geta unnið að áhugadrifnum verkefnum sem ganga þvert á námsgreinar eða aldurshópa.

Opni skólinn sem kennslufræðileg nálgun
Hugmyndafræði opna skólans byggir á kennslufræðilegum áherslum sem haldast í hendur við hönnun skólabyggingarinnar og þær rýmis- og tæknilausnir sem þar er að finna. Sveigjanlegt námsumhverfi skapar fjölbreytt tækifæri til náms og samstarfs, þar sem nemendur geta unnið þvert á námsgreinar og tengt saman ólík viðfangsefni og eigin áhugasvið. Þannig verður til sveigjanlegt skólastarf innan skólans þar sem áhersla er lögð á fjölbreyttar námsleiðir, virkni nemenda og heildstæða nálgun á nám.
Hugmyndin um „Opna skólann“ er í raun kennsluaðferð, þverfagleg nálgun eða skólastarf sem einkennist af miklu frelsi, sveigjanleika og persónulegri aðlögun að þörfum nemenda. Áhersla er lögð á frumkvæði, sjálfstæði og virkni nemenda og skólafólks. Þessi nálgun fellur vel að áherslum altækrar hönnunar náms um fjölbreyttar leiðir til þátttöku, tjáningar og aðgengis að námi (Edda Óskarsdóttir, 2025).
Í grunninn er hugmyndafræði Opna skólans að miklu leyti sótt til kenninga um mannúðarsálfræði (humanistic psychology) og hugsmíðahyggju (constructivism). Mannúðarsálfræðin er oft tengd við hugmyndir Abraham Maslow, Carl Rofgers og Arthur Combs sérstaklega vegna áherslu þeirra á þarfir, líðan, sjálfsþroska og nemendamiðað nám. Mannauðssálfræðin leggur m.a. áherslu á að kennarar og annað skólafólk sýni nemendum virðingu, traust og námsumhverfið sé öruggt og styðjandi.
Hugsmíðahyggja á rætur sínar að rekja til hugmynda ýmissa þekktra fræðimanna s.s. John Dewey, Maria Montessori, Leo Vygotsky og Jean Piaget. Nám í anda þessarar stefnu byggir á að nemendur auka þekkingu sína í samhengi við það sem þeir vita fyrir, þ.e. að sköpun þekkingar verður til í samspili við fyrri skilning, áhuga, hugmyndir og upplifanir.
Meginhlutverk kennarans er að örva gagnrýna hugsun nemenda, vekja forvitni þeirra og gefa þeim kost á að velja sín eigin viðfangsefni og hafa áhrif á nám sitt. Lykilþættir Opna skólans eru þannig sveigjanlegt námsumhverfi, nemendamiðuð kennsla, samvinna, verkefnamiðað nám, skapandi og gagnrýnin hugsun og sjálfstæð vinnubrögð.
Frá aðgreindum stuðningi til inngildandi stoðþjónustu
Í nýju starfsskipulagi er lögð áhersla á að sérfræðiþekking sé ekki einangruð í aðskildum úrræðum heldur þvert á móti innbyggð í daglegt starf. Þessi áhersla birtist t.a.m. í að nemendur eru ekki fjarlægðir úr bekkjum eða hópum heldur er lausna fyrst leitað innan hópsins og í daglegum aðstæðum. Stoðþjónusta tengist þannig beint bekkjarstarfi og umsjónarkennarar eru á vissan hátt verkstjórar í vinnunni. Með því styrkist geta allra til að bregðast við fjölbreyttum þörfum nemenda og efla sameiginlega ábyrgðartilfinningu gagnvart inngildingu.
Skólastjórnendur hafa jafnframt lagt áherslu á að styrkja markvisst hlutverk umsjónarkennara og efla virka teymisvinnu. Í því skyni voru verkferlar endurskoðaðir, markviss teymisþjálfun innleidd og eftirfylgni mála styrkt með skýru og skilgreindu verklagi. Þessi vinna hefur bæði verið unnin og þróuð innan starfsmannahópsins en einnig hafa utanaðkomandi aðilar veitt leiðsögn og stuðning. Stuðningurinn hefur annars vegar falist í reglubundinni fræðslu fyrir starfsfólk, m.a. í málstofum og með fyrirlestrum á skipulagsdögum. Hins vegar hefur skólinn ráðið til sín sérstaka ráðgjafa sem styðja við starfsfólk og skólastarfið og eru í daglegu tali nefndir flugstjórar eða flugumferðarstjórar. Þegar rætt er um flugstjóra eða flugumferðarstjóra er átt við utanaðkomandi ráðgjafa sem aðstoða okkur í verkefninu. Um er að ræða sérmenntað fólk með víðtæka reynslu og þekkingu á kennslufræði og menntavísindum. Þeim er ætlað að styðja við faglega þróun starfsfólks, efla starfsöryggi þess og hvetja til þróunar og innleiðingar fjölbreyttra kennsluhátta sem mæta ólíkum þörfum nemenda og stuðla að virkri þátttöku þeirra í námi. Jafnframt leggja þeir mat á skólastarfið á vettvangi, draga fram það sem vel er gert og benda á tækifæri til umbóta.
Fjölbreyttir kennsluhættir og nemendamiðað nám
Í umræðum um námsaðlögun kom fram að „minna getur verið meira“. Með því er átt við að mikilvægt sé að fara stundum meira á dýptina með nemendum í stað þess að þeysa yfir marga námsþætti á stuttum tíma. Lykillinn að nýrri nálgun felst í því að gera ekki alltaf meira af því sama. Við lítum á námsaðlögun sem tilraun okkar til að laga kennslu, viðfangsefni og námsumhverfi að þörfum hvers nemanda með það að markmiði að skapa honum betri tækifæri til virkrar þátttöku í náminu og til að ná árangri á eigin forsendum. Við mótun námsskipulags er lögð áhersla á að Opni skólinn sé ekki opið veisluborð námstilboða eða sælgætisskál sem allir geta gengið í að vild. Þvert á móti er um að ræða markvisst og skipulagt nám þar sem nemendur velja námsleiðir og viðfangsefni með hliðsjón af áhugasviðum sínum, styrkleikum og hæfileikum. Þannig fá nemendur aukna rödd í eigin námi og gefst tækifæri til að hafa áhrif á námsumhverfi sitt, sbr. áherslur í menntastefnu 2030 (Mennta- og menningarmálaráðuneytið, 2022). Hér er ekki átt við hefðbundið valkerfi eins og þekkist víða heldur er kennslan miðuð við að mæta ólíkum þörfum nemenda sem læra í samræmi við þá sýn að kennarar þrói stöðugt leiðir til að vinna saman. Stuðningur við nemendur byggist á sameiginlegri ábyrgð fremur en flokkun.
Sú nálgun sem hér er fjallað um undir merkjum Opna skólans byggir á snemmtækum stuðningi í anda þrepaskiptrar stoðþjónustu og stigskiptrar farsældarþjónustu. Áhersla er lögð á heildstætt skipulag og samhæfingu milli kerfa til að mæta þörfum nemenda. Þessir starfshættir eiga að vera samofnir daglegu skipulagi skólans og mynda, ef svo má að orði komast, æðakerfi hans.
Opni skólinn byggir ekki á einni tiltekinni leið heldur fjölbreyttu kennslufræðilegu námsskipulagi þar sem unnið er með hópavinnu, þemanám og einstaklingsvinnu. Sameiginlegur grunnur er að nemendur fái tækifæri til að nýta áhuga sinn og færni til að afla sér frekari þekkingar og hafa áhrif á viðfangsefni og námsleiðir. Samvinna er lykilhugtak í kennslufræðilegri nálgun Opna skólans. Nemendur á ólíkum aldri geta unnið saman að þemabundnum verkefnum, kennarar starfað í teymum þvert á námsgreinar og foreldrar tekið þátt þegar það styður við nám barna þeirra. Þannig er stefnt að því að skólastarfið mótist af þátttöku alls skólasamfélagsins og geti náð út fyrir hefðbundin mörk stundatöflu skóla, árganga og hópa.
Á liðnu skólaári voru alls haldin 47 námskeið á vegum Opna skólans og sóttu þau 185 nemendur. Námskeiðin byggðust á áhuga og hugmyndum nemendanna sjálfra. Meðal viðfangsefna var hlaðvarpsþáttagerð þar sem nemendur ræddu við samnemendur eða fólk utan skólans um ýmis málefni. Einnig má nefna fatahönnunarverkefni þar sem nemendur á ólíkum aldri unnu saman þvert á listgreinar. Þriðja verkefnið sem mætti nefna er hönnunarsmiðja þar sem verk voru byggð upp með Knex-kubbum.

Þessu til viðbótar má benda á að um 50 aðilar, börn og foreldrar, hafa sótt sameiginleg námskeið Opna skólans, bæði innan og utan skólatíma. Þar koma nemendur og foreldrar saman til að læra eitthvað nýtt og vinna saman að einhverju skemmtilegu. Dæmi um slík námskeið eru myndlist, bakstur og skartgripagerð.

Í nafni Opna skólans hafa einnig verið haldin námskeið sérstaklega ætluð foreldrum. Þar má nefna hugsandi stærðfræðistofa þar sem foreldrar fengu m.a. að kynnast nýjum kennsluaðferðum í stærðfræði og takast á við námsefni sem ætlað er nemendum.
Stoðþjónusta í anda Opna skólans
Í anda Opna skólans var ráðist í róttæka formbreytingu á stoðþjónustu. Hún tók mið af þeirri grunnhugsun að rjúfa mörk hefðbundinnar bekkjaskiptingar og námsskipulags eftir námsgreinum. Í stað þess að skipuleggja þjónustu fyrst og fremst út frá árgöngum, greiningum eða skilgreindum veikleikum var lögð áhersla á styrkleika, þarfir og lausnir fyrir hvert barn.
Í samræmi við þessar áherslur er stoðþjónusta skólans að hluta byggð á því sem nemendur langar til að læra, hafa styrkleika til að takast á við og er hvatning til frekara náms. Hugsanlegt er að sum námskeið séu opin aðilum utan skólans, t.d. fyrir eldri borgara, fólk með skerta starfsgetu, framhaldsskólanema eða jafnvel börn á leikskólastigi. Dæmi um þetta eru lestrarvinir, eldra fólk sem kemur inn í skólann og tekur þátt í lestrarkennslu og annarri námsvinnu. Fólk sem getur miðlað þekkingu og tengt skólann betur við samfélagið.
Áherslur Opna skólans hafa það að markmiði að endurskipuleggja alla stoðþjónustu skólans út frá nýjum áherslum í anda Menntastefnu til ársins 2030, einkum ákvæðin um jöfn tækifæri fyrir alla þar sem áhersla er á að taka mið af þörfum, getu og hæfni nemenda og vinna út frá styrkleikum og áhuga hvers og eins. Jafnframt var markmiðið að allt skólastarfið tæki mið af þessum áherslum (Mennta- og menningarmálaráðuneytið, 2022).
Um er að ræða grundvallarbreytingu á starfsskipulagi skólans og samstarfi heimilis og skóla. Í stað þess að horfa á hindranir er einblínt á lausnir og leiðir til stuðnings. Verklag var samræmt og tekin upp sameiginleg skráning. Vinnan byggist á ólíkum lögum þar sem fyrst er horft til öryggis barnsins, síðan aðstæðna í skólanum, þjónustu skólans og tengdra aðila, og loks regluverks, reiknilíkana og stefnumótunar sveitarfélags og stjórnvalda.

Við endurskipulagningu á stoðþjónustu var lögð áhersla á að upphaf vinnu væri ekki hefðbundið greiningarferli. Áhersla var lögð á að þjónusta gæti leitt til greiningarvinnu en ekki öfugt. Öll börn eiga rétt á þjónustu og skólaferðalag þeirra er persónubundið.
Í anda þessa á hvert barn vegvísi sem er hugsað líkt og vegabréf þar sem persónubundið skólaferðalag er skráð, s.s. ákvarðanir sem teknar eru um nám þess, skipulag náms eða óskir og áhugasvið barnsins. Í daglegu tali er rætt um „græna blaðið“ sem heldur utan um skólasögu hvers barns. Slík persónubundin nálgun samræmist vel áherslum um persónumiðað nám, þar sem styrkleikar, áhugi og rödd nemenda eru nýtt til að móta námsleiðir og efla sjálfstæði þeirra í námi.

Fimm sóknarþættir
Við endurskipulagningu skólastarfsins og mótun umbótaáætlunar voru skilgreindir fimm sóknarþættir sem mynda grunn að þeirri þróunar- og breytingavinnu sem ráðist hefur verið í. Þessir sóknarþættir voru valdir af ólíkum aðilum í skólasamfélaginu og flokkaðir sem lykilþættir. Sóknarþættirnir fimm eru: (1) Foreldrastarf, (2) skipulag, (3) skörp og ígrunduð stefna, (4) samþætting frístunda og skóla. Síðast en ekki síst (5) aukin fagmennska sem er lykilþáttur.
Ekki er mögulegt að fjalla náið um alla þessa þætti í þessari samantekt en vísað er í skjal og umfjöllun um flugáætlun Grundaskóla á heimasíðu skólans. Mikil vinna var lögð í að skilgreina hvern sóknarþátt og árangurríkar leiðir sem skólinn gæti lagt upp með til að ná betri árangri. Í svona vinnu er ekki til ein rétt leið eða eitt rétt svar því raunveruleikinn er nefnilega sá að skólaþróun lýkur aldrei. Skólastarf endurspeglar á margan hátt lífið sjálft á ótal vegu, þar sem eitthvað nýtt lærist á hverjum degi. Margar aðgerðir hafa þegar skilað góðum árangri og eflt skólasamfélagið en nú í lok árs 2026 fer fram endurskoðun á þeim þáttum sem gengu vel og líka þeim sem gengu ekki eins vel.

Greining á stöðu
Til að útskýra betur stöðuna í Grundaskóla skólaárið 2020-2021 má benda á að biðlistar eftir hinum ýmsu greiningum voru komnir yfir þrjú ár í skólanum. Á sama tíma var hlutfall barna með greiningu að nálgast 35% sem er langt yfir mörkum í innlendum og alþjóðlegum samanburði. Stoðþjónustan óx að umfangi en árangur þess hins vegar stundum óljós. Þessi staða studdi við niðurstöður umræðna um að lengra yrði ekki haldið að óbreyttu og nauðsynlegt væri að skipta um kúrs. Niðurstaðan var að lykilatriði væri að færa áherslu frá einstaklingsbundinni flokkun yfir í greiningu á námsumhverfi, kennsluháttum og skipulagi stuðnings.
Annað dæmi um stöðu og þróun mála var að nemendum fjölgaði í Grundaskóla um 62% á árunum 1994 til 2026 en starfsmönnum um 145% á sama tíma. Mest var fjölgunin í hópi ófaglærðra starfsmanna innan skólans. Það er ákveðið lán í öllu þessu ferli að skólafólkið þorði að spyrja erfiðra spurninga og ræða þróunina af fagmennsku og yfirvegun. Umræðan var á köflum krefjandi en styrkti starfsheildina í að móta nýtt skipulag og leita lausna á því sem betur mátti fara.
Við endurskoðun á starfsskipulagi skólans var m.a. horft til settrar menntastefnu og þeirra breytinga sem skólafólk stendur frammi fyrir vegna tæknibreytinga og samfélagsþróunar. Einnig var mat lagt á áhrif og árangur þess skipulags sem byggt hafði verið upp á liðnum árum. Í stuttu máli var niðurstaðan sú að skólinn hafði stækkað mikið og fjárfest í ýmsum hlutum og skipulagi sem skiluðu nemendum ekki nægjanlega miklum ávinningi. Við endurskipulagningu í anda Opna skólans var horft til þess að nýta tíma, mannauð og aðrar auðlindir skólans betur.
Dæmi um þessa nálgun er aukin áhersla á öfluga teymisvinnu í stað þess að fjölga fólki. Að nýta tíma og mannauð okkar betur þannig að margir séu ekki að gera hið sama. Einnig var horft til þess að stórauka samstarf milli heimilis og skóla. Fjárfest var í uppeldisráðgjöf fyrir foreldra og kennsluráðgjöf var stóraukin. Í fyrra skipulagi var mikil áhersla lögð á að fjölga tímum, t.a.m. í stoðþjónustu, en minna lagt upp úr því að greina hvernig við nýttum þessa mikilvægu tíma. Nú var í ríkara mæli spurt um að hverju var unnið? Hvaða leiðir voru valdar? Hver voru áhrif nemenda og þátttaka foreldra í þeirri vegferð o.s.frv.?
Í nýju starfsskipulagi hafa starfsmenn lagt meira upp úr að ræða hvernig við nýtum hverja kennslustund eða fundartíma og um leið rætt meira um þær aðstæður er henta best til að ná betri árangri. Oftar en ekki er niðurstaða ígrundunar á þá leið að þróa leiðir og lausnir sem byggja á styrkleikum nemenda okkar.
Vísbendingar um framfarir og lærdóm
Umbótastarf í Grundaskóla hefur nú staðið yfir í um fimm ár og náð, eins og fram hefur komið, bæði til skólahúsnæðis og innra skipulags. Með samstilltu átaki skólasamfélagsins hafa orðið umfangsmiklar breytingar á starfsháttum og skipulagi.
Markvisst umbótastarf hefur skilað sér á margan hátt og má í því sambandi nefna að viðhorfamælingar meðal nemenda, foreldra og starfsmanna sýna mikla ánægju með skólastarfið. Einnig mætti benda á margvíslegar breytingar og framfaraskref tengt nýjum starfsháttum, m.a. nýta margir þá uppeldisráðgjöf við foreldra sem er í boði og kennsluráðgjöf við skólafólk. Sterkasta vísbendingin um góðan árangur er að beiðnum um greiningar hefur fækkað um 45% samhliða breyttri nálgun innan stoðþjónustunnar og áherslum Opna skólans. Hér er um mjög merkilega þróun að ræða sem áhugavert verður að fylgjast með í framhaldinu.
Fleiri vísbendingar mætti nefna um að umbótastarfið og breyttir starfhættir séu að skila árangri. Kannski er ánægjulegast að benda á almenna þátttöku í þeim úrlausnarleiðum sem hafa orðið til. Það er hvetjandi fyrir starfsfólk skólans að finna áhugann á Opna skólanum og hversu mikil þátttaka er hjá öllu skólasamfélaginu.
Að snúa áfalli í sóknarfæri
Í frægri íþróttalýsingu var eitt sinn spurt: „Hvaðan kom hann … hvert er hann að fara … hver er hann?“ Þessar spurningar eiga kannski vel við um þá vegferð sem hér hefur verið rakin. Við þurftum að horfa til baka og leita í rætur okkar og gildi sem skóla. Spyrja okkur hvernig skóla við vildum eiga, hvernig kennarar við vildum vera og hvað við vildum að einkenndi skólasamfélagið okkar?
Um leið þurftum við að horfa fram á veginn. Samfélagið tekur stöðugum breytingum, meðal annars vegna örra tækniframfara og breytinga á uppeldi, fjölskyldugerðum og þörfum barna og fjölskyldna. Skóli sem ætlar að mæta framtíðinni getur því ekki staðið í stað. Hann þarf að hafa skýra sýn á hver hann er, en hafa jafnframt hugrekki og sveigjanleika til að þróast.
Vegferð Grundaskóla hófst ekki vegna þess að aðstæður voru ákjósanlegar heldur vegna þess að þær kröfðust viðbragða. Úr áfalli urðu til tækifæri til að endurhugsa skólastarfið, styrkja það sem fyrir var og skapa eitthvað nýtt. Kannski felst stærsti lærdómurinn einmitt í því að við ráðum ekki alltaf hvaða áskoranir verða á vegi okkar, en við getum ráðið því hvernig við bregðumst við þeim. Og stundum getur það sem í fyrstu virðist vera mikið áfall orðið upphafið að mikilli umbótavinnu. Markviss umbótavinna starfsfólks Grundaskóla hefur skilað miklu og heldur vonandi áfram um ókomin ár. Það má segja að textalína Ómars Ragnarssonar þar sem segir, „Fátt er svo með öllu illt að ei boði gott,“ eigi vel við um þetta ferðalag okkar í skólastarfi á Akranesi.
Heimildaskrá
Edda Óskarsdóttir. (2025). Altæk hönnun náms: Leið til að stuðla að menntun allra. Í Anna Kristín Sigurðardóttir, Hermína Gunnþórsdóttir og Rúnar Sigþórsson (ritstjórar). Gæði kennslu – Námstækifæri fyrir alla nemendur (bls. 161–178). Háskólaútgáfan.
Grundaskóli – Opni skólinn. https://www.grundaskoli.is/opni-skolinn
Mennta- og menningamálaráðuneytið. (2022). Menntastefna til ársins 2030. https://www.stjornarradid.is/library/03-Verkefni/Menntamal/Menntastefna/menntastefna-vefur.pdf
Um höfund
Sigurður Arnar Sigurðsson er skólastjóri Grundaskóla á Akranesi. Hann útskrifaðist með B.ed gráðu frá KHÍ árið 1992, framhaldsnámi í stjórnun frá HR 2008 og lauk M.Ed námi í stjórnun menntastofnana frá HÍ árið 2013. Hann hefur einnig verið kennari, deildarstjóri og aðstoðarskólastjóri við skólann.


Anna Magnea Hreinsdóttir og Kristín Dýrfjörð
Magnea Arnardóttir
Kristín Gísladóttir og Elín Friðriksdóttir